Fréttablaðið - 13.08.2005, Page 27

Fréttablaðið - 13.08.2005, Page 27
LAUGARDAGUR 13. ágúst 2005 Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • Sími: 588 6500 • www.utivistogveidi.is OPIÐ Í SUMAR: laugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19 Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000 AFSLÁTTUR AF ÚTSÖLUVÖRUM Það getur skipt miklu máli að lenda á rétta flugvellinum þegar flogið er til Lundúna. Frá og með 26. mars næst- komandi hyggst flugrisinn Brit- ish Airways bjóða landsmönnum upp á ódýrt flug til heimaborgar sinnar og verða þá þrjú flugfélög í daglegum ferðum milli Íslands og Lundúna sem lenda vélum sínum hvert á sínum flugvellin- um. Það getur skipt heilmiklu máli hvaða flugvöllur verður fyrir valinu, ekki síður en hvaða flugfélag. Vellirnir eru mislangt fyrir utan borgina og samgöngur til og frá þeim misþægilegar og – dýrar. Í sumum tilfellum liggur áfangastaður lestarinnar frá flugvellinum þannig við áfanga- stað ferðalangsins að það tekur langan tíma, miklar tilfæringar og mörg pund að komast leiðar sinnar. Þannig getur ferðin lengst um margar klukkustundir og verð hennar hækkað um nokkur þúsund krónur eftir því hver áfangastaðurinn er. Það borgar sig því að kynna sér mál- ið áður en lagt er af stað. Icelandair-vélar lenda á Heath- row Heathrow-flugvöllur er næst- ur miðborg Lundúna af þessum þremur völlum. Hægt er að kom- ast á fimmtán mínútum frá lestar- stöð á flugvellinum á Paddington- lestarstöðina, sem er mjög hent- ugt ef stefnan er tekið á vesturhluta Lundúna. Lestin gengur á fimmt- án mínútna fresti frá klukkan fimm á morgnana og til hálf tólf á kvöldin og kostar 13 pund, um það bil 1.500 krónur, aðra leiðina. British Airways-vélar lenda á Gatwick Gatwick-völlur er suður af borginni og er því hentugt að ferðast þaðan til Suður-Englands. Ef stefnan er á miðborg Lundúna er um hálfrar klukkustundar lestarferð á Victoria-lestar- stöðina. Lestin gengur á fimmtán mínútna fresti frá fimm á morgnana og til eitt á nóttunni og kostar ferðin 13 pund, um 1.500 krónur, aðra leiðina. Iceland Express-vélar lenda á Stansted Flugvöllurinn er norðan við Lundúnir og þaðan er hægt að taka lestir beint norður í land. Lestin fer á 45 mínútum á Liver- pool Street-lestarstöðina í Lund- únum en þaðan eru góðar sam- göngur um alla borg. Lestin geng- ur á fimmtán mínútna fresti frá sex á morgnana og til miðnættis. Önnur leiðin kostar 14,50 pund eða 1.650 krónur. Tekið skal fram að hægt er að taka leigubíla frá öllum þessum flugvöllum, sem gæti svarað kostnaði ef margir ferðast saman, og líka að neðanjarðarlestarstöðv- ar eru á öllum lestarstöðvunum svo hægt er að komast áfram leið- ar sinnar með þeim ef þarf. Hvar sem við lendum... Best er að komast með lest frá flugvöllunum þremur í Lundúnaborg en hvert skal haldið skiptir meginmáli.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.