Fréttablaðið - 13.08.2005, Qupperneq 71
LAUGARDAGUR 13. ágúst 2005 39
Starfsmöguleikar:
Innkaupastjóri
Útlitsráðgjafi
Stílisti
Verslunarstjóri
1. Önn
Litgreining
Förðun út frá litgreiningu
Litasamsetning
2. Önn
Fatastíll
Fatasamsetning
Textill
Stundaskrá
The Academy of Colour and Style er alþjóðlegur
skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars
tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám
fá nemendur alþjóðlegt diplóma í útlitsráðgjöf
(fashion consultant).
Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi
og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn
með náminu. Kennsla fer fram í Iðnskólanum í
Reykjavík einu sinni í viku frá 18-21.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 INNRITUN ER HAFIN FYRIR HAUSTÖNN
Kristín, ráðgjafi
Ég hef mikin áhuga á að
starfa með fólki, veita
ráðgjöf varðandi fatnað,
liti og förðun sem hentar
hverjum og einum. Mér
finnst námið bæði lifandi
og skemmtilegt sem einnig hefur opnað margar
dyr til frekari náms á þessu sviði.
Ragnheiður, ráðgjafi
Ég hef alltaf haft áhuga
á tísku og útliti. Námið
opnaði mér nýja sýn á
þetta áhugamál mitt.
Auk þess er það mér
mikils virði í tengslum við starf mitt.
Birna,
verslunareigandi -
Stílistinn
Það hefur alltaf verður
draumur hjá mér að
stofna verslun með
fatnað. Námið gaf mér það sjálfstraust sem ég
þurfti til að fara út í reksturinn. Einnig nýti ég
námið til þess að ráðleggja viðskiptavinum mínum
hvaða snið og litir hentar þeim í val á fatnaði.
Sími 533-1100 - www.broadway.is
hinn árlegi stórdansleikur
Miðaverð kr. 2000.
Miðasala hefst kl. 15
á laugardag.
Húsið opnað
klukkan 23:00
LAUGARDAGSKVÖLDI‹ 13. ÁGÚST
Milljónamæringarnir
Sérstakir gestir kvöldsins:
Diddú og Raggi Bjarna
Þriðja sólóplata Ásgeirs Óskars-
sonar, sem er eflaust þekktastur
sem trommuleikari Stuðmanna,
er komin út. Gripurinn nefnist Sól
og hefur að geyma tíu ósungin lög.
Síðustu tvær plötur Ásgeirs komu
út 1995 og 2003 og voru þær báðar
með sunginni tónlist.
Ásgeir segist hafa unnið plöt-
una undanfarin tvö ár en lögin
hafi hann átt á lager. „Ég á fullt af
músik og þessi plata er samin á
löngum tíma. Ég held ég hafi náð
að gefa þessari plötu ágætis heild-
arsvip,“ segir Ásgeir, sem segir
það tölvert öðruvísi að vinna einn
en með stórri hljómsveit. „Það
hefur bæði sínar góðu og slæmu
hliðar. Maður er lengur að melta
hlutina og taka ákvarðanir. Ef
maður er með efasemdir tekur
lengri tíma að sannfærast,“ segir
hann en bætir því að hann sé mjög
ánægður með nýju plötuna.
Ásgeir segist ungur að aldri
hafa orðið fyrir áhrifum frá Bítl-
unum og eftir það hafi ekki verið
aftur snúið. Síðan þá hafi hann
orðið fyrir áhrifum frá hinum
ýmsu tónlistarmönnum. ■
MILLASTUÐ Diddú og Páll Óskar eru meðal þeirra sem syngja á Millaballinu í kvöld.
Millarnir og Diddú
á Broadway í kvöld
ÁSGEIR ÓSKARSSON Ásgeir er að gefa út sína þriðju sólóplötu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
firi›ja sólóplata Ásgeirs
„Það er náttúrlega ekkert vit í
þessu dæmi, þetta er bara flipp
og gaman,“ segir Bogomil Font,
söngvari Milljónamæringanna,
en árlegt ball gleðisveitarinnar
verður á Broadway í kvöld og óp-
erusöngkonan Sigrún Hjálmtýs-
dóttir er sérstakur gestasöngv-
ari. „Við erum alltaf að fá til liðs
við okkur fólk sem er flinkara en
við þannig að við sjálfir lítum
náttúrlega bara út eins og kján-
ar,“ segir Bogomil, „Það er
skemmtilegast,“ en áralöng hefð
hefur nú skapast fyrir gesta-
söngvurum á balli Milljónamær-
inganna. „Diddú ætlar bara að
syngja Alice Cooper-lög í kvöld,“
segir Bogomil Font en dregur svo
eitthvað í land með yfirlýsing-
una. „Nei annars, hún ætlar að
taka uppáhaldslögin sín, bæði
gömul og ný. Ætli það verði ekki
þarna einhver lög frá Spilverkinu
og svo jafnvel lög með Ellý Vil-
hjálms,“ en auk Bogomils eru
Páll Óskar og Bjarni Arason aðal-
söngvarar Milljónamæringanna.
„Ætli þau systkinin Páll Óskar og
Diddú komi ekki til með að klæð-
ast skóm þeirra Ellýjar og Vil-
hjálms og svo er aldrei að vita
nema óvæntir leynigestir stígi
með okkur á svið,“ segir Bogo-
mil, en vitað mál er að Raggi
Bjarna verður einn af gesta-
söngvurum kvöldsins.
Bogomil Font var fyrsti
söngvari Millanna er hljómsveit-
in var stofnuð fyrir þrettán
árum. Auk allra söngvaranna eru
núverandi meðlimir hljómsveit-
arinnar Einar Jónsson á trompet,
Birgir Bragason á bassa, Stein-
grímur Guðmundsson á trommur
og Jóel Pálsson á saxófón. ■
FRIENDS
VIRKA DAGA KL. 20:30