Tíminn - 26.10.1975, Blaðsíða 39
Sunnudagur 26, október 1975
Trésmíðafélag Reykjavíkur:
FULLYRÐINGAR UM KAUP TRÉSMIÐA
ORÐUM AUKNAR
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi athugasemd frá trésmiðafé-
lagi Reykjavikur:
„t þætti sjónvarpsins „Kast-
ljós” s.l. fötudag þar sem rætt var
um ákvæðisvinnu, var m.a. full-
yrt að trésmiðir i tilteknu verki
hefðu haft kr. 3.000.- á timann fyr-
ir tveimur árum og að það jafn-
gilti um kr. 6.000,- á verðlagi
dagsins i dag. Við eftirgrennslan
hefur komið i ljós að það verk,
sem vitnað var i, var uppsláttur i
sökklum undir einbýlishús við-
lagasjóðs við Keilufell i Breið-
holti.
SJ-Reykjavik. Þegar Kristur
kemur.... Þannig hljóðar yfir-
skrift æskulvðsviku K.F.U.M og
K„ sem hefst sunnudaginn 26.
október. Þar verður fjallað um
meginatriði kristinnar trúar.
Bent er á að Jesús eigi erindi til
nútimamanna.
Meðal þeirra sem koma fram á
samkomum vikunnar, sem eru öll
kvöld þessarar viku, eru skóla-
presturinn Jón D. Hróbjartsson
og sr. Guðmundur Oli Ólafsson
auk hóps ungs fólks, m.a.
guðfræðinemar Mikið verður um
söng á samkomunum.
Æskulýðsvikur K.F.U.M. og K.
hafa verið haldnar i um 40 ár.
Allir eru velkomnir á sam-
komurnar, sem hefjast kl. 20.30.
Uppmælingar á þessum sökkl-
um voru framkvæmdar af mæl-
ingarstofu Trésmiðafélags
Reykjavikur og þar sem öll gögn
varðandi uppmælingar eru
geymd i nokkur ár þá er hægt að
kanna sannleiksgildi þessarar
fullyrðingar.
Þessir sökklar voru unnir á
; timabilinu júli til nóvember 1973.
Samtals voru framkvæmdar 54
uppmælingar af þessum sökkl-
um. Meðalkaup trésmiða við
þessa vinnu var kr. 372.14. Hæst
komst kaup i einni mælingu, sem
tók 27 tima að vinna, þar reyndist
kaupið kr. 751.09 pr. tima. Lægst
var kaup i mælingu sem tók 150
tima að vinna. Þar reyndist kaup-
ið vera kr. 122.76. Umsamið með-
. alkaup i timavinnu á þessu tima-
bili var kr. 188.58 i dagvinnu.
Það skal tekið fram, að Iaun i
þessum sökklum eru hærri en
meðaltal ákvæðisvinnu á þessu
thnabili.
Það skal einnig tekið fram, að á
þessu timabili (júli til nóvember
1973) urðu kaupbreytingar og er i
framangreindum tölum miðað
við meðalkaup á timabilinu.
Þótt ákvæðisvinna sé gagnrýnd
og þótt hún skili i sumum tilvik-
um mjög góðu kaupi til röskra
manna á bezta aldri við hag-
stæðust vinnuskilyrði, þá eru full-
yrðingar um 3-6000 kr. timakaup
trésmiða I uppmælingu rakalaus-
ar með öllu.”
f.h. stjórnar Trésmiðafélags
Reykjavikur
Jón Snorri Þorleifsson.
Útlönd
Þar á meðal má nefna réttinn
til landsins. Við þekkjum ekki
til þess að einstaklingar eigi
land. Veiðilendurnar eru sam-
eign allra. En koma aðvifandi
menn og slá eign sinni á þess-
ar veiðilendur eins og gerðist
við blý- og sinknámuna i
Marmorliik á Norður-Græn-
landi. Svipuð saga er nú að
endurtaka sig i sambandi við
oliuna. Það er bara óútkljáð,
hvar borað verður.
Það er ekki fávizka og ekki
heldur rómantik að segja, að
Danir hafi uppi nýlendu-
stefnu. Nú höfum við einmitt
fyllsta tilefni til þess. Auðæfi
eru fundin i jörðu, og hinir ei-
lifu gullgrafarar munu reyna
að standa af sér kuldann til
þess að geta ausið upp auðæf-
um, sem þeir verða að hverfa
frá annars staðar i heiminum
vegna ótryggs stjórnmála-
ástands. A Grænlandi er allt
öruggt, þvi að fjörutiu og
fimm þúsund manna þjóð
getur ekki risið upp af þeim
sjúkrabeði, sem dönsk yfir-
völd hafa búið henni. Hér
verður ekkert Alsirstrið —
ekkert Viet-nam.
