Fréttablaðið - 13.08.2005, Qupperneq 20
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐHERRA
Vímulaus æska, foreldrahús. 500.000 kr.
MND-félagið, útg. fræðslubæklings
300.000 kr.
Ný leið ráðgjöf, forvarnarverkefnið Lífs-listin.
300.000 kr.
Ungmennafélag Íslands, styrkur til forvarn-
arstarfs. 200.000 kr.
SÁS – samtök um spilafíkn, útgáfa fræðslu-
bæklings. 200.000 kr.
Lind – félag um meðf. ónæmisgalla, útgáfa
fræðslubæklings. 200.000 kr.
Angi/Krabbameinsfélagið, samvera fjöl-
skyldna barna með krabbamein. 200.000 kr.
Félag sérfræðinga í klínískri sálfræði,
fræðslufundir um þunglyndi. 200.000 kr.
Forvarnarstarf læknanema, kynsjúkdómar
og ótímabær
þungun.
200.000 kr.
Heimild sam-
kvæmt fjárlögum:
8.000.000 kr.
Nýtt heimild:
4.375.000 kr.
Ráðherra: Jón
Kristjánsson
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
Hrókurinn, útbreiðsla skákar í grunnskólum
2004-2005. 2.500.000 kr.
ÍSÍ, Ólympíuleikar 2004 1.550.000 kr.
Óperan Grettir 1.200.000 kr.
Presence í París 800.000 kr.
Kópavogsbær, Spænskir dagar. 550.000 kr.
Tónskáldafélag Íslands, Myrkir músíkdagar
2004. 500.000 kr.
Karlakórinn Þrestir, alþjóðleg kórakeppni í
Wales og Carnegie Hall í New York.
400.000 kr.
Þjóðleikhúsið, vegna
aldarafmælis Ragnars
í Smára. 350.000 kr.
Heimild samkvæmt
fjárlögum:
18.000.000 kr.
Nýtt heimild:
18.968.249 kr.
Ráðherra: Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir
FORSÆTISRÁÐHERRA
Hagstofa Íslands, millifærð fjárheimild vegna
verkefnis um birgðaskýrslur. 2.700.000 kr.
Nefnd um 100 ára afmæli Heimastjórnar á
Íslandi, millifærð fjárheimild vegna kostnað-
arhlutdeildar við menningardagskrá á slóð-
um Vestur-Íslend-
inga, sem haldin
var 17. júní 2004 í
Kanada.
750.000 kr.
Franz Gíslason,
framlag til þýðingar
á bókinni Þvert yfir
Grænland 1912-
1913, eftir Vigfús
Sigurðsson, Græn-
landsfara. 350.000 kr.
Kvenréttindafélag Íslands, framlag til að fé-
lagið geti sent fulltrúa á aðalþing Alþjóða-
samtaka kvenna og kvenréttindafélaga sem
haldið var í Berlín 11.-14. september 2004.
150.000 kr.
Margrét Sigfúsdóttir, framlag til að auðvelda
flutning á málverkum frá Frakklandi til Ís-
lands og útgáfu á kynningarefni vegna mál-
verkasýningar í
Hafnaborg í
Hafnafirði.
150.000 kr.
Heimild sam-
kvæmt fjárlögum:
5.000.000 kr.
Nýtt heimild:
4.925.000 kr.
Ráðherrar: Davíð
Oddsson og Hall-
dór Ásgrímsson.
Ráðherrar ríkisstjórnar Ís-lands höfðu áttatíu og fimmmilljónir til eigin ráðstöfun-
ar samkvæmt sérstökum lið á
fjárlögum síðasta fjárlagaárs.
Fréttablaðið óskaði eftir upp-
lýsingum frá ráðuneytum um
hvernig þeirri heimild sem ráð-
herrarnir hafa hefði verið varið á
síðasta fjárlagaári og sérstaklega
sundurliðað eftir hverri ráðstöfun
fyrir sig.
Þrátt fyrir ítrekuð erindi til ut-
anríkisráðuneytisins og fjármála-
ráðuneytisins fengust engin svör.
Fyrst árið 1990
Ráðstöfunarfé kom fyrst fyrir í
fjárlögum árið 1990 en í skýring-
um með fjárlagafrumvarpinu fyr-
ir árið 1990 kom fram að ákveðið
hefði verið að bæta við nýjum lið í
fjárlagakafla hvers ráðuneytis.
Þar sagði: „Eins og reynslan sýnir
koma óhjákvæmilega upp á árinu
ný tilefni og verkefni sem talið er
nauðsynlegt að sinna og til ráðu-
neytanna sækja ýmsir aðilar, fé-
lagasamtök og stofnanir, eftir
stuðningi við einstök mál eða
verkefni, sem viðkomandi ráð-
herra vill sinna, enda oft um að
ræða hliðstæðu þess sem hlotið
hefur atbeina í fjárlögum. Enn
fremur er oft brýn nauðsyn á at-
hugun, úttekt eða undirbúnings-
vinnu við málefni sem ráðuneyt-
inu ber að sinna en ekki var fyrir-
séð.“
Liðurinn er enn í fjárlögum og
samkvæmt upphaflegum skýring-
um er honum ætlað að styrkja
verkefni sem nauðsynlegt er að
sinna.
