Fréttablaðið - 13.08.2005, Page 38
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Erfitt er að skilja hvað sakborningum er ná-
kvæmlega gefið að sök í þessum ákærulið.
Þessi viðskipti tengjast viðskiptum sem rætt
er um í athugasemdum við ákærulið 5. Þetta
er nánar skýrt í bréfi JÁJ 30. júní 2005. Vart
getur það talist misnotkun á aðstöðu að hafa
selt umræddar fasteignir á 354 milljónir
króna, sem var markaðsvirði þeirra á þeim
tíma sem viðskiptin áttu sér stað, þegar mats-
verðið í dag er 573 milljónir króna.
7. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Jóhannesi með
því að hafa hinn 30. nóvember 1998, við yf-
irtöku Baugs hf. á Bónus sf., kt. 670892-
2479, misnotað aðstöðu sína hjá Baugi hf.,
til þess að binda það við erlenda bankaá-
byrgð í SPRON, að andvirði kr.
12.219.990,00, sem var óviðkomandi rekstri
Bónus sf., en til ábyrgðarinnar höfðu
ákærðu stofnað í nafni sameignarfélagsins
hinn 17. júlí 1996, vegna lántöku í nafni
bandaríska félagsins Nordica Inc. hjá Rea-
dy State Bank, Hialeah í Flórída í Banda-
ríkjunum, að fjárhæð USD 135.000.
Ábyrgðin var stofnuð vegna kaupa ákærðu,
í félagi við eiganda hins bandaríska félags,
Jón Gerald Sullenberger, samkvæmt sölu-
reikningi dagsettum hinn 16. ágúst 1996, á
37 feta skemmtibát af gerðinni Sea Ray
Sundancer sem fékk nafnið „Icelandic Vik-
ing“, en með þessu varð Baugur hf., síðar
Baugur Group hf., bundið við ábyrgðina
sem gjaldféll á hlutafélagið hinn 17. októ-
ber 2002.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Um er að ræða ábyrgð sem Bónus gaf út til
handa Nordica árið 1996 vegna vöruviðskipta
en ekki vegna báts eins og sýnt hefur verið
fram á með gögnum. Vísast til svars um lið 2.
Brot ákærða Jóns Ásgeir samkvæmt 5., 6.
og 7. tölulið ákæru, og Jóhannesar sam-
kvæmt 7. tölulið ákæru teljast varða við
249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,
1940. Brot ákærða Jóhannesar samkvæmt
5. tölulið telst varða við 249. gr. sbr. 22. gr.
almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Brot ákærða Tryggva samkvæmt 5. og 6.
tölulið telst varða við 249. gr. sbr. 22. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
III. FJÁRDRÁTTUR OG UMBOÐSSVIK
Ákærða Jóni Ásgeiri er gefinn að sök fjár-
dráttur og/eða umboðssvik í eftirgreind-
um tilvikum:
8. Með því að hafa hinn 8. október 1998 lát-
ið millifæra af bankareikningi, númer 1151
26 000156, í eigu Baugs-Aðfanga ehf., dótt-
urfélags Baugs hf., kr. 200.000.000,00 inn á
bankareikning í eigu SPRON, nr. 1151 26
009999, þar sem ákærði fékk útgefna
bankaávísun sömu fjárhæðar, á nafn Helgu
Gísladóttur. Ákærði afhenti eða lét afhenda
Eiríki Sigurðssyni, sambýlismanni Helgu,
eiganda alls hlutafjár í Vöruveltunni hf.,
bankaávísun þessa til greiðslu samkvæmt
kaupsamningi dagsettum hinn 7. október
1998, þar sem Helga Gísladóttir seldi
ákærða fyrir hönd ótilgreindra kaupenda
allt hlutafé í hlutafélaginu Vöruveltunni og
var ávísunin innleyst hinn 9. október 1998
og andvirði hennar lagt inn á bankareikn-
ing Helgu númer 0327 26 001708.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS:
Um var að ræða lánveitingu í viðskiptalegum
tilgangi fyrir Baug, sem rúmast innan stöðu-
umboðs JÁJ sem forstjóra félagsins. Þessir
fjármunir voru endurgreiddir fyrir lok reikn-
ingsársins 1998, án þess að það sé tiltekið í
ákæru eins og eðlilegt væri. Eins og rakið er í
athugasemdum sakborninga við 5. lið
ákærunnar gerði JÁJ samning til að tryggja
hagsmuni Baugs þegar það stefndi í að Vöru-
veltan yrði seld til KEA. Greiðslan tengist
með órofa hætti samningi JÁJ við seljendur
Vöruveltunnar frá deginum áður, þar sem JÁJ
kom fram sem umboðsmaður væntanlegra
kaupenda. Þessi ráðstöfun var gerð með hags-
muni Baugs að leiðarljósi, enda jókst velta
vöruhúss fyrirtækisins um 18% án þess að
kostnaður færi upp svo nokkru næmi. Þetta
atriði var ítarlega skýrt í bréfi JÁJ, dags. 30.
