Fréttablaðið - 20.06.2005, Page 12
12 15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Menningarauki
í mi›borginni
Forsvarsmenn Listahá-
skólans vilja að nýtt hús
skólans rísi við gömlu
höfnina í Reykjavík. Það
yrði um ellefu þúsund
fermetrar og er kostnað-
ur áætlaður á þriðja
milljarð króna.
Stjórn Listaháskóla Íslands hefur
farið þess á leit við borgarstjóra og
menntamálaráðherra að skólanum
verði fundin lóð á bakka gömlu
hafnarinnar í Reykjavík. Þar á tón-
listar- og ráðstefnuhús að rísa og
standa ríki og borg saman að þeirri
framkvæmd.
Listaháskólinn var stofnaður
1999 og hefur síðan verið starfrækt-
ur í þremur húsum í Reykjavík. Af
því hefur hlotist margvíslegt óhag-
ræði og brýnt að mati stjórnenda
skólans að koma starfseminni undir
eitt þak.
„Ávinningurinn af sambúð list-
greinanna nýtist okkur ekki nema
að litlu leyti meðan við erum klof-
in,“ segir Hjálmar H. Ragnarsson,
rektor Listaháskólans. „Rekstrar-
lega er þetta líka þungt og erfitt, við
þurfum þrennt af öllu því við erum
á þremur stöðum. En það er aðal-
lega þessi kraftur í sambúð listanna
sem við teljum að geti margfaldast í
einu húsi,“ segir rektor.
Húsnæðismál Listaháskólans
hafa verið til umræðu frá því áður
en hann var formlega stofnaður en
senn gæti séð fyrir endann á þeim.
Hjálmar velkist ekki í vafa um
að miðborg Reykjavíkur sé rétti
staðurinn fyrir Listaháskóla Ís-
lands. Hann segir nauðsynlegt að
krafturinn sem skólinn býr yfir nýt-
ist samfélaginu öllu og það gerist
best í miðborginni. Þá sé samlegð
starfseminnar með þeim stofnunum
og fyrirtækjum sem þar eru fyrir
augljós. „Svæðið getur öðlast enn
meira líf með okkur. Í skólanum er
starfsemi frá morgni til kvölds
flesta daga vikunnar á meðan tón-
listarhúsið verður meira viðburða-
tengt.“ Skólinn sé ekki einasta
menntastofnun heldur líka miðstöð
menningar og listar.
Það er því ekki bara skólans
vegna heldur líka borgarsamfélags-
ins sem miðborgin er hentugur
staður. „Ég held að það hljóti að
vera eftirsóknarvert fyrir miðborg-
ina að fá þennan hóp af fólki til sín.
Við erum ekki bara að tala um kenn-
ara og nemendur heldur mun fjöldi
listamanna og fólks sem tengist list-
um eiga hér leið um og gestir koma
frá útlöndum og utan af landi. Svo
er vert að nefna að um þriðjungur
af húsnæðinu sem við hyggjumst
byggja er fyrir almenning. Hér
verða margskonar listviðburðir og
uppákomur af hvaða tagi sem er.“
Áætlanir gera ráð fyrir að nýtt
hús Listaháskólans verði um 11.000
fermetrar og að það kosti á milli tvo
og þrjá milljarða króna að reisa það.
Að mati Hjálmars er nægt pláss
fyrir stórt hús á byggingarreitunum
við gömlu höfnina og í erindinu til
borgarstjóra og menntamálaráð-
herra sé verið að biðja um að skól-
inn verði hafður með í þróunar- og
skipulagsferlinu sem nú stendur.
Og hann er bjartsýnn á að erind-
inu verði vel tekið af yfirvöldum og
að hægt verði að setja skólann í
nýju húsi við gömlu höfnina í
Reykjavík haustið 2008.
„Ég er mjög bjartsýnn. Skólinn
er sterkur og ímynd hans er góð,
vitund um gildi háskóla í samfélag-
inu er að aukast og menntamálaráð-
herra hefur lýst yfir að hann telji
byggingu Listaháskóla Íslands vera
forgangsmál á sviði háskólamála.“
bjorn@frettabladid.is
„Ef laugin hefur sett þessar reglur er
sjálfsagt að fara eftir þeim,“ segir Ein-
ar Birgir Steinþórs-
son, skólameistari
Flensborgarskóla,
um að drukknum
sjómönnum hafi
verið vísað frá Suð-
urbæjarlaug. Í frétt
Fréttablaðsins
kemur þó fram að
sjómennirnir, sem
eru af rússneskum
og lettneskum tog-
urum sem liggja í Hafnarfirði, séu yf-
irleitt mjög kurteisir og prúðir.
Einar Birgir telur að reglurnar hafi lík-
lega verið settar með öryggishags-
muni í huga og þeim eigi að fylgja
hvort sem um sé að ræða innlenda
eða erlenda gesti.
Einar Birgir hefur ekkert á móti því
að skipverjar erlendra togara kryddi
bæjarlífið í Hafnarfirði. „Hafnarfjörður
reynir að taka vel á móti öllum,“ seg-
ir hann.
