Fréttablaðið - 27.06.2005, Page 4
4 27. júní 2005 MÁNUDAGUR
FÍB fer yfir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur:
A›ildarleysi FÍB árétta›
DÓMSTÓLAR Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur sýknað Samkeppnis-
ráð af kröfum Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB) og þrota-
bús Alþjóðlegrar miðlunar ehf.,
sem bauð um tíma bifreiðatrygg-
ingar. FÍB og þrotabúið vildu fá
felldan úr gildi úrskurð úrskurð-
arnefndar samkeppnismála frá
því í fyrra. Þar var FÍB og félag-
inu synjað um gögn þar sem þau
áttu ekki aðild að málum.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir verið
að fara yfir dóminn og ákvörðun-
ar um áfrýjun sé að vænta á
næstu vikum. Hann kvaðst sem
fyrr undrandi á að FÍB skyldi,
sem almannasamtök, ekki vera
talið eiga hagsmuni að málinu.
FÍB og Alþjóðleg miðlun vildu í
upphafi fá afhent gögn sem lágu
til grundvallar úrskurði Sam-
keppnisráðs um samráð trygg-
ingafélaga.
„Sigur hefði í för með sér að
stjórnvöld þyrftu að taka upp
fyrri ákvarðanir og þarf væntan-
lega ákveðinn kjark hjá dómara
til þess að taka ákvörðun um
það,“ segir Runólfur og telur
ekki útilokað að kjarkinn sé að
finna í Hæstarétti. „Að minnsta
kosti eru fleiri dómarar um
hituna þar.“
-óká
MÓTMÆLI „Það er lokað fyrir öll
skynfæri fanganna í Guant-
anamo-fangelsinu á Kúbu með
eyrnahlífum, rykgrímum og
augnhlífum, svo eru þeir látnir
sitja þannig í hnipri í allt að 45
mínútur. Við vildum leyfa fólki
að kynnast því hvernig það er að
verða fórnarlamb slíkra að-
ferða. Svo getur fólk spurt sig
sjálft að því hvort um pyntingar
sé að ræða,“ segir Jón Þór Ólafs-
son, forsvarsmaður aðgerð-
ahópsins innan Amnesty
International, sem stóð fyrir
uppákomunni á Austurvelli í
gær en 26. júní er alþjóðlegur
dagur Sameinuðu þjóðanna til
stuðnings fórnarlömbum pynt-
inga.
Jón segir að um 25 manns
hafi kynnst aðferðum Banda-
ríkjastjórnar af eigin raun á
Austurvelli í gær.
Viðstöddum gafst kostur á að
skrifa undir áskorun þar sem
skorað er á íslensk stjórnvöld að
beita sér fyrir því að Banda-
ríkjastjórn gefi leyfi sitt til að
fram fari rannsókn á öllum
ásökunum um illa meðferð á
föngum í Guantanamo og að hin-
ir ábyrgu verði látnir svara til
saka komi í ljós að í fangelsinu
sé notast við ólöglegar aðferðir.
Meira en 70 manns skrifuðu
undir áskorunina og heldur und-
irskriftasöfnun áfram á næst-
unni. Áskorunin verður í kjöl-
farið send til íslensku ríkis-
stjórnarinnar.
„Meginkrafa Amnesty er að
þeir sem bera ábyrgð á pynting-
unum verði látnir svara til saka;
að Amnesty eða svipuð samtök
fái að skoða aðstæður í þessum
fangabúðum og að eftirlitsfull-
trúi SÞ fái óheftan aðgang að
búðunum, í samræmi við alþjóð-
legan samning sem bannar pynt-
ingar, en honum hefur hingað til
verið neitað um aðgang. Fjórða
krafan er að þeir sem eru í haldi
vegna stríðsins gegn hryðju-
verkum fái réttláta málsmeð-
ferð fyrir dómsstólum, og að
þeir verði leystir úr haldi ef
engar ákærur liggja fyrir að því
loknu. Síðasta krafan er að Gu-
antanamo verði lokað,“ segir Jó-
hanna K. Eyjólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Íslandsdeildar
Amnesty International, um
kröfur nýs samræmds átaks
Amnesty gegn pyntingum í
heiminum sem hófst formlega í
gær. ingi@frettabladid.is
RÚSTIR EINAR Írakar safnast í kringum
brak bíls sem var sprengdur í borginni
Samarra í gær. Níu létust í árásinni.
