Fréttablaðið - 20.06.2005, Qupperneq 70
FÓTBOLTI Þeir gerast varla flottari
toppslagirnir en á Hlíðarenda í
kvöld þegar Íslandsmeistarar FH
heimsækja nýliða Valsmanna í
Landsbankadeildinni en liðin eru
fyrir leikinn hnífjöfn á toppnum,
með fullt hús stiga og jafnmörg
mörk skoruð. Það er því ljóst að
annaðhvort Valur eða FH eða jafn-
vel bæði tapa sínum fyrstu stigum
í Landsbankadeildinni í sumar en
aðeins þrjú önnur lið í sögu efstu
deildar hafa náð að vinna fimm
fyrstu leiki sína síðan að tíu lið
skipuðu hana fyrst sumarið 1977.
Íslandsmeistarar FH-inga hafa
unnið átta deildarleiki í röð og leik-
ið 21 leik í röð án þess að tapa. FH-
ingar geta jafnað met með sigri í
kvöld en það yrði níundi útisigur
liðsins í röð. FH hefur unnið þrjá
fyrstu útileiki sína í sumar og vann
auk þess fimm síðustu útileiki sína
í fyrrahaust. Aðeins eitt lið hefur
unnið fleiri útileiki í röð í sögu tíu
liða efstu deildar en KR-ingar
unnu 9 útileiki í röð á árunum 1999
til 2000. Síðasta liðið til að hafa stig
af FH á sínum eigin heimavelli
voru einmitt Skagamenn fyrir rétt
tæpu ári síðan en liðin gerðu þá 2-
2 jafntefli upp á Skaga. FH-ingar
eru nú eitt af fjórum liðum sem
hafa unnið 8 útileiki í röð en hin
eru Valur (1978), Víkingur (1991-
92) og ÍA (1993-94).
Valsmenn hafa leikið frábær-
lega í sumar, unnið alla fimm leiki
sína og skorað tvö mörk eða meira
í öllum leikjunum. Eitt stærsta
prófið á Valsliðið verður í kvöld.
FH-ingar hafa gríðarlega sterkan
og traustan hóp og hafa unnið
sannfærandi sigra í sumar þótt
framistaðan hafi kannski ekki ver-
ið eins glæsileg og hjá Val. Það er
ljóst að eitthvað verður að láta
undan á Valsvellinum í kvöld og
því má búast við hörkuleik tveggja
frábærra liða. ooj@frettabladid.is
15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
> Við mælum með ...
... að fólk fjölmenni á Hlíðarenda á
morgun og sjái tvo frábæra íþrótta-
viðburði. Veislan byrjar með
handboltaleik á milli
meistaraflokks Vals og
fyrrum leikmanna liðsins
á borð við Júlla Jónasar,
Geir Sveins, Gumma
Hrafnkels og Valda Gríms.
Þetta verður kveðjuleikur
hússins. Svo í kjölfarið er
stórleikur Vals og FH í Lands-
bankadeild karla. Sannkölluð veisla.
Heyrst hefur ...
... að Guðjón Þórðarson hafi ákveðið að
ganga í raðir Notts County þar sem hann
hafi strax fengið góða tilfinningu fyrir
starfinu, ólíkt því sem gerðist þegar
honum voru boðin störf hjá Stockport og
Hibernian. Þá hafi hann haft slæma
tilfinningu fyrir því sem var í boði og því
hafi hann hafnað félögunum.
sport@frettabladid.is
26
> Við hrósum ...
.... FH-ingum fyrir að
blása í herlúðra og rífa
handboltann hjá félaginu
upp úr meðalmennsk-
unni. FH er stórveldi í
handboltanum sem á að
berjast á toppnum og ekki
sætta sig við annað.
Í fyrsta sinn í sögu tíu li›a efstu deildar mætast li› í sjöttu umfer› sem bæ›i hafa fullt hús flegar leikur-
inn hefst. Valsmenn hafa byrja› best allra n‡li›a og geta sé› til fless a› FH-ingar jafni ekki met í kvöld.
Nú verður eitthvað að láta undanLEIKIR GÆRDAGSINSLandsbankadeild kvenna:
STJARNAN–BREIÐABLIK 1–2
0–1 Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, 1–1 Björk
Gunnarsdóttir, 1–2 Lára Hafliðadóttir.
KR–KEFLAVÍK 4–1
1–0 Hrefna Jóhannesdóttir (41.), 3–0 Júlíana
Einarsdóttir (47.), 3–0 Fjóla Dröfn Friðriks-
dóttir (64.), 4–0 Hrefna Jóhannesdóttir (74.),
4–1 Nína Ósk Kristinsdóttir, víti (84.).
ÍA–FH 1–3
Thelma Ýr Gylfadóttir – Sif Atladóttir, Valdís
Rögnvaldsdóttir, Kristín Sigurðardóttir.
STAÐAN:
BREIÐABLIK 5 5 0 0 15–5 15
VALUR 5 4 0 1 27–7 12
KR 5 4 0 1 20–8 12
FH 5 2 0 3 5–10 6
STJARNAN 5 2 0 3 4–12 6
ÍBV 4 1 0 3 14–12 3
KEFLAVÍK 4 1 0 3 5–16 3
ÍA 5 0 0 5 6–26 0
MARKAHÆSTAR:
Hrefna Huld Jóhannesdóttir, KR 7
Laufey Ólafsdóttir, Val 7
Í gær var haldinn sáttafundur hjá knatt-
spyrnudeild Grindavíkur. Mættir voru
forráðamenn félagsins, Milan Stefán
Jankovic og Óli Stefán Flóventsson. Til-
efni fundarins var að sætta aðila eftir að
upp úr hafði soðið á milli þjálfarans
og leikmannsins en Óli Stefán var
settur í agabann eftir að hafa skellt
sér út á lífið eftir landsleik Íslands
og Ungverjalands, átta dögum
fyrir næsta leik sem var gegn
Fylki.
