Fréttablaðið - 27.06.2005, Síða 78
30 27. júní 2005 MÁNUDAGUR
Lárétt: 1 ilma, 5 passlegt, 6 í röð, 7
ónefndur, 8 fótabúnað, 9 karlmannsnafn,
10 klaki, 12 bílaleiga, 13 mér að skapi, 15
tónn, 16 blóðsuga, 18 beljaka.
Lóðrétt: 1 annirnar, 2 tími dags, 3 tveir
eins, 4 stoðirnar, 6 áfall, 8 eyða, 11
urmul, 14 eins um l, 17 tvíhljóði.
Lausn.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
Svikna eiginkonan í Garðabæ:
SVARAR BUBBA
FULLUM HÁLSI
„Stend við allt sem
ég sagði um Brynju
“
Sjónvarpsmyndin The Girl in the
Café, sem meðal annars var tekin
upp að miklum hluta hér á landi
síðasta sumar, verður frumsýnd í
Sjónvarpinu 9. júlí. Myndin er úr
smiðju Richards Curtis sem
skrifaði meðal annars handrit að
myndunum Love Actually og Four
Wedding and a Funeral. Hún
fjallar um embættismann í breska
fjármálaráðuneytinu og atvinnu-
lausa unga konu sem hann hittir á
kaffihúsi. Með þeim tekst ágætur
vinskapur og býður hann henni
með sér til Íslands þar sem
fundur átta helstu iðnríkja heims
fer fram.
Myndin verður frumsýnd á
bandarísku sjónvarpsstöðinni
HBO á morgun.
Handritshöfundurinn Curtis
komst í hann krappan þegar hann
var að kynna myndina í London
fyrir skömmu en þar sakaði ís-
lenskur blaðamaður hann um að
hafa ekki kynnt sér staðhætti á
Íslandi nógu vel því erlendu þjóð-
arleiðtogarnir lenda allir í
Reykjavík en ekki á alþjóðaflug-
vellinum í Keflavík. ■
Kaffihúsastelpan í Sjónvarpinu
STELPAN Á KAFFIHÚSINU Með helstu hlutverk í myndinni fara Bill Nighy og Kelly
MacDonald.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Páll Skúlason
Japanskir
88%
Komandi helgi er önnur mesta ferðahelgi ársins, þegar
ungmenni á sumarvinnumarkaði fá útborguð sín fyrstu
laun og skipuleggja ferðir utan við bæinn til þess að
safnast saman. Til viðbótar stendur yfir hásumarleyfis-
tími og margir sækja í sumarbústaði og fjölbreytt
ferðalög.
Sigurður Helgason verkefnastjóri umferðaráróðurs og
fjölmiðlunar á Umferðastofu segir komandi helgi ekki
beinlínis kvíðvænlega, en beygur sé í brjóstum þeirra
sem starfa við umferðamál.
„Yfir sumarið er umferð á vegum landsins mjög þung,
en oft svo þung að menn hafa síður tækifæri til þess
að aka hratt, sem er jákvæða hliðin á málinu. Framúr-
og hraðakstur er mesta ógnin og valda flestum slysum
yfir sumartímann, en aðstæður sem þessar gera skil-
yrði til slíks hátternis mun verri,“ segir Sigurður og
bætir við að þjóðvegir til og frá borginni teppist
gjarnan á helgum sem þessum.
„Tappar myndast á leiðinni að Hvalfjarðargöngum og
austur fyrir fjall, og við ráðleggjum fólki að velja fleiri
leiðir en þessar hefðbundnu um Vestur- og Suður-
landsveg, til að minnka spennu á gatnamótum þeirra.
Við förum alltaf af stað í von um að allir leggist á eitt
og átti sig á ábyrgðinni sem fylgir því að stjórna bíl, því
sumarið er sá árstími þegar flest alvarleg slys verða.“
Sigurður segir hrað- og hættulegan akstur ekki ein-
skorast við ungt fólk, heldur fólk á öllum aldri sem of-
metur eigin ökuhæfni.
„Mín tilfinning er sú að ungir ökumenn sýni mikla
skynsemi og aðgát í umferðinni, þótt í þeirra hópi
finnist vitaskuld undantekningar
eins og hjá öðrum,“ segir Sigurður,
en bendir við hættu samfara
auknum fjölda fellihýsa á
vegunum, aukinni mótorhjólaeign
og aukinna þungaflutninga.
„Hjólhýsin auka spennu á vegum
þegar fólki finnst það fast fyrir
aftan, og fleiri flutningabílum fylgir
aukin hætta á slysum. Flestir
mótorhjólaeigendur eru á aldrinum
fjörtíu til sextíu ára, með gömul
ökuréttindi. Mótorhjólaakstur er
sérhæfður og krefst mikils undirbúnings. Því má lítið
út af bera til að slys verði ekki, og þarf oft ekki nema
lítinn stein til að illa fari, en bót er í máli að eldri
hópurinn er heldur rólegri á bensíngjöfinni en sá
yngri,“ segir Sigurður, sem hvetur alla ökumenn til að
gæta ítrustu gætni á ferðalögum sínum um landið.
