Fréttablaðið - 20.06.2005, Qupperneq 37
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Karlmenn sem horfa á klám-
myndir þar sem tvær konur og
einn karlmaður koma við sögu
framleiða betra sæði en karl-
menn sem horfa á klámmynd af
einni konu og einum karli, sam-
kvæmt nýrri rannsókn.
Þykir þetta benda til þess að
karlmenn geti aukið gæði sæðis
þegar þeir sjá fram á samkeppni
um hylli kvenna.
„Þetta er eitthvað sem á ræt-
ur sínar að rekja til forfeðra
mannsins. Mig grunar að þetta
nýtist nútíma karlmönnum ekki
mikið í tilhugalífinu,“ sagði
Leigh Simmons, sem stýrði
rannsókninni.
Talið er að þessar niðurstöður
nýtist vel við meðferð á ófrjó-
semi. - jsk
Gæðasæði
SYLVESTER STALLONE OG FÉLAGI Sylv-
ester Stallone á eina erótíska kvikmynd að
baki, Party at Kitty’s and Studs sem út kom
árið 1970.
Öldruð gæludýr
valda útgjöldum
Framfarir í heilbrigðisvísindum
eru ekki einskorðaðar við mann-
inn. Gæludýr lifa nú einnig miklu
lengur en áður en því fylgir
fleira en tóm gleði.
Ný könnun í Bretlandi leiðir í
ljós að kostnaður eigenda aldr-
aðra gæludýra fer sívaxandi. Svo
dæmi sé tekið kostar það um sex-
tíu þúsund krónur á ári að sinna
gigtarveikum ketti og helmingi
dýrara er að halda uppi hjart-
veikum hundi.
Stór hluti af þeirri læknisþjón-
ustu sem mannfólkið á völ á
stendur nú einnig gæludýrum til
boða. Til dæmis er ekki óalgengt
að borga fyrir lyfja- og geisla-
meðferð ef gæludýr greinast
með krabbamein. - þk
HVORN MUNDIR ÞÚ KJÓSA? Ole Gunnar Solskjær ætti eflaust ekki mikinn séns í póil-
tíkinni. Denis Haysberth, sem leikur Palmer forseta í sjónvarpsþáttunum 24, er hins veg-
ar mjög „forsetalegur“.
Vísindamenn í Bandaríkjunum
hafa komist að því að háskóla-
nemar spá rétt fyrir um úrslit
kosninga í 70 prósent tilfella
með því einu að skoða myndir af
frambjóðendum.
Rannsóknin leiddi í ljós að
fullorðinslegt andlit er mikill
kostur fyrir stjórnmálamenn en
þeir sem eru með hringlaga and-
lit, lítið nef, stór augu, hátt enni
og litla höku eiga minni mögu-
leika. Þessi niðurstaða er í mót-
sögn við fyrri niðurstöður sem
hafa bent til þess að fólk treysti
betur fólki með barnaleg andlit.
Vísindamennirnir telja að
kjósendur leggi mesta áherslu á
að kjósa fólk sem það telur að
hægt sé að treysta til að standa
sig í starfi. Þar vegur þungt að
viðkomandi hafi nægan þroska.
Ef kjósendur hafa ekkert annað
að dæma eftir heldur en útlit
frambjóðenda þá velja þeir þann
sem lítur út fyrir að bera þá
kosti sem sóst er eftir.
„Einstaklingur með barnalegt
andlit virkar síður hæfur heldur
en sá sem hefur þroskaðra and-
litsfall, jafnvel þótt báðir séu
jafnfallegir og á sama aldri og af
sama kyni,“ segir í rannsókn-
inni. - þk
Barnalegt andlit
ókostur í pólitík
Ný rannsókn sýnir að þroskað andlit gefur
frambjóðendum í kosningum forskot.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
et
ty
Im
ag
es
Bandaríska geimferðastofnunin,
NASA, hefur í hyggju að sprengja
í sundur loftstein og er ætlunin að
kanna innviði hans. Vonast er til
þess að verkefnið geti varpað ljósi
á tilurð plánetanna.
Geimferjan, Deep Impact,
verður send á loft og freistar þess
að kljúfa lofsteininn með
sprengju sem ferðast á hundrað-
földum hraða hefðbundinnar
byssukúlu.
Lofsteinninn sjálfur er á stærð
við Manhattan-eyju. Áætlað er að
áreksturinn muni eiga sér stað
þann 4. júli, á þjóðhá-
tíðardegi Bandaríkj-
anna.
Verður atburðurinn
tekinn upp á myndavél
sem verður um borð í
geimferjunni og munu
mælitæki greina brotin
úr loftsteininum: „Við
erum að reyna nokkuð
sem aldrei hefur verið
gert áður. Hraðinn og
fjarlægðirnar eru slík-
ar að engin leið er fyrir
mannshugann að setja
atburði í samhengi,“
sagði Rick Grammier
sem stýrir verkefninu.
Þykir verkefnið
minna um margt á sögu-
þráð amerískra stór-
slysamynda en geimferj-
an er einmitt nefnd eftir
einni slíkri, Deep Impact
frá árinu 1998. -jsk
NASA klýfur loftstein
Bandarískir vísindamenn hyggjast sprengja loftstein og vonast til þess
að varpa ljósi á tilurð plánetanna. Þykir verkefnið minna um margt á
söguþráð amerískrar stórslysamyndar.
GEIMFLAUG NASA Nokkrir
vaskir geimfarar feta nú í fótspor
Bruce Willis og fleiri frægra
Hollywood-leikara og hyggjast
sprengja í sundur loftstein.