júní 2005.
9. Með því að hafa hinn 15. júní 2001 látið
Baug hf. greiða kr. 95.000.000,00 inn á
bankareikning Kaupþings á Íslandi, nr.
1100 26 454080, þaðan sem fjárhæðinni var
ráðstafað, ásamt láni frá Kaupthing Bank
Luxembourg, að fjárhæð kr. 30.000.000,00,
til félagsins Cardi Holding, dótturfélags
Gaums Holding, sem bæði voru skráð í
Lúxemborg, sem hlutafjárframlag í félagið
FBA-Holding. Það félag var í eigu Fjárfest-
ingafélagsins Gaums ehf. og þriggja ann-
arra aðila. Færsla vegna greiðslunnar í
bókhaldi Baugs hf. var með fylgiskjali, sem
var útskrift tölvupósts með greiðslufyrir-
mælum ákærða til þáverandi fjármála-
stjóra Baugs hf., með handskrifuðum at-
hugasemdum um númer bankareiknings
sem greiðslan var færð inn á svohljóðandi
skýringum: „eignfæra ráðgjöf v/A Holding.
Viðskiptafæra á Baug Holding. Vantar
reikning“.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS:
Um er að ræða þóknun sem Gaumur fékk fyr-
ir að falla frá betri rétti sínum vegna þátttöku
í A-Holding sem stofnað var utan um fjárfest-
ingu í Arcadia. Hafa forsvarsmenn Íslands-
banka og KB-banka, sem voru stofnhluthafar í
A-Holding, ásamt Baugi og Gaumi, staðfest að
þessir aðilar hafi einnig fengið sams konar
þóknun fyrir að falla frá rétti sínum. Með
þessari ráðstöfun sparaði Baugur um 650
milljónir króna frá þeim samningum sem þeg-
ar höfðu verið gerðir. Sýnt hefur verið fram á
að þóknun Gaums var hlutfallslega lægri en
bankanna. Hafði JÁJ umboð bæði stjórnar og
hluthafafundar til að ganga frá slíkum samn-
ingum við hluthafa A-Holding. Þetta hefur ít-
arlega verið skýrt í bréfi JÁJ 30. júní 2005,
álitsgerð Jónatans Þórmundssonar og með
bréfi JÁJ til RLS 21. september 2004.
Brot ákærða Jóns Ásgeirs samkvæmt 8.
tölulið ákæru telst varða við 247. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19, 1940, en brot
ákærða samkvæmt 9. tölulið telst varða við
247. gr. almennra hegningarlaga nr., 19,
1940 til vara við 249. gr. sömu laga.
IV. FJÁRDRÁTTUR, UMBOÐSSVIK OG BROT
GEGN LÖGUM UM HLUTAFÉLÖG.
