Tíminn - 04.07.1976, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.07.1976, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Sunnudagur 4. júli 1976 Sophia sorgbitin og einmana Þessi mynd var tekin af Sophiu Loren i skemmtigaröi i Paris. Hún er sannarlega döpur að sjá. t nágrenninu voru börn hennar að leik, og með þeim barnfóstr- an, en Sophia hefur áreiðanlega verið að hugsa um mann sinn Carlo Ponti sem sagt er, að hún sé i þann veginn að skilja við. Justine Dollmann, sem heldur hér á bjórkrúsunum 6, fullum af bjór, er orðin áttræð. Hún held- nr um þessar mundir upp á það, að hún hefur verið framreiðslu- stúlka i 60 ár, og sennilega eru ekki margar konur, sem geta státað af jafnháum starfsaldri i þessu fagi. Justine nam fram- reiðslustörfin þegar á timum keisarans i Þýzkalandi. Hún lætur sig ekki muna um það enn þann dag i dag að bera sex Masskriige af bjór, eins og þess- ar kollur eru kallaðar. I hverri bjórkollu er einn Utri af bjór, svo einhverja krafta hefur Justine enn i kögglum. Hún seg- ist sjálf halda, að hún sé elzta gengilbeina i Þýzkalandi. Hún byrjar oft að vinna um niuleytið á morgnana og vinnudeginum lýkur ekki fyrr en um miðnætt- ið. Skömmu áður en kvennaárið hófst var Justine útnefnd „Sæt- asta gengilbeina árins 1975” og segist hún vona að hún eigi enn þennan titil skilið. DENNI DÆMALAUSI Eg ýtti honum, og svo ýtti har mér...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.