Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.08.2005, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 13.08.2005, Qupperneq 72
Eitt af fáu sem hægt er að ganga að vísu í þessum heimi er það að tískan feralltaf í hringi. Þessa dagana eru föt í anda sjöunda áratugarins sjóðheit ogallir frægustu fatahönnuðir heims, þar á meðal Christian Dior, Karl Lag- erfeld, Stella McCartney og Dolce&Gabbana, eru undir miklum áhrifum sixtís- tískunnar í haust- og vetrarlínum sínum. Sixtís-tískan er mjög klassísk og dömu- leg en það eru nokkrir lykilhlutir sem einkenna hana. Fyrst má nefna það sem kallast A-snið, en það nafn er komið af því að flíkurnar eru sniðnar eins og staf- urinn A. Þannig eru bæði kápur og kjólar þröng um axlirnar en víkka svo út í beinni línu. Hvort tveggja er mjög stutt og síddin er sjaldnast niður fyrir hné. Kápurnar eru ekki hafðar níðþröngar heldur látn- ar leggjast létt að líkamanum og þær eru gjarnan með frekar stuttum ermum. Kraginn á að vera lítill og rúnnaður en hnapparnir stórir og kápan jafnvel tvíhneppt. Þrátt fyrir að vera stuttir eru kjólarnir aldrei ögrandi og flegnir heldur er mikilvægt að hálsmálið sé kringt umhverfis hálsinn. Oftast voru konurnar í þykkum sokkabuxum undir þeim, og rúllukragapeysum eða skyrtum með púffermum. Út- litið var svo fullkomnað með slaufum í hári, um háls eða mitti. Við þessi fallegu föt gengu konur síðan í háum stígvélum með rúnnaðri tá sem annaðhvort voru flatbotna eða með háum hæl. Einnig voru Mary Jane skór eða ballerínuskór vinsælir. soleyk@frettabladid.is 40 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR MEST LESNA TÍMARIT LANDSINS Birta er komin út ! Bragðmikið og girnilegt sjávarfang Svartur jakki Sígilt Hvítt tíska tíðarandin n heilsa kónga fólk pistlar ma tur stjörnuspá SJ Ó NV AR PS DA GS KR ÁI N 12 . á gú st - 1 8. ág ús t » Hefur aldrei trú að á töffaraskapi nn VALGEIR GUÐJÓNSSON » sígilt og fallegt allt árið HVÍTT » bragðmikið og girnilegtSJÁVARFA NG enn í stuði Valgeir Guðjónsso n Hefur aldrei trúa ð á töffaraskapin n MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN CHANEL Hefur ætíð verið framar- lega í sixtís-tísk- unni. Hér er fyrir- sætan í fallegri tweed-dragt með slaufu í hárinu og kvenlega hanska. DORIS DAY í svörtum og hvítum, þverröndóttum bol. Sveiflandi60’s LOÐVESTI Loðkragar voru notaðir í hófi en þetta vesti úr Deben- hams væri æðislegt yfir rúllukragapeysu og míní-pilsi. KÁPA Flott, tvíhneppt kápa með litlum kraga úr Zöru. KÁPA Þessi sæta sixtís-kápa úr Top- shop verður æðis- leg í vetur. TWIGGY Eitt af því skemmtilegasta við sixtís- tískuna var hár og förðun. Konur stóðu tímunum sam- an fyrir framan spegilinn og túberuðu hárið og ekki var minni tíma eytt í augnmáln- inguna. Útlitið er allt saman mjög dúkkulegt með þykk- um eyeliner og stórum gerviaugnhárum til að stækka augun sem mest. Minni áhersla var lögð á var- irnar í staðinn og einungis settur ljósbleikur varalitur eða húðlitað gloss. STÍGVÉL Það verða allar konur sjálf- krafa gellur um leið og þær fara í þessi geggjuðu stígvél úr Topshop. HÁLSMEN Skartgrip- irnir voru gjarnan stórir og áberandi eins og þetta hálsmen úr Vila. STÍGVÉL Mergj- uð stígvél úr Zöru sem þægilegt er að ganga í. JAKKI Tweed var mjög mikið notað á sjöunda áratugnum en þessi fallegi jakki er úr Zöru. ANNAÐ SIXTÍSTREND Litasamsetn- ingin svart og hvítt. Þverröndóttir bolir og föt með houndstooth-köflum voru áberandi í svarthvítu. PEYSA Þessi peysa úr Zöru er í þeim stíl sem Chanel var með á sjöunda áratugnum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. & G ET TY Brasilísk tíska vi› frostmark Það er farið að hausta og það er góð tilfinning. Á þessum tíma er gott að taka til í fataskápnum, sækja allar fallegu ullarpeysurnar sem voru settar í efstu hilluna í vor og kaupa sér ný leðurstígvél. Haustið er tími breytinga og það er um að gera að stokka upp í til- verunni. Þetta á ekki bara við um heim fatatískunnar heldur á öll- um vígstöðvum. Undanfarin ár hafa konur kappkostað að raka af sér nær öll líkamshár og háreyðingarkrem og vax hafa selst gríðar- lega vel í öllum apótekum. Sérstakir snyrtifræðingar hafa sérhæft sig í brasilísku vaxi en sú tískubóla náði hámarki þegar Samantha í Sex and the City framkvæmdi þá aðgerð í einum þættinum. „Vin- konan“ fékk sama útlit og tólf ára stelpa og henni fannst það bara nokkuð svalt þó hún væri að skríða á fimmtugsaldurinn. Brasilíska vaxið náði þó ekki bara flugi í New York heldur varð þetta mikið „trend“ hérlendis. Nú þarf hins vegar að setja þessa tískubólu á ís og koma „vinkonunni“ í vetrarbúning enda er það löngu orðið úrelt að vera sköllóttur að neðan. Hausttískan er í takt við liðna tíma. Fatahönnuðir reyna að fanga stemningu liðinna tíma og mikilla áhrifa gætir frá 60’s og 70’s tímanum. Á þeim tíma þótti hallæris- legt að vera rakaður og aðalbombur þessa áratuga voru að öllum líkindum kafloðnar. Meira að segja þær óheillakrákur sem leiddust inn á brautir klámiðnaðarins fóru ekki að raka sig fyrr en á níunda ára- tugnum. Ég get alveg lofað því að Twiggy og Ursula Andress fóru ekki í brasil- ískt vax og hefðu ekki látið sjá sig dauðar með broddóttar „vinkonur“. Sjálfri finnst mér sköllóttar „vin- konur“ hræðilega ósmekklegar og svo er ekkert meira ósjarmerandi en þegar hárin fara að vaxa aftur. Það veldur bara leiðindum eins og kláða og öðru slíku. Mannslíkaminn er meistarastykki og öll þessi líkamshár hljóta að þjóna einhverjum tilgangi. Niður með rakvélina og njótum þess að vera retro innanklæða sem utan. Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00. Síðasti dagur útsölu Ótrúleg tilboð Minnst 60% afsláttur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.