Tíminn - 26.10.1975, Page 40
B8ÉÍÉM1& >
PABBABORG
SÍM112234
•HERflfl
GflRQURINN
AÐALSTRfETI 8
Þaö var algeng sjón á föstudaginn
að sjá feður með börn sin á götum
úti.
Sjónvarpsmenn voru fljótir að
finna nafn á barnaheimilið —
Pabbafiorg — og hér sést einn
starfsmaður sjónvarpsins sækja
barn sitt.
Starfsmenn sjónvarpsins settu á fót barnaheimili á föstudaginn, þar
sem einn leiktjaldamálarinn Guðmundur Karlsson var gerður að
fóstra: Þar voru um þrjátiu börn þegar mest var, sýndar voru
teiknimyndir, Ómar Kagnarsson skemmti, börnin voru látin teikna
mynd af inóður sinni, og sitthvað fleira var gert til að gera börnun-
um daginn sem ánægjulegastan.
Jónina Þorsteinsdóttir, starf-
stúlka á barnaheimili:
Dagurinn hefur heppnazt undur
vel og ég vona að hann færi okkur
allt hið bezta.
Markmiðið? Auðvitað að knýja
fram betri kjör.
Hildur Hákonardóttir, skólastjóri
MHÍ:
Stórkostlega og framar öllum
vonum. Þetta er án efa fjölmenn-
asti útifundur, sem haldinn hefur
verið. Markmiðið? Nú, auðvitað
að sýna fram á mikilvægi kon-
unnar i þjóðfélaginu og samstöðu
meðal kvenna.
(Vildi ekki láta nafns sins getið):
Hann heppnaðist frábærlega,
samstaðan geysileg, og svo var
það veðrið. Það var svo gott.
Markmiðið? Ja, það er auðvitað
að vekja konur til umhugsunar
um stöðu sina i þjóðfélaginu og
sýna fram á samstöðu þeirra um
sameiginleg baráttumál.
Dóra Einarsdóttir:
Stórvel, árangurinn er ótrúleg-
ur. Af hverju er ég i frii? Auðvitað
vegna þess að það er kvennafri.
Af hverju kvennafri? Nú við vilj-
um auðvitað fá jafnrétti og þess
vegna erum við að sýna sam-
stöðu. Misrétti milli karla og
kvenna rikir á flestum sviðum
þjóðfélagsins. Ég vona bara að
það verði einhver árangur af
þessum aðgerðum okkar.
Sólveig Tómasdóttir, sálfræði-
nemi:
Hann tókst mjög vel, ég er á-
nægð. Ég er nú ekki viss um að
hann færi okkur mikið, en vona þó
að árangur verði einhver, Annars
er timi klukkan fimm i dag hjá
mér og ég ætla að mæta. Ég rýf
ekki samstöðuna þó ég mæti i
tima, þvi að ég er að læra fyrir
sjálfa mig. Konurnar sem hræra i
pottunum vinna hins vegar fyrir
fleiri en sjálfa sig.
SÍS-IÓIHJR
SUNDAHÖFN
Almenn þátttaka
í „dömufríinu"
Björn Hermannsson, tollstjóri, settist sjálfur við skiptiborðið á föstudaginn, eins og þessi mynd ber með
sér.
BH-Reykjavik. — Konur héldu
„fridag” sinn sl. föstudag með
útifundi á Lækjartorgi, sem hófst
kl. 2, en strax upp úr hádeginu tók
konur að drifa að og var mikið
fjölmenni á fundinum, sem fór hið
bezta fram i bliðviðri, sólarlausu
en stilltu. Komu konur saman
viða i bænum og fylktu liði til
fundarins, og voru margar fylk-
ingarnar fjölmennar, og víðs veg-
ar að. Utanbæjarkonur fylktu liði,
hafnfirzkar konur gengu frá
Hljómskálanum, og voru fánar og
kröfuspjöld borín i fylkingunum.
Fundarstjóri á Lækjartorgi var
Guðrún Erlendsdóttir, en dag-
skrárstjóri Guðrún Asmundsdótt-
ir. Var dagskráin hin fjölbreytt-
asta og ánægjulegasta og var vel
tekið af mannfjöldanum, körlum
jafnt sem konum. Guðrún Á.
Símonar stjórnaði fjöldasöng og
lúðrasveit stúlkna úr Kópavogi
lék af miklum krafti.
Ávörp og ræður fluttu Aðalheið-
ur Bjarnfreðsdóttir, Sigurlaug
Bjarnadóttir og Svava Jakobs-
dóttir, Björg Einarsdóttir, Ást-
hildur ólafsdóttir og fluttur var
þáttur Kvenréttindafélags Is-
lands. Einnig fluttu leikkonur
þátt og kvennakór undir stjórn
Jóninu Gisladóttur flutti
„Kvennaslag” eftir Guðmund
Guðmundsson.
Utifundinum lauk um klukkan
4.
Mikið fjölmenni var á götum
borgarinnar, og var kvenfólkið
vissulega i miklum meirihluta,
a.m.k. i miðbænum og nágrenni
hans. Allviða voru sjoppur opnar
og þó nokkrar verzlanir og mátti
sjá konur við störf sin þar, eins og
ekkert væri. Hvarvetna á götum
úti mátti sjá karlmenn með börn i
kerrum, vögnum eða á handlegg
sér.og viða á vinnustöðum mættu
feður með börn sin og-settu upp
myndarlegustu barnagæzlu á
stöðunum.
t Auusturbæjarútibúi Landsbank-
ans við Laugaveg 77 gripu karl-
mennirnir i bankanum til þess
ráðs, að veifa hvitum fána, þegar
kvenþjóðin þustiniður Laugaveg-
inn i fylkingu. — Fáninn táknar
uppgjöf, enda erum við i miklum
minnihluta hér, sagði einn banka-
maðurinn.
< --------------------m.
Bankastjórarnir gerðu sér litið fyrir og fóru sjálfir i afgreiðsluna á
föstudaginn. Hér sést Gunnlaugur Kristjánsson, bankastjóri i
Landsbankanum við afgreiðslustörf.
fyrirgóóan mai
^ KJÖTÍÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Tímamyndir:
G.E. og Róbert
'
Sunnudagur 26. október 1975.
-