Fréttablaðið - 20.06.2005, Síða 80
36 15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Kvikmyndin Leðurblökumaður-
inn: Upphafið verður frumsýnd í
kvöld. Þetta er ein stærsta sum-
armynd ársins en hún var að
hluta til tekin upp hér á landi.
Myndin hefst þegar Bruce Way-
ne er átta ára og verður vitni að
morði foreldra sinna. Hann flýr
frá Gotham til þess að leita rétt-
lætis og kemur til baka tilbúinn,
fullur sjálfstrausts, til þess að
hefna og með nægjanlega þekk-
ingu. Hann fær aðstoð frá göml-
um fjölskylduvini, Lucuios Fox,
sem aðstoðar hann við að búa til
goðsögnina Leðurblökumaður-
inn.
Óvenjulegt leikstjóraval
Þrátt fyrir að Leðurblökumaður-
inn sé nánast ódrepandi munaði
minnstu að hörmungin árið 1997
hefði gert út um hann. Þá klædd-
ist George Clooney búninginum
og kvikmyndagagnrýnendur
hökkuðu myndina í sig. Það var
því stórfrétt þegar Warner Bros
tilkynnti gerð fimmtu myndar-
innar. Það þótti jafnvel enn meiri
tíðindum sæta að Chris Nolan
hefði verið fenginn til þess að
leikstýra. Warner Bros töluðu
ekki við Chris Nolan fyrst. Joel
Schumacher, sem gerði slysið
1997, var fyrst boðið en þegar
hann hafnaði því töluðu þeir við
David Fincher, leikstjóra Seven.
Á tímibili voru uppi hugmyndir
að hafa Leðurblökumanninn
gamlan og fá Clint Eastwood til
að leika og leikstýra. Myndin átti
þá að vera minningarbrot Leður-
blökumannsins.
Þeir hættu við það og fengu
Chris Nolan til þess að sjá um að
koma goðsögninni á réttan kjöl.
Nolan hófst strax handa og þegar
hann hafði fengið til sín allt
starfsfólk bauð hann því á kvik-
myndasýningu. Myndin sem
hann sýndi þeim var Blade Runn-
er og ástæðan: Það var svona
mynd sem hann ætlaði að gera.
Hann fékk David Goyer til að
skrifa handritið sem studdist við
myndasögur Franks Miller og
báru heitið Leðurblökumaður-
inn: Fyrsta árið.
Bandaríski geðsjúklingurinn í
búninginn
Chris Nolan er hálfblautur á bak
við eyrun miðað við fjölda þeirra
kvikmynda sem hann hefur leik-
stýrt. Hann gerði Memento eftir
handriti bróður síns með Guy Pe-
arce í aðalhlutverki. Myndin var
ódýr í framleiðslu en vakti tölu-
verða athygli.
Nolan fékk mun stærri leik-
ara til liðs við sig fyrir næstu
mynd en þá léku þeir Al Pacino
og Robin Willliams í Insomnia,
enn einum sálfræðitryllinum.
Batman Begins er því eingöngu
hans þriðja alvöru mynd en hann
hafði gert tvær myndir sem ekki
höfðu vakið neina athygli.
Valið á Christian Bale sem
Leðurblökumanninum kom
nokkuð á óvart. Bale er engin
stórstjarna í Hollywood en á
langan feril að baki. Hann var
ungur að árum þegar hann fékk
sitt fyrsta alvöru kvikmynda-
hlutverk. Það var í kvikmyndinni
Empire Of the Sun sem Steven
Spielberg leikstýrði. Myndin var
margverðlaunuð og Bale varð
hálfgerð unglingastjarna. Þrett-
án árum eftir að hann hafði leik-
ið Jim, enska drenginn sem
dregst inn í seinni heimstyrjöld-
ina, kom Bale aftur fram á sjón-
arsviðið sem geðsjúklingurinn
Patrick Bateman í American
Psycho.
Það verður varla annað sagt en
að bæði Bale og Nolan hafi fengið
til liðs við sig sterka leikmenn.
Gary Oldman leikur einu óspilltu
lögguna í Gotham og Michael Caine
er ráðagóði þjónninn Alfred. Meðal
annarra leikara má nefna Liam
Neeson og Morgan Freeman.
LEÐURBLÖKUMAÐURINN Þegar Bruce snýr aftur til Gotham er borginni stjórnað af glæpamönnum. Hann ákveður því að horfast í augu við tilgang sinn og verður Leðurblökumaðurinn
Le›urblökuma›urinn sn‡r aftur
STÓRSTJÖRNUR HJÁ SVÍNA-
FELLSJÖKLI Christian Bale og
Liam Neeson æfa sig hjá Svína-
fellsjökli. Ísland kemur töluvert
við sögu í myndinni en þeir eiga
í rauninni að vera í Tíbet.
ALVÖRU TRYLLITÆKI
Kvikmyndarinnar um upphaf Le›urblökumannsins hefur veri› be›i› me› óflreyju. fia› eru komin átta ár sí›an slysi› Batman &
Robin kom fyrir sjónir kvikmyndahúsagesta og eru margir spenntir a› sjá hvernig til takist a› reisa söguhetjuna úr öskustónni.
LEÐURBLÖKUBÍLLINN Bíllinn er mikil smíði og er með 44 tommu Hum-
mer dekk að aftan. Þess má til gamans geta að bílnúmerin í Gotham eru gerð
eftir þeim sem íbúar Illinios notast við.
Þar sem Leðurblökumaðurinn er ekki gæddur neinum
ofurkröftum eins og Ofurmennið og Köngulóarmaður-
inn þarfnast hann tækja sem auðvelda honum barátt-
una gegn illum öflum í Gotham. Margir muna eftir
klassískri setningu Jacks Nicholson í fyrstu myndinni
um Leðurblökumanninn þegar hann öskraði. „Hvar
fær hann öll þessi yndislegu leikföng?“
Meðal þeirra leikfanga sem Leðurblökumaðurinn
hefur til umráða er bíllinn. Þetta er ekkert venjulegt
tryllitæki því hann er ekki nema sex sekúndur að ná
sér upp í tæplega hundrað kílómetra hraða.
Enginn bíll var notaður sem fyrirmynd því bíllinn
er algjörlega hannaður frá toppi til dekkja. Christian
Bale sagði í kynningarviðtölum að bíllinn minnti hann
mest á blending af Lamborghini og Hummer. Katie
Holmes, sem leikur æskuást Bruces Wayne, Rachel
Dawes , sagði að hún skildi bíladellu karlmanna eftir
að hafa fengið að þeysast um í bílnum.
Bíllinn komst þó ekki óskemmdur frá öllum tökum
en þó er skondnastur sá árekstur sem varð í Chicago
þegar verið var að taka þar upp atriði. Drukkinn öku-
maður ók vísvitandi inn í bílinn, en sem betur fer slas-
aðist enginn. Ökumaðurinn hélt því fram að bíllinn
væri í eigu geimvera sem væru að ráðast á jörðina.
Þetta olli ekki mikilli kátínu þeirra sem höfðu setið
sveittir að hönnun bílsins því að svo vel var hugsað um
hann að áhættuökuþórarnir fengu skilaboð um að taka
öllu með ró. Þegar bíllinn var fluttur á milli staða tóku
vörubílarnir sér góðan tíma þannig að oftar en ekki
bárust fréttir af umferðaröngþveiti vegna þessa.
BRUCE WAYNE Bruce er ein-
ungis átta ára þegar óþokkar
myrða fjölskyldu hans fyrir fram-
an augun á honum. Hann flýr og
flakkar um heiminn til þess að
leita að tilgangi lífs síns.