Ákærðu Jóni Ásgeiri, Tryggva og Kristínu
er gefinn að sök fjárdráttur og/eða um-
boðssvik og brot gegn lögum um hlutafé-
lög í eftirgreindum tilvikum:
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Í heimfærslu til refsiákvæða í lok IV. kafla er
Kristínu Jóhannesdóttur ekki gefinn að sök
fjárdráttur, umboðssvik né brot gegn lögum
um hlutafélög líkt og segir hér í upphafi kafl-
ans. Uppsetning í ákæru er því bæði röng og
ósæmandi að þessu leyti.
10. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 23. ágúst 1999 látið milli-
færa af bankareikningi Baugs hf., nr. 0527
26 000720, kr. 100.000.000,00 til Íslands-
banka hf., vegna innheimtu bankans á
hlutafjárloforðum, sem greiðslu Fjárfest-
ingafélagsins Gaums ehf., þegar einka-
hlutafélagið eignaðist 10.000.000 hluti í
hlutafjárútboði í Baugi hf. í apríl 1999. Í
bókhaldi Baugs hf. var greiðslan til Íslands-
banka hf., í þágu einkahlutafélagsins, færð
á viðskiptamannareikning þess hjá Baugi
hf., sem krafa, þannig að eftir bókun milli-
færslunnar stóð viðskiptamannareikning-
urinn í kr. 182.782.689,00. Krafa hlutafé-
lagsins á einkahlutafélagið var síðar lækk-
uð með eftirtöldum greiðslum einkahluta-
félagsins NRP til Baugs hf.; kr.
15.000.000,00 hinn 28. október 1999, kr.
15.000.000,00 hinn 2. nóvember 1999 og kr.
60.000.000,00 hinn 28. júní 2000, þegar
einkahlutafélagið NRP eignaðist umrædd
hlutabréf Fjárfestingafélagsins Gaums
ehf., en jafnframt var krafa á viðskipta-
mannareikningi einkahlutafélagsins hjá
Baugi hf. færð niður um kr. 10.000.000,00
hinn 31. desember 1999.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Sú lánveiting sem hér er vísað til er viðskipta-
legs eðlis og var heimil samkvæmt lögum.
Umrætt viðskiptalán var að fullu endurgreitt
eins og kemur fram í verknaðarlýsingu. Ekki
getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik að
ræða þar sem allan auðgunarásetning skorti
og engin leynd ríkti um lánveitinguna. Ítar-
lega er fjallað um óheimilar lánveitingar í
álitsgerð Jónatans Þórmundssonar. Þar segir
m.a. að undantekning í 3. málsl. 2. mgr. 104. gr.
hlutafélagalaga heimili hlutafélagi að veita
starfsmönnum félagsins eða tengds félags lán
til kaupa á hlutum í félaginu.
11. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að hafa
um mitt ár 1999 án greiðslu eða skuldavið-
urkenninga afhent eða látið afhenda Fjár-
festingafélaginu Gaumi ehf. 10.695.295
hluti Baugs hf. í Flugleiðum hf., sem einka-
hlutafélagið seldi hinn 27. ágúst 1999 fyrir
kr. 49.360.124,00. Framangreind ráðstöfun
bréfanna var fyrst færð í bókhaldi Baugs
hf. með lokafærslum frá endurskoðanda í
árslok 1999 að fjárhæð kr. 44.800.000,00.
Færslan var miðuð við 31. desember 1999
og þá færð sem krafa á viðskiptamanna-
reikning Fjárfestingafélagsins Gaums ehf.,
sem eftir bókunina stóð í kr. 143.068.986,00,
en skuld einkahlutafélagsins var gerð upp
með víxli útgefnum hinn 20. maí 2002 sem
greiddur var 5. september sama ár.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS:
Hér er um að ræða hlutabréf í Flugleiðum
sem Bónus hafði upphaflega keypt en við til-
urð Baugs láðist hins vegar að yfirfæra þau til
félagsins. Þetta uppgötvaðist eftir að hluta-
bréfin höfðu verið seld og var andvirði sölu-
verðs bréfanna þá fært sem krafa á viðskipta-
mannareikning Gaums í bókhaldi Baugs.
