Fréttablaðið - 13.08.2005, Page 10

Fréttablaðið - 13.08.2005, Page 10
ÁR FRÁ ÓLYMPÍULEIKUM Rólegt var um að litast við Ólympíuleikvanginn í Aþenu í gær. Fyrir nákvæmlega ári var þar hins vegar handagangur í öskjunni því þá voru sumarleikarnir 2004 settir. 10 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Vinstriflokkarnir gætu fengið meirihluta á þingi samkvæmt könnunum: Norsku stjórnarflokkarnir tapa fylgi NOREGUR Ríkisstjórnarflokkarnir í Noregi, undir stjórn Kjell Magne Bondevik, tapa verulegu fylgi í þingkosningum sem fara fram eft- ir mánuð, ef marka má skoðana- könnun norska dagblaðsins Aften- posten. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír, Íhaldsflokkurinn, Kristilegir demókratar og Frjálslyndir, fengju aðeins 44 þingsæti, eða 27,4 pró- sent atkvæða. Í þingkosningunum 2001 fengu flokkarnir þrír samtals 30,7 prósent atkvæða. Vinstri flokkarnir þrír, sem lík- legastir þykja til þess að mynda saman vinstristjórn, Verkamanna- flokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og Miðflokkurinn, fá meirihluta þingsæta samkvæmt könnuninni, eða 93 þingmenn af 169. Sam- kvæmt könnuninni fengju þeir 51,6 prósent atkvæða. Verkamannaflokkurinn nýtur mests fylgis samkvæmt könnun- inni, eða 26,9 prósent. Næststærst- ur er Sósíalistaflokkurinn með um 18 prósenta fylgi og Framfara- flokkurinn, flokkur öfgasinnaðra hægrimanna, er þriðji stærsti flokkur Noregs samkvæmt könn- uninni með 17,4 prósenta fylgi. Formaður Framfaraflokksins Carl I. Hagen hefur nýverið sagt að hann myndi ekki ganga til ríkis- stjórnarsamstarfs við Kjell Magne Bondevik, núverandi forsætisráð- herra. - sda Fundað um sjávarútvegsmál: Schmidt hreifst af fiskvei›istjórnuninni SJÁVARÚTVEGSMÁL Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Hans Christian Schmidt, mat- vælaráðherra Danmerkur sem fer með sjávarútvegsmál, hafa fundað síðustu daga um sjávarút- vegsmál, en Schmidt er nú í vinnuheimsókn hér á landi. Þeir ræddu meðal annars ástand fiskistofna, ólöglegar veið- ar, stefnumótun ESB um málefni hafsins, veiðar á Norsk-íslensku síldinni og loðnuveiði í íslensku lögsögunni. Þá gerði Árni honum grein fyrir afstöðu Íslendinga í Svalbarðamálinu. Viðræðurnar voru almennt á jákvæðum nótum. Hvalveiðimál báru lítillega á góma, en þau heyra ekki undir ráðuneyti Schmidt. Fiskveiðistjórnunarkerfið var kynnt fyrir Schmidt og sagði hann að sér þætti mikið til þess koma, ekki síst vegna þess hve margir kæmu að ákvarðanatöku og stefnumótun. Auk fleiri vinnufunda mun ráð- herrann ferðast um landið og til dæmis skoða Síldarminjasafnið á Siglufirði og heimsækja Gullfoss og Geysi. - grs KJELL MAGNE BONDEVIK Litlar líkur eru á að Bondevik takist að mynda fjögurra flokka hægri stjórn eftir kosningar. Algjörar perlur Fimmta bókin hennar Madonnu er fyrir börn á öllum aldri og eins og fyrri bækur hennar með fallegan boðskap og frábærlega myndskreytt. Allar bækurnar nú á einstöku tilboði! „Nýja bókin hennar Madonnu; náið ykkur í hana!“ Oprah Winfrey Amazon.com Barnes&Noble.com 50% afsláttur aðeins 995 kr. 50% afsláttur aðeins 995 kr.          HANS CHRISTIAN SCHMIDT OG ÁRNI M. MATHIESEN Matvælaráðherra Danmerkur þótti mikið til íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins koma. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA M YN D /A P Orkumálaráðherrar funda: Hyggjast auka samkeppni NORÐURLÖND Orkumálaráðherrar Norðurlanda samþykktu að vinna að því að auka samkeppni, skil- virkni og öryggi á raforkumarkaði á fundi sem þeir sátu á Grænlandi. Samþykktin er hluti af samstarfsá- ætlun á sviðið orkumála. Þar er einnig kveðið á um að hlutur endur- nýjanlegra orkulinda í orkunotkun verður aukinn enn frekar. Valgerður Sverrisdóttir sat fund- inn fyrir Íslands hönd. Hún átti samhliða honum tvíhliða fund með Johan Lund Olsen, orkumálaráð- herra Grænlands, sem þakkaði stuðning íslenskra stjórnvalda við jarðhitarannsóknir á Disco-eyju. - bþg Flugvöllurinn lama›ist 70.000 manns ur›u strandaglópar flegar flugvallarstarfsmenn British Airways á Heathrow lög›u ni›ur störf í gær til a› mótmæla uppsögn 800 starfs- manna. Tali› er a› verkfalli› kosti fyrirtæki› rúman milljar› króna. BRETLAND Ófremdarástand skap- aðist á Heathrow-flugvelli í Lund- únum í gær og í fyrrakvöld þegar flugvallarstarfsmenn fóru í skyndilegt samúðarverkfall. Tug- þúsundir farþega komust hvorki lönd né strönd. Yfir þúsund starfsmenn Brit- ish Airways á Heathrow ákváðu að leggja niður störf á fimmtu- dagskvöld eftir að 800 starfs- mönnum Gate Gourmet-veitinga- þjónustunnar var sagt upp í sparnaðarskyni, en þeir eru í sama verkalýðsfélagi. Í kjölfarið varð British Airways að aflýsa öllum ferðum til og frá flugvellin- um næsta sólarhringinn, svo og flugfélögin Quantas, Finnair, British Mediterranean og Sri Lankan Airlines sem öll kaupa þjónustu af British Airways. Far- þegar Icelandair lentu hins vegar ekki í vandræðum þar sem aðrir annast vélar þeirra og farþega. Fella þurfti niður 550 ferðir frá flugvellinum í gær og voru 70.000 manns strandaglópar víða um heim af völdum verkfallsins. Talið er að British Airways hafi tapað 1,15 milljarði króna vegna þess. Um það bil þúsund farþegar urðu að eyða aðfaranótt föstu- dagsins á Heathrow og þeir voru að vonum afar óhressir með það. „Ég er of kurteis kona til þess að færa í orð hvað mér finnst um British Airways,“ sagði Daphne Morley, frá Ástralíu, en hún hafði ætlað að ná tengiflugi í Lundún- um til Pétursborgar í Rússlandi. „Farangurinn okkar er einhvers staðar, við getum ekki einu sinni skipt um föt.“ Síðdegis í gær sneru starfs- mennirnir svo aftur til sinna starfa og um kvöldmatarleytið tóku svo fyrstu flugvélarnar að fara í loftið frá flugvellinum. sveinng@frettabladid.is ERFIÐ BIÐ Flugfarþegar á Heathrow-flugvelli voru afar gramir yfir verkfallinu enda komust þeir hvorki lönd né strönd. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.