Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 58
[ ]Heimaleikfimi er heilsubót. Það þarf ekki að taka langan tíma að fara í smá leikfimi heima hjá sér daglega en getur samt verið mjög hressandi og skilar sér fljótt í betra líkamlegu formi.
Gen og erfðir eru ef til vill
mikilvægari orsakir Alzheimer-
sjúkdómsins en áður var talið.
Nýleg rannsókn sem framkvæmd
var í Svíþjóð gefur til kynna að
sjúkdómurinn eigi sér rætur í
genum einstaklinga í allt að átta-
tíu prósentum tilfella. Niðurstöð-
ur rannsóknarinnar voru kynntar
í febrúar en alls tóku 12.000 eldri
borgarar í Svíþjóð þátt í henni,
allir tvíburar.
„Rannsóknin rennir stoðum
undir djörfustu tilgátur þessa
efnis sem áður hafa verið lagðar
fram,“ segir Margaret Gatz, sál-
fræðiprófessor við Háskólann í
Suður-Kaliforníu og stjórnandi
rannsóknarinnar. „Þetta þýðir þó
ekki að umhverfi og aðstæður
skipti ekki máli. Þeir þættir hafa
ekki bara áhrif á hvort, heldur
líka hvenær fólk fær sjúkdóm-
inn.“
Rannsakað var hversu mikil
fylgni var á milli tvíbura þegar
kom að Alzheimer. Niðurstöður
sýndu að fái annar tvíburinn sjúk-
dóminn fær hinn hann líka í stór-
um hluta tilfella.
Í síðasta mánuði voru einnig
kynntar niðurstöður tveggja rann-
sókna sem ætlað var að kanna
fylgni á milli þunglyndis og
Alzheimer. Niðurstöður þeirra
gáfu ekki skýr svör.
Í annarri rannsókninni voru
skoðaðir 95 einstaklingar á dval-
arheimili aldraðra. Heilar þeirra
sem höfðu glímt við þunglyndi á
ævinni sýndu meiri merki tengd
Alzheimer-sjúkdóminum.
Í hinni var fylgst með 1.300
einstaklingum, 67 ára og eldri, í
12-15 ár. Ekki tókst að sýna fram á
að þunglyndum einstaklingum
væri hættara við Alzheimer en
hinum. Stjórnendur rannsóknar-
innar drógu þá ályktun að lækn-
um hætti til að setja orsakasam-
hengið í vitlausa röð. „Læknir
gæti ályktað sem svo að þung-
lyndið væri ein orsök Alzheimer-
einkenna,“ segir Mary Ganguli,
prófessor í geðlækningum og far-
aldursfræðum og stjórnandi rann-
sóknarinnar. „Versni einkennin er
þunglyndið hins vegar ekki ástæð-
an. Við vitum að þunglyndi hefur
neikvæð áhrif á starfsemi heil-
ans. Það er hins vegar eins líklegt
að fólk sem á við minnistap og
skerta getu að stríða verði þung-
lynt.“
Erfðir stærri þáttur en talið
var í Alzheimer-sjúkdómi
Nýleg rannsókn sýnir að fái annar Olsen-tvíburinn Alzheimer seinna á ævinni eru mjög miklar líkur á að hinn fái sjúkdóminn líka.
Ungbörn eru ekki einfaldar
tilfinningaverur eins og margir
halda.
Samkvæmt rannsókn sem gerð var
nýlega í Bandaríkjunum upplifa
ungbörn flóknari tilfinningar en
áður var haldið. Því hefur lengi vel
verið haldið fram að ungbörn upp-
lifðu aðeins einfaldar tilfinningar
eins og gleði, reiði og sorg. Sam-
kvæmt þessari rannsókn kemur þó
í ljós að ungbörn upplifa afbrýði-
semi, kærleik og vonbrigði, sem
eru allt flóknar tilfinningar, áður
en þau læra að sitja óstudd. Í niður-
stöðunum kemur fram að ungbörn í
kringum eins árs aldur fylgist með
andlitsdráttum hjá fólki og ráði úr
þeim hvernig manneskjunni líður.
Hægt er að túlka niðurstöðurnar
á þann veg að þar sem að blind börn
ná ekki að upplifa heim móður sinn-
ar í gegnum andlitsdrætti hennar
þróist talmál þeirra hægar. Greint
er frá rannsókninni á vefnum per-
sona.is.
Ráða í svipbrigði
Ungbörn geta upplifað afbrýðisemi sem og kærleik.
Ráðstefna haldin á Grand Hóteli, Háteigi, fimmtudaginn 16. mars kl. 14.00 – 16.30
Búsetumál aldraðra og nýjar leiðir í þjónustu
Stofnanavistun, mismunandi rekstrarform og fjármögnunarleiðir
Dagksrá:
Kl. 14.00 Ávarp
Kl. 14.10 Nýjar leiðir í þjónustu við aldraða
Vilborg Ingólfsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu
Kl. 14.25 Valkostir í fjármögnun húsnæðis fyrir aldraða
Ragnar Atli Guðmundsson, framkvæmdastjóri Klasa
Kl. 14.40 Nýjar áherslur í rekstri og uppbyggingu hjúkrunarheimila
Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistu
Kaffihlé
Kl. 15.15 Ný sýn í hjúkrunarmálum aldraðra
Ásgeir Jóhannesson, fv. formaður Sunnuhlíðarsamtakanna
Kl. 15.35 Samningar ríkisins við Akureyrarbæ - höfum við gengið til góðs?
Brit Bieltvedt, framkvæmdastjóri öldrunarheimila Akureyrar
Kl. 15.50 Umræður
Fundarstjóri: Kristján Kristjánsson, fréttamaður.
Allt áhugafólk hvatt til að mæta.
Þátttökugjald kr. 4.000.
Skráning á netfangið sol@reykjalundur.is og við innganginn
Félag forstöðumanna sjúkrahúsa
Landssamband sjúkrahúsa
Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu