Fréttablaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 18
Skipasund 82, 104 Reykjavík – S. 552 – 6255
www.ammaruth.is • Opið virka daga 14-18
Flestir gömlu
mánaðarbollarnir til
-sendi í póstkröfu
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Golfáhugamenn athugið
Nú er rétti tímin til að setja niður púttholu í garðinn
Upplagt í sumarbústaðinn eða garðinn heima
Tilboð 1
1 stk stöng með áföstu númeri og bolla kr 4.900
Tilboð 2
1 stk stöng með flaggi og bolla kr 7.900
Leigjum út holuskera
]Viðhaldsfrír garðurEf þú vilt losna við mosann, fíflana og garðsláttinn er tilvalið að helluleggja garðinn.Gerðu ráð fyrir að hafa nokkur tré eða komdu fyrir stórum blómakerum og fallegumhúsgögnum og garðurinn verður sannkölluð paradís. [
Hægt að hleypa upp skógi
við fráleitar aðstæður
Björn Jónsson segist hafa gert öll hugsanleg mistök við skógrækt og þess vegna sé hann vel til þess fallinn að leiðbeina fólki.
Björn Jónsson, fyrrverandi
skólastjóri Hagaskóla, segir
skipulag og framtíðarsýn
mikilvæg við skógrækt.
Björn Jónsson hefur stundað skóg-
rækt í ein 30 ár og hefur lengi kennt
námskeiðið skógrækt áhugamanns-
ins hjá Skógræktarfélagi Íslands.
Hann er ekki faglærður skógrækt-
armaður en hann hefur fengist við
það svo lengi að hann segist hafa
gert öll mistökin og viti orðið ná-
kvæmlega hvernig sé best að
standa að málum. „Ég spara fólki
mistökin og þá kemst það á fleygi-
ferð,“ segir Björn, sem er kennari
og fyrrverandi bóndi og fyrrver-
andi skólastjóri í Hagaskóla.
„Það er stórt atriði að fólk hugsi
áður en það fer að stinga niður
trjám,“ segir Björn og telur það
nauðsynlegt að fólk sjái fyrir sér
hvernig það vilji að landið líti út
eftir nokkur ár. „Fólk þorir oft ekki
að hafa væntingar þegar það setur
niður plönturnar og er sannfært um
að þetta taki allt svo langan tíma,“
segir Björn. Hins vegar segir hann
nauðsynlegt fyrir fólk að setja sér
raunhæf markmið og á aðeins fimm
árum sé hægt að ná plöntum upp í
góða hæð. „Maður verður að hafa
eitthvað til að keppa að,“ segir
Björn.
Hann segir engar sérstakar regl-
ur gilda um hvernig eigi að raða upp
plötunum, það fari algerlega eftir
smekk hvers og eins. Fólk þurfi
aftur á móti að hafa í huga að koma
fyrir göngu- og akstursleiðum og
jafnvel að útbúa rjóður. „Maður
þarf að geta gengið eða ekið um
skóginn, það er ekkert gaman að
horfa á einhverja þúst utan frá,“
segir Björn.
„Hægt er að hleypa upp skógi
við fráleitar aðstæður,“ segir Björn
en mýri segir hann hins vegar
erfiða og best sé bara að útbúa þar
tjörn. ■
VAL Á PLÖNTUM VIÐ SUMARBÚSTAÐ:
Tegundaval fer eftir jarðvegi, staðháttum og smekk ræktunarfólks. Gott er að hafa
blandaðan gróður í útivistarskógi sínum, t.d. laufgróður og barrgróður, en gæta þess
að hafa vænt bil á milli plantna til þess að gróðurinn njóti sín síðar þegar hann er
orðinn að veglegum trjám.
BJÖRN JÓNSSON, SKÓGRÆKT ÁHUGAMANNSINS.
Hjá Áhaldaleigunni fengust þær upplýsingar að sláttuvélar, mosa-
tætarar og jarðvegstætarar stoppuðu stutt við og sömuleiðs væru
800 kílóa smágröfurnar vinsælar.
Í Húsasmiðjunni eru jarðvegsþjöppur og sláttuvélar rifnar út og
bílflutningakerrur af öllum stærðum ásamt hvers kyns áhöldum í
garðinn. Ýmist er hægt að leigja verkfæri fyrir daginn eða til lengri
tíma.
Í Byko er hægt að leigja allt frá borðbúnaði upp í stórar gröfur, en
mest er spurt um garðáhöld, háþrýstidælur og ýmiss konar bora.
Þá er mikið tekið af keðju- og steinsögum, en hjá Byko er líka
hægt að leigja borðbúnað í veisluna og tjöld í útileguna. Hvergi
þarf að panta áhöld með fyrirvara, nema hoppukastalana og
trampólínin hjá Byko, sem þarf að panta með nokkurra daga fyrir-
vara.
Sniðugt að leigja áhöldin
BORÐBÚNAÐUR, TJÖLD OG HOPPUKASTALAR STOPPA STUTT VIÐ
EKKI SÍÐUR EN GRÖFUR, SLÁTTUVÉLAR OG BORAR.
Sumarið er tími framkvæmda og þá getur verið gott að leigja
græjurnar.
Hér er sitkagreni stungið niður í gróður-
lausan sand en hrossatað og blákorn
tryggja vöxt fyrstu árin.
Skógarstígur er fyrst og fremst leið til að njóta grósku og fuglalífs.
Ökuleið er sjálfsögð í skógræktarreit
áhugamannsins ef um allstórt land er að
ræða.
M
YN
D
IR
B
JÖ
R
N
J
Ó
N
SS
O
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L