Misháar upphæðir
Ráðherrar fá misháar upphæðir
til ráðstöfunar samkvæmt mála-
flokkum og engar reglur eru til
um með hvaða hætti þeir eiga að
fara með þá fjármuni, að undan-
skildum þeim skilaboðum sem
koma fram í skýringum með fjár-
lagafrumvarpinu fyrir árið 1990.
Þannig fær menntamálaráðherra
mest allra, átján milljónir til út-
hlutunar, en minnstu upphæðina
fær sjávarútvegsráðherra, þrjár
milljónir. Í gegnum árin hefur oft
heyrst gagnrýni á það hvernig
ráðherrar verja því fé sem um
ræðir en sú staðreynd virðist
minna gagnrýnd að ráðherrar
hafa áttatíu og fimm milljónir
sem þeir úthluta að eigin vilja.
Fjöldi úthlutana
Í meðfylgjandi yfirliti um ráðstöf-
un á ráðstöfunarfé ráðherra á síð-
asta fjárlagaári er reynt að draga
fram þau verkefni sem hvað
hæstu úthlutunina fengu. Einstök
ráðuneyti virðast leggja áherslu á
að úthluta til sem fæstra aðila en
önnur til sem flestra. Þannig hef-
ur landbúnaðarráðherra úthlutað
fjörutíu og fjórum styrkjum á
meðan félagsmálaráðherra út-
hlutar aðeins ellefu styrkjum.
Munar þó aðeins um fimm hund-
ruð þúsund krónum á úthlutaðri
fjárhæð þar sem félagsmálaráðu-
neytið úthlutar fimm milljónum
og landbúnaðarráðuneytið hálfri
milljón meira.
Einn ráðherra fram úr áætlun
Flestir ráðherrar halda sig þó við
áætlun. Aðeins einn ráðherra fer
fram úr áætlun, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra. Hún fer tæpri milljón fram
úr fjárlögum á þessum tiltekna lið
fjárlaganna.
Þá má geta þess að einn ráð-
herra notaði ráðstöfunarfé til að
sinna erindi einstaklings sem
hafði lent í fjárhagsörðugleikum
vegna veikinda en sú upphæð er
ekki metin í þeim tölum sem hér
eru birtar.
Handbolti og ungir framsóknar-
menn
Ráðstöfunarfé ráðherranna fellur
ekki alltaf innan þess málaflokks
sem ráðherrann starfar við. Til
dæmis virðist landbúnaðarráð-
herra sjá ástæðu til að styrkja
þriðja flokk karla í handbolta á
Selfossi um hundrað og þrjátíu
þúsund krónur, sjávarútvegsráðu-
neytið styrkir Æskulýðsdag með
hestinum um hundrað og fimmtíu
þúsund krónur og fyrrverandi
umhverfisráðherra, Siv Friðleifs-
dóttir, styrkir Samband ungra
framsóknarmanna um þrjátíu
þúsund krónur.
Ekki endanlegur listi
Hér er ekki birtur endanlegur
listi yfir þá sem fengu úthlutað af
ráðstöfunarfé ráðherra. Listinn
með áttatíu og fimm milljónunum
er einfaldlega of langur til þess að
hægt sé að birta alla styrkina á
þessum stað en margt þykir
eflaust áhugaverðara en annað.
hjalmar@frettabladid.is
20 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Á hverju ári úthluta rá›herrar tugum milljóna í ein-
stök verkefni sem fleir telja fjárflörf til. fieir hafa mis-
miklar fjárhæ›ir til rá›stöfunar en samkvæmt fjár-
lögum sí›asta árs höf›u fleir um áttatíu og fimm
milljónir til fless a› veita til fleirra sem óska eftir
styrkjum úr höndum fleirra og ríkisins. Hjálmar
Blöndal sko›a›i í hva› peningarnir fara.
RÁÐSTÖFUNARFÉ RÁÐHERRANNA
Hér má sjá hluta þeirra fjár-
hæða sem hver ráðherra hefur
úthlutað samkvæmt sérstök-
um lið á fjárlögum síðasta árs.
Listinn er ekki tæmandi held-
ur aðeins sýnishorn af hæstu
upphæðum hvers ráðherra. Þá
má sjá heimild í fjárlögum fyr-
ir árið og hversu mikið ráð-
herrann hefur nýtt. Skipti urðu
í nokkrum ráðuneytum á síð-
asta ári og er ekki tekið sér-
staklega tillit til þess nema í
umhverfisráðuneytinu.