En það er hægt að þurrka út
fyrirhafnarsaman mannflokk
i dönsku rikisheildinni.
Við stöndum andspænis þvi,
að gróðafikn og tillitslaust
kapphlaup um auð lands okk-
ar muni valda okkur þungum
búsifjum, er við reynum að
hefja okkur úr duftinu eftir
meðferð Dana á okkur. Það er
nú okkar nauðsyn að sá hluti
dönsku þjóðarinnar, sem i
tima og ótima hefur verið að
tala um ábyrgðog hjálp, leggi
okkur lið.
Hvað er annars orðið af
þessu fólki? Eru Grænlend-
ingar of fáir til þess að eiga
rétt á stuðningi og vernd?
t Kanada er skipulögð
alþjóðleg ráðstefna, þar sem
þjóðir fjórða heimsins
—Indi'ánar, Eskimóar og allir
þeir minnihlutahópar, sem
hafa séð land sitt hrifsað frá
sér af Evrópubúum — ætla að
ræða stöðu sina og bindast
samtökum. Þar á að koma á
skipulagi, hvernig þessir aðil-
ar geta helzt verndað sjálfa
sig gegn hinum, er hafa neitað
þeim um rétt sinn.
Landsráðiðgrænlenzka vildi
ekki eiga hlutdeild að þessari
ráðstefnu, þvi að það er i
reynd eins konar framlenging
á löngum armi dansks rikis-
valds, og það hefur neitað
þeim samtökum, sem
hafa viljað afla sér
þekkingar til þess að
skilja sem bezt, hvernig
högum Grænlendinga er kom-
ið, um fjárhagsstuðning. Við
höfum viða knúið dyra, en
enginn hefur talið vert að rétta
okkur hjálparhönd. Eina
markmið þessarar ráðstefnu
er verndun minnihlutahópa
viðs vegar i heiminum og til-
raun til þess að gera sér grein
fyrir, hvað að þeim steðjar.
Þriðji heimurinn er i þann
veginn að brjótast að fullu og
öllu undan valdi annarra
þjóða. Það getur gerzt á
morgun eða hinn daginn. Þá
hafa þjóðir hans hreppt sjálf-
stæði stjórnarfarslega, þótt
það eigi langt i land, að þær
öðlist fjárhagslegt frelsi og
fólkið full mannréttindi.
Næstu kynslóðir munu
hafna evrópskum lifsháttum
Peningaveldin munu renna
augum sinum til landsvæða
minnihlutahópa og ieitast við
að þurrka þar út þjóðernisleg
og menningarleg einkenni, svo
að þau verði ekki uppspretta
stjórnmálalegs óróa, sem
raskað getur þvi, að gróðafé-
lög njóti friðar og værðar.
Þriðji heimurinn er vaknað-
ur.
Fjórði heimurinn er að lyfta
höfði af kodda og glæða sjálfs-
virðingu sina — virðinguna
fyrir manneskjunni. Fjórði
heimurinn hefur alltaf verið
gestrisinn og tekið af auðmýkt
hjartans á móti aðvifandi
fólki. En þetta er að breytast,
þvi að gestirnirhafa hrifsað til
sin allan veizlukostinn, áður
enhann var borinn á borð. Það
er saknæmt brot á lögmálum
gestrisninnar og andstætt
trúnni á manneskjuna sem
manneskju. Hugsjón gestrisn-
innar hefur verið kæfð. Gest-
irnir vilja lika gleypa okkur
með húð og hári, éta okkur lif-
andi. Það sættum við okkur
ekki lengur við. Eina vopnið,
sem við höfum gegn ásælninni
er orðið og sú lifsreisn, sem
ekki lætur kúgast.
Þetta bréf er ekki skrifað
með hatur i huga. Ég skal
meira að segja endurtaka það,
þótt seint sé, að Danir hafa
alltaf verið mér hugfólgnir — i
einu tilfelli á mjög persónu-
legan hátt. Það gleður mig, að
ég hef kynnzt þægilegum og
hugmyndarikum Dönum i
landi þeirra sjálfra.
Leitað
að
rjúpna-
skyttu
SJ- Reykjavik A föstudagskvöh
var saknað rjúpnaskyttu, sem
farið hafði til rjúpna frá Bröttu-
brekku i Borgarfirði ásamt fleiri
mönnum. Þegar var farið að
svipast um eftir manninum og i
nótt var haft samband við Slysa-
varnafélagið I Reykjavik, sem
hafði milligöngu um að farið var
með sporhund Hjálparsveitar
skáta á vettvar.g strax i birtingu i
gærmorgun. Þá voru um 100
manns komnir til leitar úr
Borgarfirði og nálægum héruð-
um. Þokubakkar voru á þessu
svæði á föstudag. í gærmorgun
var þoka á fjöllum og ekki var
hægt að fljúga yfir svæðið.
Á ellefta timanum i gærmorgun
bárust fréttir um að maðurinn
væri fundinn heill á húfi. Hafði
hann viilzt i þoku. Menn úr björg-
unarsveitinni Brák i Borgarnesi
fundu rjúpnaskyttuna i Langa-
vatnsdal, sem er alllangt frá
þeim stað sem maðurinn hafði
lagt upp frá á föstudag.
Liknarsjóður Aslaugar K.P
Maack Kópavogi, efnir tii blóma-
solu sunnudaginn 26. október.
Liknarsjóðurinn var stofnaður 27.
janúar 1952 til minningar um
fyrsta formann Kvenfélags Kópa-
vogs frú Áslaugu K.P. Maack.
Markmið sjóðsins er að styrkja
einstaklinga og fjölskyldur sem
þurfa á hjálp að halda vegna
veikinda eöa annarra erfiðleika
Oft er um skyndihjálp að ræða,
t.d. vegna slysa.
Blóm Liknarsjoðsins hefur
verið selt i Kópavogi einn dag á
ári er það „Gleym mér ei”, en
Aslaug K.P. Maack gleymdi ekki
þeim, sem áttu i erfiðleikum.
Blómið er þvi táknrænt.
Stjórn Liknarsjóðsins skipa
þessar konur:
Helga Þorsteinsdóttir, formaður,
Soffia Eygló Jónsdóttir, varafor-
maður, Vilborg Björnsdóttir,
ritari, ólafia Jensdóttir gjaldkeri
og Agla Bjarnadóttir meðstjórn-
andi.
Kópavogsbúar! Berið allir
„Gleym mér ei” i barmi næsta
sunnudag.
Dalamenn
Aðalfundur Framsóknarfélaganna i Dalasýslu verður haldinn að
Ásgarði sunnudaginn 26. október kl. 15. Venjuleg aðalfundar-
störf. Félagsstjórnir.
Framsóknarfélag
Arnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags Arnessýslu verður haldinn að
E/rarvegi 15 Selfossi 31. okt. kl. 21 00
Venjuleg aðalfundarstörf.
víðhorfíð1 Sigurjónsson> alÞingismaður ræðir stjórnmála-
Kjörnið verða fulltrúar á kjördæmisþing.
Stjórnin.
Kópavogur
Framsóknarfélag Kópavogs heldur fund I
Félagsheimili Kópavogs — efri sal —
fimmtudaginn 30. október n.k.
Jón Skaftason alþingismaður ræðir spurn-
inguna: „Getum við eitthvað lært af rikjandi
efnahagskreppu ? ’ ’
Ollum heimill aðgangur.
Norðurlandskjördæmi eystra
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Norðurlandi eystra verður
haldið á Hótel KEA, Akureyri 8.-9. nóv. n.k.
Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
w
Arnessýsla
Akveðið er aö Framsóknarfélag Arnessýslu haldi sin árlegu
spilakvöld i nóvember. Hið fyrsta verður að Aratungu 14 nó v
annað að Borg 21. nóv. og þriðja og siðasta spilakvöldið i Arnesi’
28. nóv.
Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
Dalvíkingar, Svarfdælingar
Framsóknarvist verður I Vikurröst 30. okt. n.k. og hefst kl. 21.00.
Framsóknarfélag Dalvikur.
Hafnarfjörður —
Vetrarfagnaður
Vetrarfagnaður FUF verður haldinn i Skiphól föstudaginn 31.
október — matur — skemmtiatriði. Nánar auglýst siðar
FUF.
Hafnarfjörður —
Framsóknarvist
Þriggja kvölda spilakeppninni verður fram haldið fimmtudags-
kvöldið 30. okt. i Iðnaðarmannasalnum Liennetsstig 3, kl. 20 30
Kvöldverðlaun — Heildarverðlaun. Sólarferð með Ferðamið-
stöðinni fyrir tvo næstkomandi vor. Framhald spilakvöldanna
verður 13. nóvember. Mætið stundvisle^a.
Framsóknarfélögin i Hafnarfirði.
Skrifstofuhúsnæði
óskast
Bandalag háskólamanna óskar eftir aö
taka á leigu skrifstofuhúsnæði, 120 til 140
l'erin.
Vinsamlegast hafið samband við skrif-
stofu BHM simi 2-11-73.
Bandalag háskólamanna.
-i