Krafan var lán viðskiptalegs eðlis sem eru
heimil og var að fullu endurgreidd 20. maí
2002 áður en til húsleitar RLS kom. Ekki getur
verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða
þar sem allan auðgunarásetning skorti og eng-
in leynd ríkti um viðskiptin.
12. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 11. október 1999 látið milli-
færa kr. 4.500.000,00 af bankareikningi
Baugs hf., nr. 1150 26 00077, á bankareikn-
ing Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., nr.
0527 26 001099, vegna kaupa einkahlutafé-
lagsins á hluta fasteignarinnar að Viðar-
höfða 6, í Reykjavík. Í bókhaldi Baugs hf.
var greiðslan til einkahlutafélagsins færð
sem viðskiptakrafa á viðskiptamannareikn-
ing einkahlutafélagsins hjá Baugi hf., sem
eftir bókun millifærslunnar stóð í kr.
187.665.005,00, en skuld einkahlutafélags-
ins var gerð upp með víxlinum sem nefnd-
ur er í lok 11. töluliðs ákæru. Ákærðu Krist-
ínu framkvæmdastjóra einkahlutafélagsins
gat ekki dulist að millifærsla fjárhæðarinn-
ar sem gerð var án skuldaviðurkenningar,
samnings eða trygginga var ólögmæt og
andstæð hagsmunum Baugs hf.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Til stóð að Baugur keypti hluta af fasteigninni
að Viðarhöfða 6 í félagi við Gaum þar sem
m.a. voru geymd bókhaldsgögn frá félaginu.
Hins vegar láðist að ganga frá endanlegum
kaupsamningi þess efnis. Krafan var því lán
viðskiptalegs eðlis sem eru heimil. Skuldin
var að fullu endurgreidd 20. maí 2002 áður en
til húsleitar RLS kom. Ekki getur verið um
fjárdrátt eða umboðssvik að ræða þar sem all-
an auðgunarásetning skorti og engin leynd
ríkti um viðskiptin.
13. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa inn 3. desember 1999 látið milli-
færa kr. 8.000.000,00 af bankareikningi
Baugs hf., nr. 0527 26 000720, til SPRON
sem greiðslu Fjárfestingafélagsins Gaums
ehf. fyrir helmingshluta hlutafjár í eigu
SPRON í Viðskiptatrausti ehf. Í bókhaldi
Baugs hf. var greiðslan færð sem krafa á
viðskiptamannareikning einkahlutafélags-
ins í samræmi við útgefinn reikning, en eft-
ir bókun færslunnar stóð viðskiptamanna-
reikningurinn í kr. 168.031.286,00, en skuld
einkahlutafélagsins var gerð upp með
kaupum Baugs hf. á öllu hlutafé í Viðskipta-
trausti ehf., sem fært var til lækkunar á
viðskiptamannareikningi einkahlutafélags-
ins hinn 30. júní 2000 fyrir kr. 16.000.000,00.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Viðskiptatraust ehf. var sameiginlegt verk-
efni SPRON og Bónus um útgáfu greiðslu-
korta fyrir Bónus sf., sem á þeim tíma tók
ekki við slíkum kortum. Ekkert varð af verk-
efninu og að kröfu SPRON keypti Gaumur
hlutafé SPRON í Viðskiptatrausti ehf. Sam-
komulag var um að Baugur keypti umrætt
hlutafé og greiddi kaupverðið til SPRON og
tók yfir starfsemi Viðskiptatrausts. Staða á
viðskiptamannareikningnum vegna þessa var
gerð upp með kaupum Baugs á öllu hlutafé í
Viðskiptatrausti hálfu ári síðar. Ekki getur
verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða,
þar sem allan auðgunarásetning skorti og eng-
in leynd hvíldi yfir viðskiptunum.
14. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 14. desember 1999 látið
millifæra kr. 35.000.000,00 af bankareikn-
ingi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, á banka-
reikning Fjárfestingafélagsins Gaums ehf.,
nr. 0527 26 001099, vegna kaupa einkahluta-
félagsins á 186.500 hlutum í Debenhams
PLC í Bretlandi. Í bókhaldi Baugs hf. var
greiðslan til einkahlutafélagsins færð sem
viðskiptakrafa á viðskiptamannareikning
einkahlutafélagsins, sem eftir bókun milli-
færslunnar stóð í kr. 201.001.430,00 en
framangreind skuld einkahlutafélagsins,
kr. 35.000.000,00, var gerð upp með greiðslu
hinn 22. desember 1999 til hlutafélagsins.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Framangreint viðskiptalán var að fullu endur-
greitt eins og fram kemur í verknaðarlýsingu.
Í bréfum JÁJ 5. mars 2004 og 30. júní 2005 er
m.a. greint frá margháttuðu samstarfi Baugs
og Gaums þar sem Gaumur fór oft á undan í
leit að fjárfestingum og tók áhættuna af þeim.
Fjárfestingarnar voru síðan færðar yfir til
Baugs sem hagnaðist verulega á viðskiptun-
um. Þessi viðskipti sem stóðu í tengslum við
einkaleyfi fyrir Debenhams á Íslandi og síðar
á Norðurlöndunum eru skýrt dæmi um slíkt
samstarf. Ekki getur verið um fjárdrátt eða
umboðssvik að ræða þar sem skuldin var
greidd upp og allan auðgunarásetning skorti
og engin leynd ríkti um lánveitinguna.
15. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 13. febrúar 2001 látið færa
kröfu á viðskiptamannareikning Fjárfest-
ingafélagsins Gaums ehf. hjá Baugi hf. að
fjárhæð kr. 50.529.987,00 vegna kaupa
einkahlutafélagsins á hlutabréfum í Baugi
hf. í hlutafjárútboði í félaginu í desember
árið 2000 þegar einkahlutafélagið eignaðist
bréfin. Ákærðu Kristín sem framkvæmda-
stjóra einkahlutafélagsins gat ekki dulist
að lánveitingin, sem var án skuldaviður-
kenningar, trygginga og samnings um end-
urgreiðslu og lánakjör, var ólögmæt og
andstæð hagsmunum Baugs hf. Í bókhaldi
Baugs hf. var krafan færð á viðskipta-
mannareikning einkahlutafélagsins. Eftir
bókun kröfunnar stóð viðskiptamanna-
reikningurinn í kr. 145.871.863,00 en skuld
einkahlutafélagsins var síðar gerð upp með
víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs
ákæru.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Hér er um að ræða lán viðskiptalegs eðlis sem
eru heimil. Viðskiptalánið var að fullu endur-
greitt 20. maí 2002 áður en til húsleitar RLS
kom. Ekki getur verið um fjárdrátt eða um-
boðssvik að ræða þar sem allan auðgunará-
setning skorti og engin leynd ríkti um lánveit-
inguna. Ítarlega er fjallað um óheimilar lán-
veitingar í álitsgerð Jónatans Þórmundssonar.
Þar segir m.a. að undantekning í 3. málsl. 2.
mgr. 104. gr. hlutafélagalaga heimili hlutafé-
lagi að veita starfsmönnum félagsins eða
tengds félags lán til kaupa á hlutum í félaginu.
16. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 13. febrúar 2001 látið færa
kröfu á viðskiptamannareikning ákærðu
Kristínar í bókhaldi Baugs hf. að fjárhæð
kr. 3.786.727,00 vegna kaupa ákærðu Krist-
ínar á hlutabréfum í Baugi hf. í hlutafjárút-
boði í félaginu í desember 2000 þegar
ákærða eignaðist hlutabréfin. Ákærðu
Kristínu gat ekki dulist að lánveitingin,
sem var án skuldaviðurkenningar, trygg-
inga og samnings um endurgreiðslu og
lánakjör, var ólögmæt. Arðgreiðsla af
hlutabréfum fyrir árið 2001, kr. 397.894,00,
var færð til lækkunar á skuldinni hinn 5.
