Fréttablaðið - 27.06.2005, Page 37
21MÁNUDAGUR 27. júní 2005
Miðtún, Selfossi 136m2 4ra herb.
Um er að ræða vel byggt og skemmtilega hannað raðhús, í vin-
sælu hverfi “utan ár” á Selfossi. Eignin sem er á þremur pöllum
telur á miðpalli: forstofu, forstofuherbergi, hol, eldhús, þvotta-
hús og wc, úr holi er gengið upp tröppur á efst pall hússins en
þar eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. Úr holi er einnig
gengið niður á neðsta pall hússins en þar er alrými, sem gæti
hentað fyrir stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og hugsanlega
garðskála. Gólfefni eru fín ljóst plastparket á öllu nema votrím-
um og flísar og málað gólf á votrímum. Eignin er vel staðsett
með flottu útsýni til vesturs, en ekki eru fyrirhugaðar byggingar
í næsta nágrenni enda stendur húsið í jaðri byggðarinnar.
Verð: 20.800.000.-
Birkivellir, Selfossi 83m2 2ja herb.
Um er að ræða snyrtilega íbúð í tvíbýlishúsi í vinsælu grónu
hverfi á Selfossi. Eignin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti,
eldhúsinnrétting er ný og nýjar flísar eru á eldhúsi, baðherbergi
og þvottahúsi. Allar lagnir í hafa einnig verið endurnýjaðar, sem
og gler og glerlistar. Baðinnrétting er nýleg. Á stærstum hluta
gólfa er plastparket. Garðurinn er gróinn og skjólsæll, en nýlega
var steypt gangstétt og verönd aftan við húsið úr srautsteypu
og tilheyrir veröndin íbúðinni.
Verð: 14.100.000.-
Á R B O R G I R • A u s t u r v e g i 3 8 • 8 0 0 S e l f o s s • S í m i 4 8 2 4 8 0 0 • F a x : 4 8 2 4 8 4 8 • w w w . a r b o r g i r . i s
Kálfhólar, Selfossi 4ra herb. 160m2
Um er að ræða glæsileg og vel hönnuð 129,9 fm parhús ásamt
29,7 fm sambyggðum bílskúr sem verið er að byggja í Suður-
byggðinni. Húsin eru byggð úr timbri og klædd að utan með
Duropalklæðningu. Eigninar telja skv. teikningu forstofu, eldhús,
búr, rúmgóða stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi.
Þvottahús og geymsla er innaf bílskúr. Innangengt er í bílskúr úr
forstofu. Gólfhiti sem er hitastýrður í hverju herbergi. Lóð verð-
ur grófjöfnuð, og húsin seljast á byggingarstiginu fokhelt að inn-
an og fullbúið að utan.
Verð: 15.900.000.-
Bræðratunga, Stokkseyri 5 herb 196m2
Höfum fengið til sölumeðferðar einbýlishús á tveimur hæðum
auk kjallara á Stokkseyri. Á efri hæð er gott stofurými og eitt
svefnherbergi og þar er allt panilklætt. Á hæðinni er stofa, 2
svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og forstofa.Parket er á öllu
nema forstofu. Eignin hefur verið tekin í gegn að hluta s.s allar
rafmagns og pípulagnir, einangra veggi og þykkja þá og eitt og
annað en eitthvað er eftir fyrir nýjan eiganda. Kjallarinn er óskrif-
að blað. Þetta er spennandi eign á góðum stað á Stokkseyri.
Eignin stendur á 2ja hektara leigulóð.
Verð:14.500.000.-
Sigurður Fannar
Guðmundsson
sölumaður
Anna Björg
Stefánsdóttir
ritari/sölumaður
Magnús Ninni
Reykdalsson
sölumaður
Guðjón Ægir
Sigurjónsson
hdl.
Óskar
Sigurðsson
hdl.
Gauksrimi, Selfossi 5 herb. 212m2
Um er að ræða reisulegt einbýlishús í grónu hverfi á Selfossi. Húsið er á tvemur hæðum. Eignin telur á neðri hæð: for-
stofi, forstofuherbergi, þvottahús og geymslu, lítið wc, hol, eldhús og stóra og rúmgóða stofu og borðstofu. Á efri hæð:
3 svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpshol. Gólfefni hússins eru góð, flísar á neðri hæð og parket á efri hæð. Inn-
réttingar eru góðar, í eldhúsi sérsmíðuð beykiinnrétting með hvítri plaslagningu. Baðherbergi á efri hæð er flísalagt í hólf
og gólf, með baðkari og sturtuklefa. Innra skipulag hússins er mjög gott og skemmtilegt. Bílskúrinn er fullbúinn stór og
rúmgóður og garðurinn er gróinn, snyrtilegur með hitalögn í gangstétt, sem er hellulögð, að framan. Verönd er í bak-
garði og einnig er búið að helluleggja að hluta, heitur pottur er í bakgarði hússins. Það má segja að um mjög vandað
sérlega vel byggt einbýlishús sé að ræða, áhugaverð eign sem vert er að gefa frekari gaum.
Verð: 28.000.000.-
Neðri sérhæð er118,2 m2, 4ra herbergja sérhæð með sérinngangi, efri hæð er 145.5 m2,
5 herbergja sérhæð með sérinngangi auk 26.9 m2 bílskúrs. Húsið verður staðsteypt en
klætt að utan með sléttri Steni klæðningu. Á jarðhæð er gert ráð fyrir hjóla og vagna-
geymslu. Gluggar og hurðir eru ljósmálaðir með tvöföldu verksmiðjugleri. Lóð verður
þökulögð og gangstétt að húsi verður steypt með mynstursteypu. Eldhús innrétting verð-
ur eikarinnrétting frá Cego, Ariston tæki í eldhúsi, baðherbergi verður flísalagt og með
eikarinnréttingu og Grohe hreinlætistækjum. Fataskápar og innihurðir verða með spón-
lagðri eik. Suður garður fylgir neðri hæðum en góðar suður svalir efri hæðum. Sérhæðir
á frábærum stað, örstutt í leikskóla, grunnskóla og verslun.
Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar Magnússon í s. 898-1177 eða á
skrifstofu Húseignar í síma 585-0100
Baldvin
sölumaður
Baugakór 2 Kópavogi
Sérhæðir • 118.8 fm og 145.5 fm auk 26.9 fm bílskúrs • 4ra og 5 herb.
27.500.000 og 35.500.000
Húseign kynnir stórglæsilegar sérhæðir í Kórahverfi í Kópavogi,
neðri og efri sérhæðir. Rúmgóður bílskúr fylgir efri hæðunum.
Guðmundur St.Ragnarsson löggiltur fasteignasali og hdl.