Fréttablaðið - 27.06.2005, Qupperneq 66
Þegar Skógræktarfélag Íslands
var stofnað fyrir 75 árum setti
það sér þúsund ára markmið.
Megintilgangurinn við stofnun
félagsins árið 1930 var að endur-
heimta gróður sem hafði verið í
landinu við landnám. Þá var sett
það markmið að á tvö þúsund ára
Alþingishátíð yrði landið vaxið
skógi milli fjalls og fjöru á ný.
Magnús Jóhannesson, for-
maður Skógræktarfélags Íslands,
segir að fyrir 1930 hafi verið
mjög lítið að gerast í skógrækt.
Upphafið sé þó rakið til alda-
mótanna þar síðustu þegar furu-
lundur var gróðursettur á Þing-
völlum. Við það hafi um tíma
aukist áhugi á skógrækt og fólk
gróðursetti í garðinum heima hjá
sér. Skógrækt ríkisins var síðan
stofnuð árið 1907 en fram undir
1930 var aðaláherslan lögð á að
vernda þann skóg sem fyrir var
og ekki fyrr en eftir þann tíma að
skógrækt færðist í aukana.
„Fólk hafði almennt ekki neina
trú á því að skógur gæti vaxið á
Íslandi og tók um fimmtíu ár að
sannfæra Íslendinga um það,“
segir Magnús og telur það eitt
helsta afrek félagsins að sann-
færa íslensku þjóðina um að
hægt væri að rækta skóg á Ís-
landi og einnig nýta skóginn.
„Mikill skilningur er meðal
þjóðarinnar um skógrækt,“ segir
Magnús og bendir á sér til
stuðnings könnun sem gerð var
nýlega þar sem níutíu prósent
töldu skógrækt vera góða fyrir
land og þjóð.
Í tilefni afmælisins voru átta
félög um allt land með sérstaka
skógardaga um helgina. Á laugar-
dag var haldinn hátíðarfundur á
Þingvöllum þar sem gróðursett
voru 75 tré. Var þetta gert í til-
efni afmælis félagsins en einnig
til heiðurs Frú Vigdísi Finnboga-
dóttur sem er mikill stuðnings-
maður félagsins og varð einnig 75
ára á árinu. „Hún er bara tveimur
mánuðum eldri en félagið,“ segir
Magnús, sem gerir sér vonir um
að markmið upphafsmanna Skóg-
ræktarfélagsins náist. ■
18 27. júní 2005 MÁNUDAGUR
JACK LEMMON (1925-2001)
- lést þennan dag.
Þúsund ára markmið
SKÓGRÆKTARFÉLAG ÍSLANDS: 75 ÁRA
timamot@frettabladid.is
MAGNÚS JÓHANNESSON Formaður Skógræktarfélags Íslands telur mesta afrek félags-
ins verið að sannfæra íslensku þjóðina um að skógrækt sé möguleg.
Þennan dag árið 1991 réðst
júgóslavneskt herlið inn í Sló-
veníu aðeins 48 tímum eftir að
landið lýsti yfir sjálfstæði sínu.
Reynt var að ná stjórn á
landamærastöðvum landsins við
Ítalíu, Austurríki og Ungverjaland
auk þess sem ráðist var á flug-
völlinn við höfuðborgina Ljúblí-
ana. Nokkur viðbúnaður var í ná-
grannalandinu Króatíu, sem
einnig hafði sóst eftir sjálfstæði.
Strax á fyrsta degi höfðu nokkrir
látist og enn fleiri slasast en yfir-
völd Slóveníu neituðu að sættast
á þriggja mánaða vopnahléssam-
komulag sem forsætisráðherra
Júgóslavíu bauð. Kröfðust slóven-
ar þess að herlið yrði dregið til
baka áður en kæmi til samninga-
viðræðna.
Kommúnistaríkið Júgóslavía var
myndað af Marshall Tito árið
1945. Hann skipti ríkinu í sex
sambandslýðveldi, Króatíu, Svart-
fjallaland, Serbíu, Slóveníu, Bosn-
íu-Hersegóvínu og Makedóníu,
en aldrei var langt í spennu milli
þjóðflokka. Þó að sambandið
héldi í tíu ár eftir dauða Tito árið
1980 féll það fljótt saman eftir
sjálfstæðisyfirlýsingu Slóveníu.
Króatía og Bosnía fylgdu fljótlega
í kjölfarið en við það urðu miklar
stríðsdeilur við Serba sem vildu
byggja upp stærri og betri Serbíu.
Bitur átök þróuðust sem ein-
kenndust af miklum fjölda flótta-
manna, þjóðernishatri og ódæðis-
verkum af hendi allra hliða.
Óstöðugur friður komst ekki á fyrr
en í desember árið 1995.
27. JÚNÍ 1991
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1855 Gufuskip kemur til Íslands í
fyrsta sinn. Þetta var
danska skrúfuskipið Thor.
