Fréttablaðið - 13.08.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 13.08.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 63,3 63,6 114,93 115,49 78,89 79,33 10,571 10,633 9,944 10,052 8,481 8,531 0,5781 0,5815 93,55 94,11 GENGI GJALDMIÐLA 12.08.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 109,8528 4 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Bresk stjórnvöld herða aðgerðir gegn öfgamönnum: Múslimaklerki meina› a› snúa aftur LONDON, AP Múslimaklerkurinn Omar Bakri fær ekki aftur að koma til Bretlands þar sem breska ríkisstjórnin telur veru hans í landinu ekki vera lengur „til almannaheilla“. Bakri, sem er með líbanskan og sýrlenskan ríkisborgararétt, hefur búið í Bretlandi síðustu tuttugu árin. Hann hefur lengi sætt ámæli fyrir öfgafull við- horf sín og eftir sprengjuárás- irnar í Lundúnum í síðasta mán- uði hvatti hann trúbræður sína til þess að gefa ekki upplýsingar sem gagnast gætu lögreglu. Í kjölfarið sá hann sér þann kost vænstan að halda til Líbanon en nú hefur breska inn- anríkisráðuneytið hins vegar til- kynnt honum að hann fái ekki að snúa aftur. Afar fátítt er að er- lendum ríkisborgara sem hefur búið svo lengi í Bretlandi sé meinað að koma aftur inn í landið eftir dvöl erlendis. Anjem Choudary, félagi Bakri, segir hann hlíta ákvörð- uninni en eftir sem áður myndi hann láta rödd sína heyrast í Bretlandi sem annars staðar. Talsmenn hófsamari múslima í Bretlandi lýstu yfir ánægju sinni með að Bakri fengi ekki að snúa aftur og sögðu hann hafa svert ímynd þeirra. Í fyrradag handtók breska lögreglan annan klerk, Jórdan- ann Abu Qatada, við níunda mann en þeir eru taldir ógna ör- yggi landsins. ■ Flokksfundir eftir helgi rá›a úrslitum Tali› er a› félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík á mánudag rá›i úrslitum um hvort R-lista samstarfi› haldi velli. Dagur B. Eggertsson kve›st hvorki ætla a› bjó›a fram óhá›an lista né ganga til li›s vi› Samfylkinguna. BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR Borgar- stjórnarflokkur R-listans kom saman til fundar í gær, en margt bendir til þess að hann þurfi næstu mánuðina að starfa við ný skilyrði þar sem dagar R-listans kunna að vera taldir. Félags- fundur Reykjavíkurfélags Vinstri grænna hefur verið boð- aður á mánudag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er talið að niðurstaða þess fundar ráði úrslitum um hvaða stefnu málið tekur innan flokkanna þriggja og hvort samstaf innan R-listans haldi lífi. Stefán Jón Hafstein, Sam- fylkingunni og borgarfulltrúi R- listans, segir að fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík komi saman til fundar á mið- vikudaginn kemur. „Það er enn líf í þessu, að minnsta kosti fram yfir helgina,“ segir Stefán Jón. Dagur B. Eggertsson, borgar- fulltrúi óháðra á R-listanum, segir að það standi óhaggað að hann ætli ekki að bjóða sig fram fyrir næstu borgarstjórnarkosningar verði ekkert af frekara R-lista samstarfi. „Mér finnst ekki koma til greina að fara fram með óháð- an lista. Reykjavíkurlistinn snýst um það að koma til valda hugsun- um félagshyggjunnar og breyta borginni í þeirri mynd. Hann hef- ur hrundið af stað lífsgæðabylt- ingu sem ég held að allir í Reykja- víkurlistanum megi vera stoltir af. Þetta snýst ekki um sérstöðu einhverra innan listans eða mína sérstöðu heldur einmitt hugsjón- irnar sem þessir flokkar og utan- flokkafólk innan R-listans hefur staðið fyrir. Þess vegna er ekki á dagskrá af minni hálfu að fara fram með óháðan lista. Ég var vongóður og rólegur og það voru líklega mistök. Eftir árangurs- lausar viðræður er ég nú svart- sýnn. Menn hafa sökkt sér ofan í öfugan enda og hugsað um hags- muni flokkanna en ekki hagsmuni kjósenda sinna.“ Dagur neitar því enn fremur að hann hyggist ganga til liðs við Samfylkinguna.