Tíminn - 04.07.1976, Qupperneq 17

Tíminn - 04.07.1976, Qupperneq 17
Sunnudagur 4. júli 1976 TtMINN 17 For- set- inn Forseti Bandarikjanna er kjörinn á fjögurra ára fresti. Kjörgengi haf* aöeins þeir sem náö hafa þrjátiu og fimm ára aldri og eru fæddir borgarar i Bandarikjunum. Forsetinn hefur mjög viötæk völd, takmörkuö þó af bæöi lög- gjöf og löggjafavaldi, en þó einkum framkvæmdavald. Forsetinn þjónar sem æösti yfirmaöur alls herafla Banda- rikjanna, flughers, landhers og flota, svo og þjóövarösliös ein- stakra fylkja, þegar þau eru kölluö til þjónustu. Forsetinn getur-undirritaö samninga og sáttmála fyrir hönd Bandarikjanna, en eftir aö hann hefur afgreitt slik mál veröa þau aö fara fyrir öldunga- deild bandariska þingsins, sem hefurá sinuvaldi að samþykkja eöa hafna. Forsetinn skipar I mörg af æöstu embættum Bandarikj- anna, þar á meðal embætti alrikisdómara, sendiherra og annarra. Þegar forseti er kjörinn er jafnframt kjörinn varaforseti, úr sama stjórnmálaflokki og forsetinn. Varaforseti gegnir embætti forseta öldungadeildar bandariska þingsins og ef for- seti veröur, af einhverjum á- stæöum aö láta af embætti, vegna heilsuleysis eða annars, tekur varaforsetinn við þar til kjört&nabilinu lýkur. Baráttan um embætti forseta og varaforseta Bandarikjanna er aö ööru jöfnu ákaflega hörö, bæöi innan einstakra stjórn- málaflokka, svo sem forkosn- ingarnar undanfarna mánuöi hafa borið meö sér, svo og milli flokkanna, þegar þeir hafa Ut- nefnt frambjóðendur sina og kosningabaráttan sjálf hefst. Forseti Bandarikjanna verö- ur kjörinn I haust og má telja nokkuö vist aö þeir Jimmy Carter og Gerald Ford muni bit- ast um bitann. I dag er talið lik- legt aö Carter fari meösigur af hólmi og þá veröur aftur komiö drengjalegt bros i æðsta embætti þjóðarinnar. Hæstiréttur Bandarikjanna er valdamikil stofnun, sem jafn- framt ber þunga ábyrgð. Völd hans liggja fyrst og fremst I þvi að geta úrskuröað hvaö er rétt, hvaö rangt, aö geta visaö lögum til sinna heimahúsa, meö skila- boöum um aö þau samrýmist ekki stjórnarskráBandarikj- anna, svo og i þvi aö geta sett hina ýmsu embættismenn af, ef þeir hafa brotið af sér i embætti. Hæstiréttur Bandarikjanna er, svo sem nafnið ber með sér, æösta dómsmálastofriun þeirra. Bandarikjamaöur, sem telur sig hafa verið dæmdaná forsendum óréttlátra laga, getur áfrýjaö máli sinu til Hæstaréttar og i sumum tilvikum, fengið bót mála sinna. Hæstiréttur hefur vald til þess aö úrskuröa aö ákveðin lög eöa lagaákvæöi séu i ósamræmi viö stjórnarskrána og þar meö falla viðkomandi lagaákvæöi dauö niöur — hafa ekki lengur gildi. Fyrir Hæstarétt koma öll málaferli sem risa vegna stjórnarskrárlaga, öll mál sem snerta sendiherra, embættis- menn rikisins, og öll mál sem risa vegna ágreinings þar sem rikið er annar aðili. 011 mál Hæsti- réttur milli fylkja, milli fylkis og boig- ara I öðru fylki, milli borgara mismunandi fylkja, svo og mál sem snerta millirlkjaviöskipti, skulu rekin fyrir Hæstarétti. Hæstaréttadómarar eru skip- aöir og eru embætti þeirra ákaf- lega ábyrgðarmikil. Þaö er for- setinn sem skipar alrikisdóm- ara, með samþykki öldunga- deildarinnar og til þess að minnka möguleikana á aö þeir séu skipaðir af stjórnmálaá- stæöum eða að sveiflur i stjórn- málum geti haft áhrif á dóm- stóla, eru þeir skipaöir til lifs- tiöar. • • Oldungar og fulltrúar Löggjafarþing Bandarikj- anna skiptist i tvær deildir: Oldungadeild og Fulltrúadeild. Hjá þeim liggur allt löggjafar- vald og einnig töluvert fram- kvæmdavald, þar sem forseti getur til dæmis ekki ákveðið rikisframlög til neinna mála, án samþykkis þingsins. I fullrúadeild eiga sæti fjögur hundruö þrjátiu og fimm þing- menn, sem kosnir eru til tveggja ára i senn. Hver og einn þeirra er fulltrúi ákveöins svæöis, þar sem búsettur er ákveöinn fjöldi fólks — þannig að hver og einn fulltrúadeildar þingmaður hefur á bak viö sig sama fjölda manna sem hann er fulltrúi fyrir og aðrir þingmenn. Kosiö er til fullrúadeildar- innar á tveggja ára fresti, til þess að tryggt sé að hver þing- maður hafi ávallt stuöning meirihluta i kjördæmi sinu. 1 öldingadeild eiga sæti eitt hundrað þingmenn, tveir frá hverju fylki fyrir sig. Þeir eru kosnir til sex ára i senn. Aöuren lagafrumvarp veröur að lögum verða báöar deildir þingsins aö samþykkja þaö. Náist samkomulag um frum- varpið I þeim, fer það til for- setans.sem gefa verður sam- þykki sitt tii þess að lögin taki gildi. Neiti forsetinn um sam- þykki sitt, veröur frumvarpið aö fara aftur til þingsins, sem tekur það þá aftur til umræöu. Það tekur siðan gildi sem lög, ef tveir þriðju hlutar þingmanna i hvorri deild fyrir sig greiða at- kvæöi með þvi. Þá þarf ekki samþykki forsetans. Bandarikjaþing getur breytt stjórnarskrá Bandarikjanna, ef tveir þriðju hlutar þingmanna i hvorri deild fyrir sig er sam- þykkur breytingunum. Slikt er þó sjaldgæft og á þeim hundraö áttatiu og fimm árum sem þingið hefur starfaö hefur stjórnarskrá verið breytt aðeins 26 sinnum. HERINN Bandarikin eru og hafa verið um nokkurt skeiö meöal mestu hervelda heimsins. Flugher þeirra og floti eru ákaflega vel vopnum búnir og fullkomnir — landherinn aftur á móti heldur ver úr garöi geröur, en þó búinn fullkomnustu kjamoikuvopnum sem til em I dag. Sem herveldi hafa Bandarikin veriö ákaflega misjafnlega vin- sæl. í lok siöari heimsstyrjald- arinnar (eöa annarrar heims- styrjaldarinnar) þegar þeir höfðu, ásamt bandamönnum sinum, náð Evrópu undan ægi- veldi Adolfs Hitler og herja hans, er ekki óliklegt að þeir hafi veriö vinsælasta herveldi allra tima — um sinn. Tiltölulega fáum áratugum siöar, þegar þátttaka banda- riskra hermanna i Viet- nam-styrjöldinni hafði náö há- marki sinu, voru þeir aftur orðnir ákaflega óvinsælt her- veldi. Hvaö sem um vinsældir má annars segja, þá er ekki nokkur vafi á þvi að bandariski herinn, sem og herir annarra NATO-rikja, er aö flestu leyti hinn fullkomna'sti. Uppbygging flota Bandarikjanna hefur gengið ákaflega hratt fyrir sig og telja má meö nokkurri vissu að hann standi nú hinum sovézka mun framar. Landher þeirra, svo sem fyrr segir, er ekki jafn áberandi. Einkum er þaö vegna mannfæö- ar, í hlutfalli viö mannfjölda i landherjum Varsjárvandalags- rikja, en búnaður hans er þó greinilega sá fullkomnasti sem gerist i dag. Fyrir utan öll þau vopn sem Vietnam-sty rjöldin færði bandariska hernum, nýjar, full- konar tegundir vopna, sem þeir náðu aö reyna i Asiu, hefur landherinn yfir aö ráöa full- komnum kjarnorkuvopnabún- aði, sem beita má gegn land- herjum annarra rikja. Þarna er um aö ræöa litlar eldflaugar, búnar kjarnaodd- um, sem eru á færanlegum skotpöllum, jafnvel á brynvörö- um liösflutningabifreiðum. Bandarikjamenn hafa yfir- stjórn á öllum herafla NATO, þar sem þeir eru stærsti aöihnn að samtökunum, hafa sterk- astan her og hafa yfirráð yfir meginhluta af. kjarnorkuvopna- birgöum bandalagsins. önnur riki hafa mörg hver komið sér upp skotpöllum og öðrum út- búnaöi sem þarf til þess aö beita kjarnorkuvopnum, en Banda- rikin halda kjarnaoddunum sjálfum og koma til meö að út- hluta þeim, ef til styrjaldar kem ur. Fyrir fáum árum breyttu Bandarikjamenn uppbyggingu herja sinna á þann veg aö þeir afnámu herskyldu og halda nú einvörðungu sjálfboðaliðaher. NOTIÐ ÞOBESTA IIIjOSSI H F Skipholti 35 • Símar 8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.