Fréttablaðið - 13.08.2005, Qupperneq 6
6 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Danir hyggjast rýmka eftirlaunalög til að fjölga fólki á vinnumarkaði:
Hvetur til aukavinnu eftirlaunaflega
DANMÖRK Aukinn meirihluti
danska þingsins hyggst greiða
atkvæði með því að lögum um
eftirlaun verði breytt svo eftir-
launaþegum verði gert kleift að
stunda hlutastarf án þess að það
hafi of mikil áhrif á eftirlaun
þeirra.
Vonast er til þess að laga-
breytingin muni verða til þess
að þúsundir bætist við á vinnu-
markaðinum. Tillaga ríkis-
stjórnarinnar felur í sér að í
stað þess fyrirkomulags sem nú
er við lýði, þar sem föst upphæð
er dregin af eftirlaunum fyrir
hvern tíma sem eftirlaunaþeg-
inn vinnur, verði frádrátturinn
ákveðin prósentutala af þeim
launum sem eftirlaunaþeginn
þénar.
Það leiðir til þess að það
borgi sig frekar fyrir eftir-
launaþega að vinna í lágt laun-
uðum störfum, en langflestir
eftirlaunaþegar eru í láglauna-
störfum. Eftirlaunaþegar í Dan-
mörku vinna að meðaltali tvær
klukkustundir á viku, en vonast
er til þess að lagabreytingin
verði til þess að vinnustundum
þeirra fjölgi. - sda
Neytendasamtökin skoða lokun SKY á íslensk greiðslukort:
Efast um lögmæti a›ger›anna
NEYTENDUR Neytendasamtökin
hafa falið lögmanni að kanna lög-
mæti þess að sjónvarpsstöðin
SKY taki ekki við íslenskum
greiðslukortum.
Smáís, sem eru samtök
myndrétthafa á Íslandi, náðu sam-
komulagi um það við stöðina á
dögunum en strangt til tekið eiga
innlendir aðilar rétt hér á landi á
efni sem SKY sýnir. Neytenda-
samtökin líta þetta alvarlegum
augum þar sem heimili þurfi nú
að kaupa þjónustu, þar á meðal
enska boltann, á hærra verði en
áður og telja með þessu sé dregið
úr samkeppni og þjónustu við ís-
lenska neytendur.
„Fjöldamörg heimili hafa
keypt gervihnattadisk til þess að
taka við efni og það er verið að
skerða rétt þeirra til að nýta fjár-
festinguna,“ segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna. „Útsjónarsamir
neytendur hafa ýmis ráð og til
dæmis geta menn fengið vini er-
lendis til að kaupa áskriftina fyrir
sig. Ég efast um að aðgerðin skili
þeim árangri sem til er ætlast, en
mun gera mörgum heimilum
erfitt fyrir.“
- grs
Líkur aukast á a› Írak
ver›i sambandsríki
Á mánudaginn rennur út fresturinn sem Írakar tóku sér til a› semja stjórnar-
skrá. Sjíar vir›ast vera a› snúast á sveif me› Kúrdum um stofnun sambands-
ríkis en súnníar eru flví mjög andsnúnir.
ÍRAK Íraskir sjíar virðast óðum að
komast á þá skoðun að skipta beri
landinu upp í sambandsríki og
bætast þar með í hóp Kúrda, sem
eru mjög áhugasamir um slíka
stjórnskipan. Súnníar eru þessu
aftur á móti mjög mótfallnir.
Fresturinn sem Írakar tóku sér
til að semja texta framtíðarstjórn-
arskrár sinnar rennur út á mánu-
daginn en landsmenn greiða svo
atkvæði um plaggið í október.
Fulltrúum sjía, súnnía og Kúrda
hefur hins vegar gengið afleitlega
að koma sér saman um innihald
þess og er vandséð að þeim takist
að ljúka vinnunni áður en frestur-
inn rennur út. Það er ekki síst
spurningin um hvort Írak skuli
verða sameinað og miðstýrt ríki
eða lauslegt sambandsríki sem
hefur verið ásteytingarsteinn.