Fara á eftir
reglum
DRUKKNUM VÍSAÐ ÚR
SUÐURBÆJARLAUG
SJÓNARHÓLL
„Það er allt þokkalegt að frétta,
sumarið er komið og það er að hlýna
og lifna yfir öllu,“ segir Sveinn
Bernódusson járnsmíðameistari og
formaður Framsóknarfélags Bol-
ungarvíkur.
Sveinn segir að það sé þokkalegt
að gera í járnsmíðunum þó það
megi auðvitað alltaf vera meira. En
hann hefur þá að minnsta kosti
tækifæri til að fara í sumarfrí. „Ég
er að spá í að skella mér til Spánar í
hálfan mánuð. Benidorm nánar til-
tekið. Ég hef farið þangað áður og
líkaði vel, það var gott að slappa af
þarna en maður getur ekki verið lengur en hálfan mánuð.
Það er passlegur tími.“
Flokksbræður Sveins á þingi og í ríkisstjórn hafa verið í
kastljósi fjölmiðlanna undanfarið
og hann hefur ekki farið varhluta
af því. „Já, þeir eru mikið í fréttum
og ekki er það allt jákvætt. En ég
er ekki viss um að þeir sem liggja
undir ámæli séu sekir um jafn al-
varlegar syndir og þeim er gefið að
sök.“
Sveinn hefur miklar mætur á
Kristni H. Gunnarssyni og sam-
mála honum um að það þurfi að
stokka upp í kvótakerfinu. „Þetta
er bara orðin svo gömul lumma
þetta bannsetta kvótakerfi og ég
hef orðið var við það á stærri sam-
komum Framsóknarflokksins að þetta er eins og að nefna
snöru í hengds manns húsi að minnast á kvótakerfið. Það
bara má ekki ræða þetta.“ ■
Á lei› til Benidorm í hálfan mánu›
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SVEINN BERNÓDUSSON JÁRNSMÍÐAMEISTARI
nær og fjær
„Berglind fékk a›eins í
baki› en vi› komumst
ekki a› flví fyrr en eftir
á.“
BJÖRGVIN FRANZ GÍSLASON LEIKARI
UM UMFERÐARÓHAPP SEM HANN
LENTI Í. DV.
„fietta er hrífandi end-
ir, Bubbi hugsar ekki
illa til Brynju heldur
a›eins af hreinni, tærri
ást.“
ARNAR EGGERT THORODDSEN
BLAÐAMAÐUR Á MORGUNBLAÐINU Í
GAGNRÝNI Á ÁST, NÝJA PLÖTU BUBBA
MORTHENS.
OR‹RÉTT„ “
1. flokki 1989 – 59. útdráttur
1. flokki 1990 – 56. útdráttur
2. flokki 1990 – 55. útdráttur
2. flokki 1991 – 53. útdráttur
3. flokki 1992 – 48. útdráttur
2. flokki 1993 – 44. útdráttur
2. flokki 1994 – 41. útdráttur
3. flokki 1994 – 40. útdráttur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. ágúst 2005.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér að ofan birt í Morgunblaðinu, miðvikudaginn 15. júní.
Upplýsingar um útdregin húsbréf má einnig finna á
heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800
BJARTSÝNN REKTOR Hjálmar H. Ragnarsson er bjartsýnn á að byggt verði yfir Listahá-
skólann við gömlu höfnina í Reykjavík. Hann sér marga kosti við að skólinn rísi í miðborg-
inni, bæði fyrir skólann og mannlífið í borginni.
OG Á SÖLVHÓLSGÖTU 13.
NÚVERANDI HÚSAKYNNI
Listaháskólinn er nú starfræktur á þremur stöðum í borginni.
Í SKIPHOLTI 1 Í LAUGARNESI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
Háskóli Íslands:
Útskrifa› í
Egilshöll
Útskrift Háskóla Íslands fer fram í
Egilshöll í Grafarvogi þetta sumar-
ið. Verður hún laugardaginn 25. júní
og hefst klukkan
13. Er áætlað að
hún standi í tvær
og hálfa klukku-
stund.
Síðustu ár
hefur athöfnin
farið fram í
Laugardalshöll
en hún er nú lok-
uð vegna við-
halds og breyt-
inga. Áður fór
útskriftin fram í
Háskólabíói en
það hefur löngu sprengt athöfnina
utan af sér enda hefur nemum við
HÍ fjölgað mjög.
Þetta verður í síðasta sinn sem
Páll Skúlason brautskráir nema frá
Háskólanum en hann lætur af emb-
ætti rektors tæpri viku eftir athöfn-
ina. Við tekur Kristín Ingólfsdóttir
sem bar sigur úr býtum í rektors-
kjöri fyrr á árinu.
Um 800 nemendur útskrifast frá
Háskóla Íslands að þessu sinni.
- bþs
PÁLL SKÚLASONEINAR BIRGIR
STEINÞÓRSSON