Fréttablaðið - 13.08.2005, Síða 70

Fréttablaðið - 13.08.2005, Síða 70
Breska leikkonan Caroline Dalton segist hafa fílelfst með því að bregða sér í hlutverk ís- lensku valkyrjunnar Guð- ríðar Þorbjarnardóttur. Hún sýnir „Ferðir Guð- ríðar“ í Skemmtihúsinu við Laufásveg í sumar. „Ég er mjög hrifinn af sögunni og held að margir Íslendingar hefðu líka gott af því að kynnast Guðríði betur,“ segir breska leikkonan Caroline Dalton en hún fer nú með hlutverk Guðríðar Þor- bjarnadóttur í „Ferðum Guðríðar“ eftir Brynju Benediktsdóttur. „Ferðir Guðríðar“ hefur verið sýnt á ensku síðastliðin sumur í Skemmtihúsinu við Laufásveg og er aðallega stílað inn á erlenda ferðamenn en átta leikkonur hafa nú spreytt sig á hlutverki Guðríð- ar Þorbjarnardóttur og verk Brynju verið sýnt á leiklistarhá- tíðum víða um heim. „Guðríður giftist þrisvar og var meðal ann- ars mágkona Leifs heppna. Hún ferðaðist til Grænlands og Vín- lands og fór í pílagrímsferð til Rómar en endaði sem nunna í Glaumbæ,“ segir Caroline en Guðríður er talin ein víðförlasta kona miðalda og verkið er meðal annars unnið upp úr Eiríks sögu Rauða og Grænlendingasögu. „Það hefur góð áhrif á mig að leika svona sterka kvenpersónu og þótt tíminn sé annar finnst mér Guðríður vera mjög lík þeim ís- lensku konum sem ég hef komist í kynni við,“ segir Caroline. „Sér- staklega finnst mér áberandi hvað konurnar hér eru sterkar, sjálf- stæðar og ákveðnar í að láta drauma sína rætast,“ en Caroline Dalton hefur verið búsett hérlend- is í rúmt ár. „Ég kom til landsins því ég er gift íslenskum leikara. Við kynntumst við nám í leiklist í Guilford College og höfum búið saman í Bretlandi í sjö ár,“ en Caroline er gift leikaranum Páli Sigþóri Pálssyni sem meðal ann- ars hefur farið með hlutverk í Meistaranum og Margaríta í H a f n a r f j a r ð a r l e i k h ú s i n u . „Draumurinn er að geta unnið bæði hér á landi og í London og núna er ég að reyna að skipu- leggja sýningar á „Ferðum Guð- ríðar“ í leikhúsi sem kallast 503 og er að finna í Battersea í London.“ Sýningar á „Ferðum Guðríðar“ verða í Skemmtihúsinu við Lauf- ásveg á sunnudagskvöldum klukkan 18.00 og fimmtudags- kvöldum klukkan 20.00 út sumar- ið. Miða er hægt að nálgast á Upp- lýsingamiðstöð ferðamála Aðal- stræti 2. ■ 38 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR > Ekki missa af ... ... Jasstríóinu Kind á kaffihúsi Jómfrú- arinnar við Lækjargötu milli 16 og 18 í dag. Tríóið skipa þeir Óskar Guðjónsson á saxófón, Þórður Högnason á kontrabassa og Einar Valur Scheving á trommur. ...Leiksýningu leikfélagsins Guma í Hjá- leigunni í Kópavogi. Gumar flytja verkið Skemmtiferð á vígvöllinn eftir Arrabal en frítt er á sýninguna. ...Alice Cooper í Kaplakrika en hljóm- sveitirnar Dimma, Sign, Dr. Spock og Brain Police hita upp.Sagnaþing um Íslendingasögur úr Þingeyjarþingi verður haldið í Framhaldsskólanum Laugum í Reykjadal um helgina. Farið verður á sögustaði Ljós- vetningasögu og Reykdælu í fylgd staðkunnugra og fornleifastaðir skoðaðir undir leiðsögn fræðimanna. Erindi á þinginu flytja: Adolf Friðriksson, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Árni Einarsson, Gísli Sigurðsson, Gudrun Lange, Guðvarður Már Gunnlaugsson, Jón Hnefill Aðalsteinsson, Jónas Kristjánsson og Svavar Sigmundsson. Dagskrá þingsins hefst klukkan 10.30 í dag og lýkur um klukkan 15.00 á sunnudaginn. Stofnun Sigurðar Nordals og Þingeyingar standa fyrir sagnaþinginu og frekari upplýsingar er að finna á vef stofnunarinnar www.nordals.hi.is. Þingeyjarsveit, Sparisjóður Suður-Þingeyinga, Menn- ingar- og viðurkenningasjóður KEA svf. og mennta- málaráðuneytið styðja ráðstefnuna. Í Nýlistasafninu um helgina verða tvær áhugaverðar sýningar. Lorna, fé- lag áhugafólks um rafræna list, opnar sýningu klukkan 16.00 í dag. Listahá- tíðin Krútt sem fauk niður af Snæ- fellsnesi síðustu helgi er komin til borgarinnar og gefst gestum Nýlista- safnsins kostur á að taka þátt í hátíð- inni klukkan 20.00 í kvöld. menning@frettabladid.is Á sögusló›ir Ljósvetningasögu og Reykdælu CAROLINE DALTON Caroline er áttunda leikkonan sem bregður sér í gervi Guðríðar Þor- bjarnardóttir í „Ferðum Guðríðar“ sem sýnt er í Skemmtihúsinu við Laufásveg. Íslenskar konur sjálf- stæðar og sterkar ! Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin alla daga frá kl. 12-18 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu Lau 13/8 kl 14, Su 14/8 kl 14, Lau 20/8 kl 14, Su 21/8 kl 14 8. sýn. í dag kl. 14 nokkur sæti laus 9. sýn. sun. 21/8 kl. 14 nokkur sæti laus 10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 sæti laus S‡ning um Jón úr Grunnavík Þriðjudaginn 16. ágúst verður opn- uð í Þjóðminjasafni Íslands sýn- ingin Eldur í Kaupinhafn, í tilefni af því að 300 ár eru frá fæðingu Jóns Ólafssonar úr Grunnavík. Sýningin er samvinnuverkefni Þjóðminjasafnsins og Góðvina Grunnavíkur-Jóns og fjallar um fræðimanninn Jón Ólafsson (1705- 1779), ævi hans og störf. Sýningunni er ætlað að vekja athygli á eldhuganum Jóni Ólafs- syni, ótrúlega fjölbreyttu og viða- miklu ævistarfi hans og mikil- vægu framlagi hans til menning- arsögu Íslands. Jón Ólafsson samdi fjölda rit- smíða um allt milli himins og jarð- ar, svo sem málfræði, orðskýring- ar, fornkvæðaskýringar, kennslu- kver í íslensku, rúnafræði, nátt- úrufræði, fiskafræði, steinafræði, skáldskaparfræði og margt fleira. Þegar bruninn varð í Kaup- mannahöfn árið 1728 tók Jón þátt í því að forða hinu mikla handrita- safni Árna Magnússonar frá eld- inum. Jón samdi síðar lýsingu á þessum örlagaríka atburði og er hún ein merkasta samtímaheimild sem um brunann er varðveitt. Í tengslum við opnun sýningarinn- ar kemur lýsing Jóns út á bók í umsjón Sigurgeirs Steingrímsson- ar/ Relatio af Kaupinhafnarbrun- anum sem var í október 1728/. Fluttur verður útvarpsþáttur um Jón Ólafsson á Rás 1 sunnu- daginn 14. ágúst í umsjón Péturs Gunnarssonar sem nefnist Fjarri hundagelti heimsins og Laugar- daginn 20. ágúst verður dagskrá á Menningarnótt í Þjóðminjasafni Íslands þar sem lesið verður úr verkum Jóns Ólafssonar úr Grunnavík. Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember verður haldið svo mál- þing um Jón í Þjóðminjasafni Ís- lands. ■ Styttist í Menningarnótt Menningarnótt verður haldin há- tíðleg í tíunda skiptið í Reykjavík næstkomandi laugardag. Dagskráin í ár er afar fjöl- breytt og glæsileg og líkir Sif Gunnarsdóttir, skipuleggjandi há- tíðarinnar, undirbúningnum við amöbu sem hlykkist í allar áttir og breiðir sífellt meira úr sér og verður veigameiri eftir því sem nær dregur að Menningarnótt. Af hápunktum Menningarnæt- ur í ár má nefna Kirkjulistahátíð sem sett verður klukkan 16:00 í Hallgrímskirkju á laugardaginn og svo stendur yfir dagskrá í kirkjunni fram eftir kvöldi. Um- fjöllun um galdra og dulmagn verður í Þjóðminjasafni og í Þjóð- arbókhlöðu lungann úr deginum þar sem lögð verður áhersla á að skemmta börnum og fullorðnum. Reykjavíkumaraþonið verður á sínum stað sem og dagskrá á sviði á Lækjartorgi. Uppákomur, myndlist, sýning- ar, tónlist, kvæði, fræði, flugsýn- ingar og alls kyns aðrir dagskrár- liðir munu einkenna miðborgina allan daginn. Hin ýmsu fyrirtæki og stofnanir verða opin gestum og munu bjóða upp á ýmislegt áhuga- vert yfir daginn. Það er skemmst frá því að segja að borgin verður stútfull af menningu við allra hæfi. Deginum lýkur svo með stór- tónleikum Rásar 2 á Miðbakka Reykjavíkurhafnar klukkan 21.00 þar sem meðal annars koma fram Todmobile, Hjálmar, Í svörtum fötum, KK og Maggi Ei- ríks svo einhverjir séu nefndir. Tónleikunum lýkur svo klukkan 23:00 og í kjölfar þeirra verður flugeldasýning í boði Orkuveitu Reykjavíkur. ■ MENNINGARNÆTURNAUTIÐ Þetta glæsilega naut var heilgrillað ofan í gesti og gangandi á Menningarnótt í fyrra. Á Menningarnótt í ár verður aftur grillað naut ofan í gesti Menningarnætur. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Næstkomandi þriðjudag opnar sýning um Jón Ólafsson úr Grunna- vík í Þjóðminjasafni Íslands. M YN D /J Ó H AN N G U Ð N I

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.