Fréttablaðið - 20.06.2005, Side 8
15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Líf mitt snerist um
tuttugu skref á salerni
Frönsku bla›akonunni Florence Aubenas var um helgina sleppt úr fimm
mána›a haldi mannræningja. Hún ræddi vi› bla›amenn á fundi í París í gær.
Bergflór Bjarnason var á me›al fleirra sem hl‡ddu á frásögn bla›akonunnar.
GÍSLATAKA „Ég var í fimm mánuði
með bundið fyrir augun í svörtum
loftlausum kjallara án þessa að
segja orð,“ sagði Florence
Aubenas, blaðakona franska dag-
blaðsins Libération á blaðamanna-
fundi í París í gær. Hún lýsti þar
þeim aðstæðum sem hún bjó við
ásamt írönskum fylgdarmanni
sínum, Houssein Hanoun al-Saaid.
Rödd hennar var rám en hún sagði
það stafa af því að í fimm mánuði
hefði hún nánast ekkert sagt og nú
hefði hún tekið upp fyrri iðju, að
tala stanslaust.
Florence og Houssein voru í
haldi mannræningja í 157 daga,
um áttatíu kílómetra fyrir utan
Bagdad. Þar bjuggu þau í kjallara,
bundin á höndum og fótum með
bundið fyrir augun, án þess að sjá
mun á nóttu eða degi. Hún sagði
frá í léttum tón en um leið tók hún
fram það væri sín aðferð til að
komast heil frá þessari reynslu.
Henni hefði ekki verið hlátur í
huga meðan á haldinu stóð, enda
bjóst hún jafnvel við því að verða
þá og þegar tekin af lífi. Florence
sagðist í upphafi hafa verið sökuð
um njósnir og að það hefði vakið
hlátur mannræningjanna að
Frakkar sendu konu til Íraks til að
fjalla um stjórnmálaástandið í
landinu.
„Líf mitt snerist um tuttugu
skref á salerni og til baka og örfá
orð við verðina: t.d. „númer 6, kló-
sett,“ sagði Florence en 6 var
hennar númer sem gísls. Hrein-
læti fólst í einni sturtu á mánuði,
maturinn var brauð og egg á
morgnana og hrísgrjón í hádeg-
inu. Þess á milli var óendanlegur
tíminn sem virtist aldrei ætla að
líða í herbergi sem var um það bil
fjórir metrar á lengd og tveir á
breidd. Eitt sinn var hún sökuð
um að tala við gísl sem deildi með
henni herbergi og þrátt fyrir neit-
un voru þau bæði leidd út og bar-
in. Það var ekki fyrr en fyrir tíu
dögum þegar frelsun hennar lá í
loftinu að Florence komst að því
að mánuðum saman hafði hún set-
ið í svörtum kjallaranum á dýnu á
móti leiðsögumanni sínum,
Houssein Hanoun al-Saaid.
„Mér líður allt í einu miklu
betur,“ voru fyrstu orð Florence
Aubenas við komuna til Frakk-
lands er hún var spurð um líðan
sína. Þau mælti hún með bros á
vör. Hún sýnir ótrúlegan andlegan
styrk, þrátt fyrir slæman aðbúnan
undanfarið og hún virðist enn
sjálfri sér lík. Því er þó ekki að
neita að það var óttalega föl og
horuð kona sem sagði sögu sína á
blaðamannafundinum og í augna-
ráði hennar var dapurleiki.
Margir gíslar komast ekki lif-
andi heim. Oftast er um að ræða
Íraka sem ekki hafa nein ráð eða
sambönd til að greiða mannræn-
ingjum lausnargjald. Margt er
enn á huldu um brottnám og frels-
un Florence og Husseins, til dæm-
is hvort lausnargjald hafi verið
greitt. Sjálf segist hún aldrei hafa
heyrt talað um peninga. Frönsk
yfirvöld halda fast við þá opin-
beru stefnu að svo sé ekki, en
sterkur orðrómur er á kreiki í
fjölmiðlum í Frakklandi um að
fjórar milljónir dollara hafi verið
greiddar fyrir Florence og
Houssein. Því neitar Philippe
Douste-Blazy, utanríkisráðherra.
Ýmislegt verður aldrei skýrt þar
sem leyniþjónustan franska tók á
móti blaðakonunni og yfirheyrði
hana við komuna til Frakklands.
Því má ljóst vera að hún getur
ekki sagt allan sannleikann.
Bergþór Bjarnason/París
FJARSKIPTI Póst- og fjarskiptastofn-
un vakti í gær athygli á breytingum
sem Síminn hefur gert á tímamæl-
ingu símtala. Annan júní hætti fyr-
irtækið að innheimta gjöld sam-
kvæmt sekúndumælingu í einstak-
lingsáskriftum farsíma.
Nú er gjaldfært fyrir fyrstu mín-
útu hvers símtals innan kerfis Sím-
ans og svo fyrir hverjar 10 sekúnd-
ur eftir það. Ef hringt er út fyrir
GSM kerfi Símans eru fyrstu 20
sekúndurnar gjaldfærðar og síðan
hverjar 10 sekúndur. “Samkvæmt
upplýsingum frá Símanum mun
þessi breyting á gjaldtöku leiða til
þess að gjöld farsímanotenda með
einstaklingsáskrift, sem ekki nýta
sér sparnaðarleiðir, hækka að með-
altali um 2.880 kr. á ári,“ segir stofn-
unin og taldi ólíklegt að neytendur
hefðu orðið varir við tilkynningu
um breytinguna á vef Símans.
Í tilkynningu Síman segir að nýj-
ar sparnaðarleiðir og tilboð sem
kynnt hafi verið nýverið feli í sér
fleiri kosti fyrir viðskiptavini og
geti sparað þeim peninga. „Sparnað-
ur þeirra viðskiptavina Símans sem
munu nýta sér nýjar sparnaðarleið-
ir mun geta numið allt að 11.820 kr.
að jafnaði á ári,“ segir þar og árétt-
að að viðskiptavinir geti kosið að
vera áfram í sekúndumælingu. -óká
Póst- og fjarskiptastofnun gagnrýnir vinnubrögð Símans:
Sekúndumælingum
í farsímakerfinu hætt
VERSLUN SÍMANS Í KRINGLUNNI Póst- og
fjarskiptastofnun vakti í gær athygli á
breytingum á gjaldtöku Símans sem bara
voru kynntar á vef fyrirtækisins. Í tilkynn-
ingu Símans er bent á að Og Vodafone
stundi sambærilega tímamælingu og fyrir-
tækið hefur tekið upp.
Í GÍSLINGU Blaðakonan bjó við þröngan
kost í fimm mánaða langri prísund sinni
enda dró fljótlega að henni. Þrátt fyrir
þetta sýndi hún ótrúlegt sálarþrek.
FLORENCE AUBENAS Aubenas lék á als oddi á blaðamannafundinum í París í gær. Hún sagði meðal annars frá því að mennirnir sem
rændu henni gáfu henni ilmvatn og skartgripi að skilnaði þegar þeir létu hana lausa og jafnframt skiluðu þeir handtösku hennar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P