SIGURÐUR HELGASON VERKEFNASTJÓRI UMFERÐARÁRÓÐURS OG FJÖLMIÐLUNAR HEFUR BEYG GAGNVART KOMANDI HELGI
SÉRFRÆÐINGURINN
SIGURÐUR
HELGASON
Varasöm fer›ahelgi framundan
...fær Eggert Pétursson mynd-
listarmaður fyrir það afrek að
hljóta önnur verðlaun norrænu
myndlistarverðlaunanna
Carnegie Art Award 2006, fyrir
sérstæð blómamálverk sem
endurspegla flóru Íslands.
HRÓSIÐ
Sigtryggur Baldursson, öðru
nafni Bogomil Font, vinnur að
mjög skemmtilegu verkefni þessa
dagana. Hann er framkvæmda-
stjóri trommukvartetts sem
spilar á gríðarstórar trommur
sem kallast parabólur. Með
honum í kvartettinum eru Stein-
grímur Guðmundsson, Davíð Þór
Jónsson og Helgi Svavar Helga-
son.
Það einkennilegasta við para-
bólurnar er að þær voru alls ekki
hugsaðar sem hljóðfæri. „Þessi
kvikindi eru í formlegri eigu
Fjarska sem er dótturfyrirtæki
Landsvirkjunar,“ segir Sig-
tryggur og á við trommurnar.
Sigvaldi Kaldalóns Jónsson,
rafeindavirki hjá Fjarska, segir
parabólurnar í rauninni vera loft-
net sem tekur á móti radíó-
bylgjum. „Þær eru margar
hverjar orðnar úreldar þar sem
fjarskiptin eru að breytast. Þau
fara sífellt minna fram í loftinu og
eru að færast yfir í ljósleiðarana í
jörðinni.“
Þegar Sigtryggur er spurður
hvernig þetta hafi allt byrjað, þá
segist hann hafa fyrst séð para-
bólurnar fyrir rúmu ári síðan.
Hann var að spila í Elliðaár-
dalnum og þegar hann gekk inn í
gömlu vararafstöðina þar, „brúna
kumbaldann“, þá var upplifunin
ævintýraleg. „Þetta var svona
eins og að vera Lísa í Undralandi
fyrir mig sem trommara. Ég sá
bara fullt af trommum í þessum
gömlu tækjum og uppveðraðist
allur,“ segir hann, en para-
bólurnar voru þar í geymslu.
Fyrir milligöngu góðra manna,
þar á meðal Kristins garðyrkju-
stjóra Orkuveitunnar í Elliðaár-
dal, fékk hann loftnetin í hend-
urnar. Sigtryggur segist harla
lítið hafa þurft að breyta para-
bólunum, helst hafi aðeins þurft
að strekkja dúkana.
Sigtryggur og félagar eru því
búnir að vinna með parabólurnar í
nokkurn tíma en þeir héldu
skemmtilega sýningu ásamt Götu-
leikhúsinu og fleirum 17. júní.
„Benóný Ægisson hafði samband
við mig um samstarf við Götuleik-
húsið og það gekk mjög vel,“ segir
Sigtryggur en takturinn glumdi
svo undirtók í miðbæ Reykja-
víkur þegar þeir slógu
trumburnar eins og berserkir við
engla- og djöflasýningu Götuleik-
hússins.
„Tónlistinni myndi ég lýsa sem
skipulagðri óreiðu,“ segir hann.
„Hluti af prógramminu er spuni
en við styðjumst samt við ákveðin
form.“
Þessi frumlegi trommukvar-
tett er bara rétt að byrja og takt-
geggjararnir fjórir ætla að halda
fleiri tónleika í sumar. „Já, við
verðum með fleiri tónleika og svo
stefnum við til útlanda, hugsan-
lega í samstarfi við Eimskip,“
segir Sigtryggur.
soleyk@frettabladid.is
GÖTULEIKHÚSIÐ Trommukvartettinn
kom fram með Götuleikhúsinu 17. júní.
Hér sést einn púkinn úr þeirri sýningu.
SIGTRYGGUR OG FÉLAGAR Sigtryggur sá tækifæri í gömlum tækjum í vararafstöðinni í Elliðaárdal.
SIGTRYGGUR BALDURSSON: VINNUR MEÐ GÖTULEIKHÚSINU
Trommar á úreld loftnet
M
YN
D
/J
O
R
R
I
Lárétt:1anga,5nóg,6st,7nn,8skó,9
jóel,10ís,12alp,13kær, 15la,16igla,
18ruma.
Lóðrétt:1annríkið,2nón,3gg,4stólp-
arnir, 6skell,8sóa,11sæg,14rlr, 17au.
Enginn viðbjóður