Kúrdar hafa barist fyrir síðar-
nefndu útfærslunni en súnníar
hafa með oddi og egg varið núver-
andi fyrirkomulag.
Í gær lýsti Abdul-Aziz al-
Hakim, einn áhrifamesti stjórn-
málamaður heittrúaðra sjía, þeirri
skoðun sinni á fundi í hinni helgu
borg Najaf að stefna bæri að því að
suðurhluti landsins fengi sjálf-
stjórn í sem flestum málaflokkum
svo að pólitísku jafnvægi verði náð
í Írak.
Ummæli al-Hakim eru merki-
leg þar sem heittrúaðir sjíar hafa
hingað til heldur hallast að mið-
stýrðri stjórnskipan. Dagblaðið
New York Times hermir að fyrir
fundinn hafi al-Hakim rætt við Ali
Sistani erkiklerk, en hann er af
mörgum talinn áhrifamesti maður
Íraks. Sé Sistani sammála hug-
myndum um sambandsríki er
mjög líklegt að stjórnarskráin
muni kveða á um slíkt fyrirkomu-
lag.
Súnníar hafa þegar harðlega
gagnrýnt þetta útspil al-Hakim og
segja það draga úr líkum á að
stjórnarskrárnefndin nái sam-
komulagi fyrir mánudaginn.
Þorri íbúa Suður-Íraks er sjíar,
Kúrdar byggja norðrið en súnn-
íar eru fjölmennir í miðhluta
landsins. Skipting landsins í
sjálfsstjórnarhéruð myndi taka
mið af því. 80-90 prósent af olíu-
lindum Íraks og eina höfn þess
eru í suðurhlutanum og því er
ekki að undra að margir sjíanna
hugsi sér gott til glóðarinnar á
sama tíma og súnnía hrylli við.
sveinng@frettabladid.is
Nýjasta tækni:
Rækta kjöt án
d‡rahalds
BALTIMORE, AP Hægt verður innan
tíðar að rækta kjöt án þess að dýr
komi þar við sögu, að sögn breska
líffræðingsins Brians J. Ford.
Hann segi tækni sem gerir kleift
að rækta kjöt úr dýrafrumum
þegar fyrir hendi. Slíkt verður þó
ekki hægt að kaupa í verslunum á
næstunni því ár gætu enn liðið þar
til kjöt framleitt á þennan hátt
kemur á markaði.
Ford telur að ræktun kjöts án
dýra hafi þau áhrif að halda þurfi
færri dýrum föngnum, oft við
ófullnægjandi aðstæður. Þá komi
ræktunin til móts við aukna
prótínþörf vaxandi íbúafjölda
jarðar. ■
Ætlarðu að fylgjast með enska
fótboltanum í vetur?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var rétt hjá landbúnaðarráð-
herra að hafna innflutningi
nautakjöts frá Argentínu?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
71,5%
28,5%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
EFTIRLAUNAÞEGAR Fyrirhuguð breyting á
eftirlaunalögum í Danmörku mun gera
það mun hagstæðara en áður fyrir eftir-
launaþega að vinna láglaunastörf.
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
Ver› á mann í tvíb‡li á Maritim Hotel Frankfurt
18.-20. nóv., 20.-22. jan. og 3.-5. mars.
Innifali›: Flug, gisting, morgunver›ur, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
www.icelandair.is/frankfurt
Frankfurt
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og
Icelandair notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
Flug og gisting í tvær nætur
Verð frá 39.900 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
29
01
3
0
8/
20
05
FRÁ NAJAF Heittrúaðir sjíar minntust dauða stjórnmálaleiðtogans Mohammed Baqir al-
Hakim í Najaf í gær en hann dó í bílsprengjuárás í borginni fyrir tveimur árum. Abdul Aziz
al-Hakim, bróðir hans, kvaðst við það tækifæri telja að sjíar ættu að fá sjálfstjórn í suður-
hluta Íraks.
M
YN
D
/A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
GERVIHNATTADISKUR Formaður Neytenda-
samtakanna segir aðgerðirnar skerði rétt
þeirra sem hafi keypt sér gervihnattadisk
til að nýta þá fjárfestingu.