Tíminn - 26.10.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 26. október 1975.
TÍMINN
5
Willy Brandt:
Hann gleymir aldrei svikum
A-Þýzkalands
Willy Brandt litur prýðilega út
þar sem hann stendur sportlega
klæddur fyrir framan sumarbú-
staðinn sinn i Vangsásen i Noregi,
en það er örskammt frá Hamar,
fæðingarstað konu hans, Rut
Brandt.
Fyrir tveimur árum var skilti
um það bil 500 metra frá inn-
keyrslunni, sem á stóð „kjör
sakte”. Það var ekki af tillitssemi
við kanslarann heldur út af
eggjagrjóti og holum i veginum.
Nú hefur vegurinn verið malbik-
aður.
Margt fleira hefur breytzt á
þessum tveimur árum. Willy
Brandt er ekki lengur kanslari.
Gúnther Guillaume, sem þá var
fulltrúi hjá kanslaraembættinu,
og hafði með flokksmál að gera,
er kominn bak við lás og slá.
Fréttamiðstöðin sem var komið
fyrir i farfuglaheimili skammt
frá sumarbústaðnum er ekki
lengur til. En öryggisverðirnir
eru enn fyrir hendi, þrir að tölu.
Formaður Sósialdemókratiska
flokksins verðir að vera undir
vernd, lika i friinu.
Hið 7000 fermetra land keypti
Rut Brandt árið 1965 fyrir litil-
ræði. Þrir timburkofar stóðu
þegará þvi og hinum fjórða hefur
Rut Brandt bætt við. Þar að auki
er flatbyggður ibúðarvagn, sem
öryggisvörður skriður út úr, um
leið og einhver nálgast. Stundum
stoppa hópferðabilar með þýzka
ferðamenn, sem vilja fá eigin-
handaráritun „Willy”. — Flestir
skilja það aftur á móti, þegar
þeim er sagt að ég vilji ekki láta
ónáða mig, segir hann.
Willy Brandt liggur ekki i leti i
friinu. Hann hefur með sér heil-
mikla vinnu. Bækur, sem ekki
vannst timi til að lita i gegnum i
dagsins önn. Þar fyrir utan skrif-
ar hann á hverjum degi hluta af
hugleiðingum sinum um utan-
rikisstjórnmál.
Rut Brandt er 55 ára en hefur
vöxt ungrar stúlku — Ætlarðu i
aðrar buxur, áður en þú borðar,
Willy”? spyr hún. — Verð ég að
gera það? spyr hann og litur niður
á kæruleysislegan klæðnað sinn.
Gengur siðan i burtu til að fara i
buxur, sem sitja betur og uppá-
haldsskyrtuna blá- og hvit-
röndótta norska bændablússu.
Rut Brandt, sem talar enn með
svolitlumskandinaviskum hreim,
sér alveg um heimilið, aðeins
einu sinni i viku kemur kona til að
aöstoða við að taka til. A þessum
degi er hádegismaturinn kjötboll-
ur með baunum og kartöflum,
sem eru vel þvegnar og borðaðar
með hýðinu. Með þvi er drukkinn
óáfengur bjór, — Willy Brandt
drekkur ekkert áfengi, siðan hann
komst að þvi, að hann komst af án
daglegu vinkrúsarinnar sinnar.
Hann reykir afturá móti mikið og
segir, að án þess mundi honum
liða miklu verr.
Jafnvel þó hann sé i frii lifnar
hann allur við, þegar stjórnmál
Ber á góma. Þar er hann vel
heima.
— Eftir afsögn mina siðastliðið
ár, sagði hann hefði ég getað
dregið mig alveg til baka, laus við
allar áhyggjur og ábyrgð. Aðrir
hafa gert það á undan mér, en ég
get það ekki.
Sumir halda ef til vill, að
Brandt sé vonsvikinn og beiskur
fyrrverandi kanslari. Það er hann
ekki.
— Ég stundaði pólitik, sem var
árangursrik sagði hann, Og hann
minntist á Berlin, á austursamn-
ingana og takmark stjórnmál-
anna i Þýzkalandi. Hann fer vifi-
lengjulaust að tala um A-Þýzka-
land. — Ég hef ekkert á móti
þeim, þeir eiga ábyggilega ekki
auðvelt heldur. En það þýðir
ekkert að tala meira við mig.
Kohl (fastafulltrúi A-Þýzkalands
i Bonn hefur oft beðið um viðtal
við mig. Ég vil ekki sjá hann. —
Þér vitið að allt hefur einhver
takmörk.
Nafnið Gúnther Guillaume
hefur ekki heyrzt. Hann er ekki
lengurtil fyrir Willy Brandt. Von-
brigðin virðast vera yfirunnin eða
þeim ýtt til hliðar. En svik A-
Þýzkalands mun Willy Brandt
aldrei skilja eða komast yfir þau.
Þeir svöruðu útréttri hönd hans
með sparki.
Við grillið um kvöldið er gert
hlé á st jómmálaumræðum. Willy
Brandt segir grinsögur og brand-
ara um Austur-Frislendinga, og
hann er léttur og kátur.
Rut og Willy Brandt hvflast i
norskri náttúru.
Sumarbústaðurinn i Vangsásen.
Veiðistöngin er Brandt góður
tómstundavinur.