“Ég er bara einn af fjölmörgum í borginni sem hef átt erfitt með að finna mér farveg innan tiltekins flokks. Þess vegna er Reykjavíkurlistinn mikilvæg- ur farvegur fyrir alls konar fólk sem vill hafa jákvæð áhrif á um- hverfið í kring um sig,“ segir Dagur. johannh@frettabladid.is FÖGUR SJÓN Geimskotið heppnaðist full- komlega og voru starfsmenn Bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, í sjöunda himni með hvernig til tókst. Geimfar á leið til Mars: Leitar a› um- merkjum lífs FLÓRÍDA, AP Ómönnuðu könnunar- geimfari var á föstudagsmorgun skotið út í geiminn frá Canaveral- höfða í Flórída í Bandaríkjunum. Förinni er heitið til Mars. Það mun taka geimfarið sjö mán- uði að fljúga til Mars en næstu fjög- ur árin sveimar svo farið á spor- baug um plánetuna og safnar meiri upplýsingum en fengist hafa úr öll- um fyrri leiðöngrum samanlagt. Farið mun einkum beina sjónum sínum að íshellum sem eru á skaut- um reikisstjörnurnar en talið er að raki hafi þar verið mun meiri í fyrndinni og því meiri líkur á lífi. Kostnaður við leiðangurinn er 46 milljarðar króna. ■ Ný flugbraut í Grímsey: Vígslu flug- brautar fresta› SAMGÖNGUR Til stóð að Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra vígði nýja flugbraut og vélageymslu í Grímsey í gær. Fresta varð hins vegar athöfninni vegna slæms skyggnis en mikil þoka var í eyj- unni. Að sögn Heimis Más Péturs- sonar, upplýsingafulltrúa Flugmála- stjórnar Íslands, hefur ekki verið tekin ákvörðun um það hvenær vígslan fari fram en það verður þó sennilegast einhvern tímann í næstu viku. Nýja flugbrautin er rúmur kíló- metri að lengd og leysir hún af hólmi malarbraut sem oft var ófær þegar þiðna tók á vorin. - jse Mánudagur Kveðja, Guðríður Arnardóttir náttúrufræðingur. Á morgun Kaupmannahöfn 15°C skýjað Osló 20°C sk.m.köflum London 20°C sk.m.köflum París 23°C heiðskírt Algarve 29°C heiðskírt Mallorca 26°C heiðskírt Krít/Chania 34°C heiðskírt Barcelona 29°C sk.m.köflum Róm 27°C heiðskírt Alicante 31°C heiðskírt Kýpur 34°C heiðskírt Rimini 24°C sk.m.köflum Strekkingur sunnan- og vestanlands en eitthvað hægari austanlands. +11 +8 +12 +13 +12 +12 +11 +15 +10 +9 +9 +9 +8 +9 +10 +9 +10 +12 +13 +13 Gola Gola Gola Gola Gola Gola Gola Fremur hæg vestlæg átt og súld eða rigning sunnan- og vestanlands. +11 Gola Gola Gola Gola VEÐRIÐ Í DAG ÓVELKOMINN Omar Bakri fær ekki að snúa aftur til Bretlands frá Líbanon þó hann hafi búið þar í tvo áratugi. M YN D /A P SÆBRAUT Lögregla veitti hópi bifhjóla- manna sem óku of hratt eftirför. Stungu lögreglu af: Á tvöföldum hámarkshra›a LÖGREGLUMÁL Lögregla veitti fjór- um bifhjólamönnum eftirför frá Sæbraut og þaðan austur Suður- landsbraut í kringum miðnætti í fyrrakvöld. Að sögn lögreglu mæld- ust ökumenn bifhjólanna á um 120 kílómetra hraða á Sæbraut við Höfðatún þar sem hámarkshraði er sextíu. Á Suðurlandsbraut missti lög- regla hins vegar af mönnunum þeg- ar þeir tvístruðu sér í allar áttir, en lögregla segir þá hafa ekið á móti rauðu ljósi. Grunaðir menn voru síðan stöðv- aðir tuttugu mínútum síðar á Kringlumýrarbraut og var þá tekin af þeim skýrsla. Málið er í rannsókn að sögn lögreglu sem segir ekki liggja fyrir hvort mennirnir verði ákærðir. - ht FJÖLMENNI Á DÖNSKUM DÖGUM Tjaldstæði við aðalgötu Stykkis- hólms voru öll orðin full síðdegis í gær að sögn lögreglu en þar fara danskir dagar fram um helgina. Allur undirbúningur hefur gengið vel að sögn lögreglu en búist er við að fjöldi fólks leggi leið sína á danska daga. LÖGREGLUFRÉTTIR LÖGREGLUFRÉTTIR AUKALEIKARI MEIDDIST Aukaleikari í kvikmynd Clint Eastwoods Flags of our father meiddist við myndatökur á landpramma í Sandvík um klukk- an þrjú í gær. Að sögn lögreglunar í Reykjanesbæ var í fyrstu talið að maðurinn væri lærbrotinn en svo alvarleg reyndust meiðsl hans ekki vera. Að sögn lögreglu datt maðurinn af pramma með fyrr- greindum afleiðingum. RÓÐUR RÓIÐ AÐ STOKKSEYRI Kjartan Jakob Hauksson, sem rær um- hverfis landið, ýtti úr vör við Hjörleifshöfða í gær klukkan eitt. Honum gekk ágætlega að komast úr fjörubriminu en hann stefnir nú á það að ná landi á Stokkseyri milli klukkan tólf og þrjú í dag. DAGUR B. EGGERTSSON Vill R-listann áfram og er hvorki á leið í Samfylkinguna né í fram- boð fyrir óháðan lista.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.