1885 Öxar við ánna, ljóð Stein-
gríms Thorsteinssonar við
lag Helga Helgasonar, var
flutt í fyrsta skipti við upp-
haf Þingvallafundar.
1921 Rafstöðin við Elliðaár er
vígð að dönsku konungs-
hjónunum viðstöddum.
1940 Þjóðverjar byrja að nota
Enigma-dulkóðunarvélina.
1950 Truman Bandaríkjaforseti
gefur fyrirskipun að senda
eigi hermenn til Kóreu.
1957 Sýnt er fram á bein orsaka-
tengsl milli reykinga og
lungnakrabbameins.
Júgóslavía ræ›st inn í Slóveníu
!!!
" #!!$ %&' ($ $
(
)$ * + !
, !"+ ($
$
!!-!
*$!" )+
. ! /
+ $,!( ,
%' "
#" ,
$ + 0
#! !"
#
+'!!$ " ' !#
1 )! ! +'$ '$ +( 2 (-$
$1 !"31 -$
$" 3 $
-$( ! 3 $,-$$ .+-$
&' $ " #+$+
4
!!$' !" '- #" # !'
-$ 25',
, 6"3, 1(- "3(+'1 '63($
- &167
89
+
$
5!,-
5
#
&' # + -## $ :
)$'!$; /' ;;8"# < 5 #
'
& //
'
!
#- )
'
)#'$" '$
)$
. ! % ( ',!=+('
- ! > ?9@ A:77
+ '
#
B :.
" '
# !
#
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir,
bróðir og afi okkar,
Ketill Högnason
tannlæknir, Melgerði 12, Kópavogi,
sem lést á Líknardeild Landspítalans 19. júní síðastliðinn, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 27. júní kl. 15.
Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á
Hjúkrunarþjónustuna Karítas eða aðrar líknarstofnanir.
Hildigunnur Davíðsdóttir
Kristín Halldórsdóttir
Helgi Ketilsson Guðrún Jóhanna Sveinsdóttir
Davíð Ketilsson Drífa Lind Gunnarsdóttir
Guðbjörg Ketilsdóttir Mikael Svend Sigursteinsson
Hildur Högnadóttir Haukur Högnason
og afabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Guðrún Ingibjörg Jónsdóttir
frá Ytri Veðrará,
sem lézt þriðjudaginn 14. júní, verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni þann 28. júní kl. 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Minningarsjóð Sunnuhlíðar.
Viðar Sigurjónsson Ólöf Jónsdóttir
Gunnhildur Sigurjónsdóttir
Þórður M. Adólfsson
Anna Ásgeirsdóttir
Barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
„Mistök ná sjaldnast að stöðva mann. Það
sem stöðvar mann er óttinn við að gera
mistök.“
- Jack Lemmon var ástsæll bandarískur gamanleikari. Hann er
þekktur fyrir myndir eins og Some Like It Hot og Grumpy Old Men.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
ANDLÁT
Júlíana Bender, lést á elliheimilinu
Grund sunnudaginn 12. júní. Útförin fór
fram í kyrrþey.
Þórey Kristjánsdóttir, Fljótaseli 13,
Reykjavík, lést á líknardeild Land-
spítalans Landakoti aðfaranótt sunnu-
dags 19. júní. Útförin fór fram í kyrrþey.
Þorgeir Haraldsson, Bjarkagrund 39,
Akranesi, lést á sjúkrahúsi Akraness
þriðjudaginn 21. júní.
Jórunn Axelsdóttir, Tunguseli 1, Reykja-
vík, lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, þriðjudaginn 21. júní.
Knútur G.F. Kristjánsson, húsasmíða-
meistari, Arnarhrauni 23, Hafnarfirði, lést
á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, miðviku-
daginn 22. júní.
www.steinsmidjan.is
JAR‹ARFARIR
13.00 Aðalbjörg Ásgeirsdóttir (Lalla),
Hlíðarhúsum 3, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
13.00 Margrét Þórdís Egilsdóttir gler-
listakona, Kambaseli 21, Reykja-
vík, verður jarðsungin frá Grafar-
vogskirkju.
13.30 Anton Ófeigur Antonsson, út-
skurðarmeistari (Tony trélist),
Munkaþverárstræti 11, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Hvíta-
sunnukirkjunni á Akureyri.
Tilkynningar um merkis-
atbur›i, stórafmæli, and-
lát og jar›arfarir í smá-
letursdálkinn hér a›
ofan má senda á net-
fangi›
timamot@frettabladid.is
Augl‡singar á a› senda
á
auglysingar@frettabladi
d.is e›a hringja í síma
550 5000.
MEÐ FULLT FANG Ekki væsti um litlu
stúlkuna í fanginu á þessari konu á
sýningu Smithsonian-safnsins á lifnaðar-
háttum hirðingja.