Fréttablaðið - 29.06.2005, Page 31

Fréttablaðið - 29.06.2005, Page 31
                                 !!" #     "     $       %  &   '      !  " !# $%% & ' ( !#) $%%***+  Bandaríski bankaræninginn John Dillinger var fæddur 22. júní 1903 og myndi því fagna 102 ára afmæli sínu um þessar mundir væri hann á lífi. Dillinger var alræmdur bankaræningi á fjórða áratug síðustu aldar og um tíma efstur á lista Alríkislögreglunnar yfir eftirlýstustu menn veraldar. Dillinger var ekki alslæmur því stóran hluta ránsfengs síns lét hann renna til þeirra sem minna máttu sín. Dillinger ólst upp í Indíana- fylki í Bandaríkjunum en náði aldrei að festa þar rætur. Árið 1923 var hann dæmdur til fang- elsisvistar fyrir að hafa í ölæði misþyrmt kunnum brodd- borgara í Indíana. Í fangelsinu fann Dillinger loks fjölina sína. Hann vingaðist við þekkta bankaræninga og drakk úr viskubrunni þeirra. Þegar Dillinger slapp úr vistinni kunni hann því til verka og hafði þá þegar stofnað glæpaklíku í eigin nafni og skipulagt fjölda rána. Dillinger-klíkan herjaði á næstu árum á Bandaríkin og fengu gríðarlega athygli í fjöl- miðlum. Sérstaklega þótti al- menningi mikið til Dillingers koma, sumir kölluðu hann ótýnd- an bófa en aðrir Hróa Hött. Flestir dáðust þó af honum fyrir íþróttamannslega framgöngu en Dillinger sýndi oft ótrúlega fim- lega tilburði við rán sín og slapp á undraverðan hátt úr klóm lag- anna varða. Dillinger var nokkrum sin- num stungið í fangelsi en slapp ávallt út jafnóðum og hélt upp- teknum hætti. Með tíð og tíma varð Dillinger þó nánast óþekkjanlegur enda gekkst hann undir fjölda lýtaaðgerða. Svo ör- uggur var Dillinger með nýja gervið að hann ákvað júlíkvöld eitt árið 1934 að skella sér í kvik- myndahús í Chicago-borg með unnustu sinni. Hann hefði betur sleppt bíó- ferðinni, því er myndinni lauk sat lögreglan um Dillinger og skaut hann til bana. Mikil reki- stefna myndaðist meðal sýn- ingargesta sem allir vildu næla sér í minjagripi. Næstu ár gengu vasaklútar útataðir blóði, hár- lokkar og fleira er sagt var tengjast Dillinger kaupum og sölum fyrir háar fjárhæðir. -jsk S Ö G U H O R N I Ð John Dillinger bankaræningi 102 ára 25 ÞÚSUND DOLLARA VERÐLAUN Dill- inger var um tíma eftirlýstasti maður Bandaríkjanna. Hann naut þó töluverðra vinsælda meðal almennings enda lét Dill- inger-klíkan stóran hluta ránsfjárins renna til þeirra er minna máttu sín. Rover-bílar seljast nú á spott- prís í Bretlandi, en eins og kunn- ugt er fór bílaframleiðandinn á hausinn með braki og brestum fyrir nokkrum misserum. Eftir gjaldþrotið stóðu heilu stæðurnar af nýframleiddum bifreiðum óhreyfðar í geymslu- húsum fyrirtækisins. Bílasalar gátu hins vegar ekki dregið pantanir sínar til baka og sitja því uppi með verðlausa mótorfákanna. David Rovers bílasali segist fyrst og fremst vilja losna við bílana: „Flesta seljum við með tapi eða örlitlum gróða.“ Kaupendur telja sig hins veg- ar geta gert kjarakaup og sagð- ist hinn 75 ára gamli Graham Hibbert hæstánægður með nýja bílinn, en hann fjárfesti í Rover 75 bifreið og greiddi aðeins 65 prósent uppsetts verðs. Sá galli fylgir þó kaupunum að engin ábyrgð er á bílunum og að Roverar ganga illa í endur- sölu. -jsk Íslamski þróunarbankinn, sem er viðskiptaarmur Alþjóðasamtaka múslimaríkja, OIC, hyggst stofna alþjóðlegan banka. Hann á að vera samkeppnishæfur við stærstu viðskiptabanka á Vestur- löndum. Var þetta tilkynnt í lok fundar þróunarbankans sem fjár- málaráðherrar aðildarríkjanna sátu. Fjármálaráðherrarnir hvöttu jafnframt aðildarríki samtakanna til að opna hagkerfi sín fyrir við- skiptum frá öðrum múslimaríkj- um og til að fella niður viðskipta- hindranir. „Betri efnhagsleg frammistaða mun auka velferð fólks okkar og um leið áhrif íslamskra þjóða á al- þjóðavettvangi,“ sagði Abdullah Ahmad Badawi, forsætisráðherra Malasíu, sem situr í forsæti OIC. Abdullah sagði stefnt að því að auka hagvöxt í ríkjum sam- takanna til muna á næstu tíu árum. Malasía hefur lengi verið leiðandi í OIC og þrýst á önnur að- ildarríki að taka upp frjálsari við- skiptahætti sín á milli. Ekki eru allir jafn ánægðir og Abdullah. Fjármálaráðherra Afganistans, Anwar ul-Haq Ahady, sagði land sitt ekki hafa efni á að taka lán hjá OIC: „Hvað höfum við að gera við banka? Við þurfum styrki, ekki lán,“ sagði Ahady öskuillur. -jsk Roverar á spottprís Fr ét ta bl að ið /G et ty Im ag es ELÍSABET ENGLANDSDROTTNING BROSIR Í HLIÐARSPEGIL ROVER-BIFREIÐAR SINNAR Elísabet getur nú fengið nýja Rover-bifreið með miklum afslætti því þær hafa fall- ið hratt í verði eftir gjaldþrot fyrirtækisins. Vilja íslamskan risabanka Fjármálaráðherrar 57 múslimaríkja hafa í hyggju að setja á fót íslamskan risa- banka. Þeir hvetja múslimaríki til að aflétta viðskiptahindrunum sín á milli. SPJALLAÐ Á LÉTTU NÓTUNUM Abdullah forsætisráðherra Malasíu og for- seti Íslamska þróunarbankans Mohamed Ali ráða ráðum sínum á fundi þróunar- bankans.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.