júlí 2001 en skuld ákærðu var gerð upp með
víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs
ákæru.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Hér er um að ræða lán viðskiptalegs eðlis sem
eru heimil. Viðskiptalánið var að fullu endur-
greitt 20. maí 2002 áður en til húsleitar RLS
kom. Ekki getur verið um fjárdrátt eða um-
boðssvik að ræða þar sem allan auðgunará-
setning skorti og engin leynd ríkti um lánveit-
inguna. Ítarlega er fjallað um óheimilar lán-
veitingar í álitsgerð Jónatans Þórmundssonar.
Þar segir m.a. að undantekning í 3. málsl. 2.
mgr. 104. gr. hlutafélagalaga heimili hlutafé-
lagi að veita starfsmönnum félagsins eða
tengds félags lán til kaupa á hlutum í félaginu.
17. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að hafa
hinn 18. maí 2001 látið millifæra kr.
100.000.000,00 af bankareikningi Baugs hf.,
nr. 0527 26 000720, inn á bankareikning nr.
0527 26 001099 í eigu Fjárfestingafélagsins
Gaums ehf., sem ákærðu Kristínu, sem var
framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins,
gat ekki dulist að var ólögmætt og andstætt
hagsmunum Baugs hf., enda lánveitingin
án þess að einkahlutafélagið legði fram
skuldaviðurkenningu, tryggingu eða samn-
ing um endurgreiðslu eða lánakjör, fyrir
fénu, sem ráðstafað var samdægurs af
bankareikningi einkahlutafélagsins til Nor-
dic Restaurant Group AB, sem hlutafjár-
framlag einkahlutafélagsins í því félagi. Í
bókhaldi Baugs hf. var millifærslan til
einkahlutafélagsins færð sem krafa á við-
skiptamannareikning einkahlutafélagsins,
sem eftir bókun millifærslunnar stóð í kr.
262.836.989,00 en skuld einkahlutafélagsins
var síðar gerð upp með víxlinum sem
nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS:
Hér er um að ræða lán viðskiptalegs eðlis sem
eru heimil. Lánið var að fullu endurgreitt 20.
maí 2002 áður en til húsleitar RLS kom. Um-
ræddu félagi, Nordic Restaurant Group AB,
sem var handhafi rekstrarleyfis fyrir Pizza
Hut í Svíþjóð og á Íslandi, var m.a. ætlað að
kaupa veitingarekstur af norska félaginu
Reitan Gruppen, sem var þá einn af stærstu
hluthöfum Baugs. Gaumur hefur í gegnum
tíðina oft tekið upphafsáhættu í fjárfestingar-
verkefnum sem Baugur hefur svo tekið yfir,
sbr. athugasemdir sakborninga við ákærulið
14. Svo var í þessu tilviki. Eignarhluturinn í
Nordic Restaurant Group er nú í eigu Baugs.
Ekki getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik
að ræða þar sem allan auðgunarásetning
skorti og engin leynd ríkti um lánveitinguna.
Ítarlega er fjallað um óheimilar lánveitingar í
álitsgerð Jónatans Þórmundssonar.
18. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 16. maí 2000 misnotað að-
stöðu sína þegar þeir lánuðu, án lánasamn-
ings, trygginga eða ábyrgða, kr.
64.500.000,00, fyrir hönd Baugs hf. til
einkahlutafélagsins Fjárfars, kt. 521198-
2149, sem ákærði Jón Ásgeir stjórnaði og
rak, vegna kaupa einkahlutafélagsins á
hlutabréfum í Baugi hf., að nafnverði kr.
5.000.000,00. Skuld Fjárfars ehf. við Baug
hf., var gerð upp eftir húsleit lögreglu hjá
Baugi hf., hinn 28. ágúst 2002.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Viðskiptalánið var að fullu endurgreitt. Ekki
getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik að
ræða þar sem allan auðgunarásetning skorti,
2 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR