Tíminn - 26.10.1975, Side 29
/mwiflh
AGUST ARMANN hf. AXl
UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN - SUNDABORG - REYKJAVÍK
FYRIR VIÐRAÐANLEGT
VERÐ
Nýja Novis samstæðan er ætluð ungu fólki
á öllum aldri. Novis er skemmtilega
einföld og hagkvæm lousn fyrir þö, sem
ieita að litríkum hillu- og skáposamstæðum,
sem b'/ggja má upp í einingum,eftir hendinni.
Novis er nýtt kerfi með nýtízkuiegum blæ.
ÚTSÖLUSTAÐIR: Siglufjörður: Bólsturgerðin
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf. Akureyri: Augsýn hf.
J L Húsið Húsavík: Hlynur sf.
Híbýlaprýði Selfoss: Kjörhúsgögn
Dúna Keflavik: Garðarshólmi hf.
Akranes: Verzl. Bjarg
Borgarnes: Verzl. Stjarnan' FRAMLEIÐANDI:
Bolungarvík: Verzl. Virkinn, KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
Bernódus Halldórsson HÚSGAGNAVERKSMIÐJA
Sunnudagur 26. október 1975.
TÍMINN
Flugfarþegar, sem panta
far, en láta svo ekki sjá
sig, valda vandræðum
auða sætið
Lionsmenn, læknar og hjúkrunarfólk við augnlækningatækin.
Ljónin á Patreksfirði gefa
augnlækningatæki
Á UNDANFÖRNUM árum hafa
flugfélög viða um heim orðið fyrir
verulegu tekjutapi vegna þess að
farþegar sem pantað höfðu far
með flugvélum þeirra mættu ekki
til flugs og létu ekki heldur vita að
pöntuð sæti yrðu ekki notuð.
fslenzku flugfélögin hafa ekki
farið varhluta af þessu og sér-
stakiega hefur þessa orðið vart i
innanlandsflugi Flugfélags Is-
lands að undanförnu. Það er ekki
einungis að félagið tapi tekjum
þegar farþegar gleyma að láta
vita um breytta ferðaáætlun,
heldur veldur slik vanræksla
stundum þvi að aðrir, sem ætla
með ferðinni komast ekki með.
Sætunum er haldið fram að brott-
för og mæti farþegar ekki til flugs
og láti ekki vita um breytingu á
ferðaáætlun sinni fer flugvélin
iðulega af stað með nokkur auð
sæti. Ef farþegar hefðu látið vita
um breytingu hefði verið hægt að
ráðstafa sætunum til annarra
sem biða.
Til þess að vekja athygli far-
þega á þessu vandamáli hefur
verið gefið út litið kynningar-
spjald. Þar eru þeir, sem hætta
við ferð eftir að hafa pantað far,
hvattir til þess að tilkynna breyt-
ingu á ferðaáætlun sinni. Slikt er
til hagsbóta bæði fyrir farþega og
félagið.
Lionsklúbbur Patreksfjarðar
hefur nú hafið fjórtánda starfsár
sitt, en stofnskrárdagur klúbbsins
var 6. okt. 1962. Lionsklúbburinn
hefur frá byrjun unnið að margs
konar mannúðarmálum og haft
vakandi auga fyrir þörfum bæj-
arfélagsins. Til dæmis hefur
klúbburinn gefiö læknishéraðinu
tæki og áhöld, þar á meðal annars
nefna fullkomin tannlækninga-
tæki og fl.
1 júlimánuði siðast liðnum af-
henti þáverandi stjórn klúbbsins
læknishéraðinu mjög vönduð og
fullkomin augnlækningatæki.
Munu tækin vera meðal þeirra
fullkomnustu hér á landi og eru
að verðmæti um 1,5 milljón
króna.
Einnig var á árinu keypt kvik-
myndasýningarvél, sem gefa á
Barna- og miðskóla Patreksfjarð-
ar. Kostaði vélin um þrjú hundruð
þúsund krónur.
Lionsklúbburinn hefur frá
upphafi á hverju ári boðið öldr-
uðum borgurum i eins dags
skemmtiferð og haft kaffiveiting-
ar. Þá hefur klúbburinn, i félagi
við kvenfélagið Sif, boðið eldra
fólki til kaffisamsætis, nú i
nokkur undanfarin ár.
Núverandi stjórn Lionsklúbbs
Patreksfjarðar er þannig skipuð:
Jón Þ. Arason formaður, Jón
Hilmar Jónsson ritari og Hafliði
Ottósson gjaldkeri.
Vilja ekki fá álverið
A almennum umræðufundi um
stjórnmálaástandið, sem haldinn
var á Raufarhöfn 19. okt. var ein-
róma samþykkt að lýsa „furðu
sinni og andstöðu gegn nýlegri
samþykkt sýslunefndar N-Þing.
um staðsetningu álverksmiðju i
sýslunni.
Af þeim fjölmörgu rökum, sem
mæla gegn sliku iðjuveri, bendir
fundurinn á að reynsla I sambæri-
legum byggðarlögum i Noregi
sýnir að undirstöðuatvinnuvegir
biða af stórskaða, — ennfremur
að mengun lofts og sjávar, eyðing
gróðurs, dýralifs og náttúrurauð-
linda sé komin á það stig, að
sporna beri gegn orkufrekum iðn-
aði sem ekki stuðlar beinlínis að
bættum landsnytjum.”
GEYMSLU
HÓLF
GEYMSLUHOLF I
ÞREMUR STÆRÐUM.
NÝ ÞJONUSTA VID
VIDSKIPTAVINI i
NÝBYGGINGUNNI
BANKASTÆTI 7
Sqiminnubiinkinn
FLUGVOLLUR
í TÁLKNAFIRÐI
SJ-Reykjavik.Nýlega var tekin i
notkun 700 metra langur flugvöll-
ur á Sellátranesi iTálknafirði.og
eru hafnar flugferðir þangað.
Flugfélagið Ernir á Isafirði og
Vængir fljúga einkum til Tálkna-
fjarðar en reglulegt áætlunarflug
er ekki þangað.
Flugvallargerðin hófst i sumar,
og henni var lokið nú i haust.
Hægt er að lengja flugbrautina i 2
kilómetra.
Flugvöllur þessi var mjög ódýr,
kostaði þrjár milljónir. Land var
hentugt -til flugvallargerðar og
skammt að sækja efni i flug-
brautina.
Heimarafstöð er við bæinn Sel-
látra, og þar væri hægt að fá raf-
magn til að lýsa flugvöllinn, ef
þörf krefur.
'Jmimnh
með hið GLÆSILEGA úrval
Poesie extra soft
Jane Set
Pony H
Sloggi mini
Teeny flip
Teeny f lip Slip
Doreen
Poesie decor V
Amor teen 1111
Amor teen 1112
Amor teen 1115
Amor teen V
Butterfly FT
Butterfly V
Fabienne
Fabienne Slip
Amourette click
Jolly cotton