Sjúkrahúsið í Neskaupstað:
Snei›mynda-
tæki a› gjöf
SJÚKRAHÚS Hollvinasamtök Fjórð-
ungssjúkrahússins í Neskaup-
stað gáfu nýverið sjúkrahúsinu
tölvusneiðmyndatæki af full-
kominni gerð.
Um tvo mánuði tók að koma
tækinu fyrir þar sem brjóta
þurfti niður veggi og samræma
rými. Ekki hefur enn verið ráð-
inn geislafræðingur að FSN en
unnið er úr myndgreiningum á
hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri. Mikill sparnaður felst
í því að þurfa ekki að senda
sjúklinga norður eða suður til
sneiðmyndatöku, en árlega hafa
verið sendir um 500 sjúklingar í
slíka meðferð. - eg
Rice skorar á Ísraela:
Ekki frekari
landtökur
JERÚSALEM, AP Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hefur beint þeim til-
mælum til Ísraelstjórnar að hún
hætti að stækka landtöku-
byggðir gyðinga á vesturbakka
Jórdanar.
Hún segir að Bandaríkja-
stjórn ekki samþykkja nýjar
byggðir gyðinga á svæðum
Palestínumanna. Þetta tjáði hún
ísraelskum stjórnvöldum ný-
verið í heimsókn sinni þar en
stjórnvöld greindu frá þessu í
gær. Ísraelsk stjórnvöld eru því
á milli steins og sleggju enda há-
værar kröfur landtökumanna
um að fá að leggja undir sig
meira landsvæði. ■
VEÐRIÐ Í DAG
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,92 66,24
120,15 120,73
79,58 80,02
10,68 10,75
9,97 10,03
8,45 8,50
0,60 0,61
96,41 96,99
GENGI GJALDMIÐLA 24.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
112,16 +0,09%
Íslendingar til Palestínu:
Fimm flegar
skrá›ir
HJÁLPARSTARF Hjá félaginu Ísland-
Palestína er enn tekið við um-
sóknum um vist í alþjóðlegum
æskulýðsbúðum í Nablus 20. júlí
til 5. ágúst. Þegar hafa fimm
verið skráðir.
Í búðunum, sem palestínsku
læknahjálparsamtökin (UPRMC)
standa að, tekur fólk á aldrinum
20 til 35 ára þátt í sjálfboðastarfi
í gömlu borginni, flóttamanna-
búðum og þorpum í kringum
Nablus. Þátttakendur greiða
sjálfir fargjaldið til Palestínu, en
UPRMC sér um húsnæði og veita
100 evrur í styrk fyrir mat og
öðru tilfallandi. Í tilkynningu fé-
lags Íslands-Palestínu segir
einnig að í undirbúningi sé þátt-
taka í alþjóðlegri kvennaráð-
stefnu í Jerúsalem dagana 12. til
16. ágúst.
-óká
TÆKIÐ SKOÐAÐ Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra og Hannes Þór Baldursson virða
tækið fyrir sér.
ERLENT
FLUGVÉL SNÚIÐ VEGNA HNÍFS
Flugvél frá American Airlines
sem lagði upp frá Chicago á
leiðinni til Rómar var snúið við
eftir að farþegi fann lítinn hníf
um borð. Hnífurinn fannst um
klukkustund eftir flugtak og
var hann í poka sem innihélt
teppi og kodda. Viðsnúningur-
inn var af öryggisástæðum
samkvæmt talsmanni flug-
félagsins því ekki var vitað
hvernig hnífurinn komst í
pokann.
SKYNLEYSI Fólki sem var á Austurvelli í gær gafst kostur á að kynnast þeim aðferðum
sem Bandaríkjastjórn notar á fanga sína á Kúbu en þær ganga út á að loka fyrir öll skiln-
ingarvit fanganna.
RUNÓLFUR ÓLAFSSON Runólfur, sem er
framkvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, segir niðurstöðu Héraðs-
dóms Reykjavíkur í kærumáli samtakanna
á hendur Samkeppnisráði nokkur von-
brigði. Verið er að skoða mögulega áfrýjun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Mótmæltu pyntingum
Íslandsdeild Amnesty International mótmælti yfriheyrslua›fer›um
Bandaríkjastjórnar í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu me› uppákomu á
Austurvelli í gær. Gestir og gangandi gátu sett sig í spor fanganna.