„Ég ætla að ræða við hann um
allt og allt. Það kemur svo í
ljós hvað gerist,” sagði Óli Stef-
án fyrir fundinn en ekki náðist
í hann áður en blaðið fór í
prentun í gærkvöldi. „Ég skulda
öllum í kringum fótboltann í
Grindavík það að reyna eitthvað
að leysa málin. Það eru tveir að
deila og það verður að mætast á
miðri leið ef eitthvað á að gerast.”
Að sögn Jónasar Þórhalls-
sonar, formanns knatt-
spyrnudeildar Grinda-
víkur, gekk fundurinn
vel og á hann ekki
von á öðru en að
Óli Stefán haldi
áfram hjá Grinda-
vík. Hann sé með
þriggja ára samning
við félagið sem hann
skrifaði undir í haust
og að ekkert hafi breyst
í þeim málum.
Óli Stefán er leikreyndasti leikmaður
Grindavíkur og hefur leikið á annað
hundrað leiki með liðinu í efstu deild.
Hann og Milan Stefán Jankovic hafa
unnið saman allar götur síðan 1992,
fyrst sem leikmenn en svo með núver-
andi hætti ef frá eru talin þau tvö ár sem
Milan Stefán þjálfaði Keflvíkinga. Það er
vitað að sem þjálfari heldur Milan Stefán
uppi miklum aga meðal leikmanna
sinna og því ekki óeðlilegt að einhvern-
tímann komi upp árekstrar í samstarfinu.
Ekki náðist í Óla Stefán sem fyrr segir og
því verður að koma í ljós hvort vilji sé
hans megin til að halda áfram sem leik-
maður Grindavíkur. Engin æfing var hjá
liðinu í gærkvöldi en það verður æft í
kvöld. Óli Stefán er boðaður á æfinguna.
JÓNAS ÞÓRHALLSSON HJÁ GRINDAVÍK: FUNDURINN MEÐ ÓLA STEFÁNI Í GÆR VAR GÓÐUR
Á ekki von á ö›ru en a› Óli Stefán spili áfram
FÓTBOLTI Knattspyrnuþjálfararnir
Bjarni Jóhannsson, sem nú þjálf-
ar karlalið Breiðabliks, og Njáll
Eiðsson eiga von á háspennuleik í
kvöld þegar Valur tekur á móti
FH að Hlíðarenda.
Bjarni á von á hörkuleik.
„Þetta verður einn af úrslitaleikj-
um þessa móts. FH hafa staðið
fyllilega undir væntingum á með-
an Valsmenn hafa komið svolítið á
óvart, og liðin eru að mínu mati
mjög jöfn. Bæði liðin eru sterk í
vörn og sókn, það eru lítill getu-
munur á liðunum.“
Bjarni segir framlag Guð-
mundar Benediktssonar og
Tryggva Guðmundssonar geta
skipt sköpum í leiknum.
„Þetta eru leikmenn sem geta
gert óvænta hluti. Þeir eru báðir
heitir núna og því geta úrslitin al-
veg eins ráðist á þeirra leik.“
Njáll Eiðsson, fyrrum þjálfari
Vals, á von á jafnteflisleik.
„Þetta er athyglisverður leikur.
Magnaður árangur hjá báðum lið-
um að vinna fimm fyrstu leiki
sína þetta sannfærandi. Liðin eru
með ólíkt leikskipulag en eru þó
með sterka leikmenn í öllum stöð-
um. Ég hugsa að þetta endi með
jafntefli, en vonandi fá áhorfend-
ur markaleik.
Leikurinn hefst klukkan 20.00
en fyrr um daginn er hátið á
Hlíðarenda þar sem Valsmenn
kveðja gamla íþróttahúsið sitt og
taka um leið fyrstu skóflu-
stunguna að nýja íþrótthúsinu
sem er að fara í byggingu á
Hlíðarenda. Valsmenn hafa sett
upp sérstakan fjölskyldudag þar
sem allir ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi.
Það má því búast við fjölmenni
á Hlíðarenda í kvöld enda er
komin langur tími síðan að
Valsmenn fengu toppslag á sínum
heimavelli en þeir unnu
íslandsmeistaratitilinn síðast 1987
eða fyrir 18 árum síðan. Þeir sem
komast ekki á völlinn geta horfa á
leikinn á sjónvarpstöðinni Sýn
sem sýnir hann beint. -mh
Toppslagur Vals og FH í Landsbankadeildinni í kvöld:
Gu›mundur e›a Tryggvi
geta rá›i› úrslitunum
7 STOÐSENDINGAR Guðmundur Bene-
diktsson hefur lagt upp sjö af 15 mörkum
Valsmanna og alls komið að 9 mörkum
liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
7 MÖRK Í 5 LEIKJUM Tryggvi Guðmunds-
son hefur verið óstöðvandi það sem af er
íslandsmótisins. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
HVERJIR FAGNA Á HLÍÐARENDA Í KVÖLD Það má búast við fjölmenni á Hlíðarenda í kvöld
þegar Valsmenn taka á móti FH í toppslag Landsbankadeildarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA