Fréttablaðið - 09.03.2006, Qupperneq 38
[ ]Bollar eru ómissandi á flestum heimilum og það getur verið ágætt að eiga þá í mismunandi stærðum. Sumum finnst best að drekka kaffið sitt úr stórum bollum en aðrir vilja helst nota pínulitla bolla.
Þeir sem búa í þéttbýli verða
margir að þola það að sjá ekk-
ert út um gluggana sína annað
en næsta vegg. Hinir eru þó til
sem hafa vítt útsýni. Þeirra á
meðal er söngkonan Ingveldur
Ýr Jónsdóttir.
Ingveldur býr í tvíbýlishúsi í Borg-
ahverfinu í Grafarvogi og út um
bogalagaðan stofugluggann blasir
við víður sjóndeildarhringur. Geld-
inganesið sem getur talist útvörð-
ur byggðarinnar er á vinstri hönd
og svo sést Kollafjörðurinn teygja
sig inn með ströndinni með
síbreytilegum litbrigðum eftir
sólarátt og sjávarföllum, allt að
Mosfellsbæ. Hinum megin fjarðar-
ins er svo Kjalarnesið þar sem stolt
Reykvíkinga og nágranna stendur
traustum fótum, sjálf Esjan sem
kórónar allt ¿ stundum hvít, stund-
um grá og stundum græn. „Það er
alger lúxus að hafa svona útsýni.
Þetta er bara eins og panorama-
mynd,“ segir Ingveldur dreymin á
svip. Hún kveðst hafa keypt þetta
hús tilbúið fyrir nokkrum árum og
þar rekur hún meðal annars söngs-
kólann sinn. Þegar haft er orð á að
hún geti sparað sér að kaupa mál-
verk hlær hún og svarar. „Já, enda
hef ég ekki mikið verið að skella
þeim upp hér.“
Veðurlagið er eitt af því sem
hún verður vel vör við á þessum
stað. „Hér er allra veðra von,“
segir hún. „Stundum er rosalegt
rok en í annan tíma logn og sól og
blíða.“ Þá stund sem blaðafólk
stendur við hjá henni skiptast á
skin og skúrir og regnboginn
kemur og fer. „Í góðu veðri er
algengt að farið sé með skólahópa
hér niður í fjöru og margir gera
sér ferð út í Geldinganesið að
skoða fuglalífið,“ segir hún og
bendir niður að sjó. En ekkert er
tryggt í henni veröld og verði
Sundabrautin lögð meðfram
ströndinni breytist heldur betur
útsýnið hjá Ingveldi. „Þá verð ég
með hraðbraut fyrir utan glugg-
ann og það er ekki beint
tilhlökkunarefni.“ Það verða loka-
orð hennar í þessu spjalli.
Öll málverk óþörf
Ingveldur Ýr slakar á við stofugluggann um leið og hún virðir fyrir sér útsýnið og fylgist með veðrabrigðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fir alla
Barnaafmæli
Bekkjaferðir
Keramik fyrir alla,
Frábær sk mmtun
fyrir allan hópinn.
Tilboðspa kar
Keramik og pizza frá
kr. 990 á mann.
French Garden er glaðlegt stell
sem minnir á páskana, sólina
og vorið. Það er þýskt og fæst í
Villeroy & Boch.
Fáum stellum fylgja jafn margir
og fjölbreyttir hlutir og French
Garden. Þegar allt er talið eru þeir
á sjöunda tuginn. Á diskunum eru
fjögur mismunandi mynstur sem
gaman er að blanda saman fram og
til baka og þeir eru til bæði kringl-
óttir og ferkantaðir. Bollarnir eru
af fimm stærðum, morgunverðar-
bolli, kaffibolli, tebolli, mokkabolli
og kakóbolli, og eru ýmist skreytt-
ir sítrónum eða hindberjum. Um
síðustu jól bættust eldföst mót við
French Garden-fjölskylduna. Upp-
haflega kom þetta skrautlega stell
fram á sjónarsviðið árið 1997 og
hefur aflað sér vinsælda síðan,
enda gleður það augu hvar sem það
sést á borði.
STELLIÐ: FRENCH GARDEN
Blá ber prýða ýmsa hluti French Garden.
Sumir diskarnir eru með ávöxtum á brún-
unum en mynsturlausir í botninn.
Bollarnir eru í fimm stærðum, þar af fjórir
með undirskál.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörurVandaðar heimilis-
og gjafavörur
Pressukanna
Áður kr. 4.900,-
Nú kr. 3.900,-
PÍANÓSTILLING.IS
Kristinn Leifsson - Leifur Magnússon
S. 661-7909
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2