Fréttablaðið - 27.06.2005, Side 71

Fréttablaðið - 27.06.2005, Side 71
MÁNUDAGUR 27. júní 2005 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 24 25 26 27 28 29 30 Mánudagur JÚNÍ ■ ■ LEIKIR  20.00 Valur mætir KR að Hlíðarenda í Landsbankadeild karla.  19.00 Stjarnan fær ÍBV í heimsókn í Landsbankadeild kvenna.  20.00 ÍA mætir Keflavík á Akranesi í Landsbankadeild kvenna. ■ ■ SJÓNVARP  16.35 Helgarsportið á RÚV.  16.50 Fótboltakvöld á RÚV.  16.55 Álfukeppnin á Sýn.  19.20 Landsbankamörkin á Sýn.  19.40 Landsbankadeildin á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  23.15 Landsbankadeildin á Sýn. Tveir sáu rautt í Árbænum: Tryggvi rei›ur FÓTBOLTI „Það eru eðlileg viðbrögð að reiðast svona þegar maður fær svona skrýtið rautt spjald,“ sagði Tryggvi Guðmundsson eftir leik Fylkis og FH í gær en honum og Ragnari Sigurðssyni voru sýnt rauða spjaldið að loknum við- skiptum þeirra í síðari hálfleik. Þá fóru þeir upp í skallabolta og rak Tryggvi olnbogann sinn fremur illa í Ragnar. Óviljaverk, segir Tryggvi, en Ragnar reiddist mjög og óð í Tryggva. Báðir fengu rautt sem fyrr segir. „Hann er stærri maður en ég og vinnur skallaeinvígið. En ég fer illa í hann og hann meiðist. Sjálfsagt á ég að fá gult spjald fyrir brotið og þar á það að liggja. En hann verður svo vondur að dómarinn finnst að hann þurfi að gefa mér rautt líka til að jafna málin. Þetta er auðveld lausn á málinu fyrir dómarann en það er hundleiðinlegt að þurfa að sitja í næsta leik upp í stúku út af ein- hverju bulli. En maður verður að taka því eins og maður.“ - esá

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.