Fréttablaðið - 09.03.2006, Qupperneq 91
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR54
FÓTBOLTI Tim Wiese, markmaður
Werder Bremen, var í öngum
sínum eftir að hafa orðið þess
valdandi að liðið hans datt úr
Meistaradeild Evrópu eftir 2-1
tap gegn Juventus á miðvikudag-
inn. Wiese greip auðveldlega
fyrigjöf en missti svo boltann
þegar hann lenti á vellinum og
Emerson renndi boltanum í tómt
netið eftir að samherji hans benti
honum á að boltinn var laus.
„Þetta var skelfilegt, ég vildi
jarða mig á vellinum. Þetta er
langversta atvik sem ég hef lent
í á ferlinum,“ sagði Wiese en
hann hafði átt frábæran leik
fram að mistökunum og allt leit
út fyrir að hann yrði hetja Wer-
der en það breyttist á skot-
stundu.
„Ég var ekkert of spenntur
eða neitt slíkt, mér leið mjög vel
og ég átti góðan leik fram að
þessu. Ég hafði það á tilfinning-
unni að ég gæti varið allt. Þetta
var einn besti leikur ferils míns
þar til ósköpin dundu yfir, þetta
er mistök sem maður gerir bara
einu sinni á ævinni,“ sagði
Wiese. - hþh
Tim Wiese, markvörður Werder Bremen:
Vildi jarða sig á vellinum
TIM WIESE NIðurlútur í leikslok ásamt
leikmönnum Werder Bremen.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Knattspyrnustjóri Barce-
lona, Frank Rijkaard, hefur sent
þau skilaboð til Romans Abramo-
vich hjá Chelsea að milljarðar
hans muni aldrei ná að lokka bras-
ilíska snillinginn Ronaldino til
félagsins. Hinn 25 ára gamli Ron-
aldinho var munurinn á liðunum í
síðari viðureign Barcelona og
Chelsea í fyrradag og segir
Rijkaard að leikmaðurinn sé gríð-
arlega ánægður á Spáni.
„Hér á hann heima og hér á
hann marga vini. Peningar skipta
hann ekki mestu máli,“ sagði
Rikjaard, en samningur Ronald-
inho segir til um að hann megi
fara ef 85 milljón punda tilboð
komi í hann. Þess má geta að Ron-
aldinho kostaði Barcelona 21 millj-
ón punda þegar hann var keyptur
til félagsins frá Paris St. Germain
fyrir tæpum þremur árum. - vig
Frank Rijkaard, stjóri Barca:
Ronaldinho fer
ekki til Chelsea
RONALDINHO Var frábær í leikjunum gegn
Chelsea. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Norski sóknarmaðurinn
Ole Gunnar Solskjær mun líklega
missa af því sem eftir er leiktíðar
eftir að hafa brotið bein í kjálka í
leik með varaliði Manchester
United gegn Middlesbrough í
fyrrakvöld. Seinheppnin heldur
því áfram að elta Norðmanninn
knáa en hann var tilölulega
nýbyrjaður að spila á ný eftir þrá-
lát meiðsli í ökkla sem hafa plagað
hann í mörg ár.
„Solskjær þarf að gangast
undir aðgerð og verður frá í 6-8
vikur,“ sagði talsmaður Man. Utd.
í gær. - vig
Ole Gunnar Solskjær:
Frá í 6-8 vikur
OLE GUNNAR SOLSKJÆR Er einn sá
óheppnasti í heimi. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Meistaradeild Evrópu:
LIVERPOOL-BENFICA 0-2
0-1 Simao (36.), Fabrizio Miccoli (89.).
Benfica komst áfram samanlagt 3-0
ARSENAL-REAL MADRID 0-0
Arsenal komst áfram samanlagt 1-0
AC MILAN-BAYERN MÜNCHEN 4-1
1-0 Filippo Inzaghi (9.), Andriy Schevchenko (25.),
2-1 Ismael (35.), 3-1 Filippo Inzaghi (47.), 4-1 Kaká
(59.),
AC Milan komst áfram samanlagt 5-2
LYON-PSV 3-0
1-0 Tiago (26.), 2-0 Tiago (45+4.), 3-0 Sylvain
Wiltord (71.),
Lyon komst áfram samanlagt 4-0
Þýski handboltinn:
MAGDEBURG-LEMGO 30-28
Hvorki Sigfús Sigurðsson né Arnór Atlason komst á
blað hjá Magdeburg. Logi Geirsson skoraði 4 fyrir
Lemgo og Ásgeir Örn Hallgrímsson 2.
GUMMERSBACH-MELSUNGEN 34-28
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 10 mörk Gum-
mersbach og Róbert Gunnarsson 5.
KIEL-DUSSELDORF 34-28
NORDHORN-DELITZSCH 34-27
Iceland-Express deild kvk:
KEFLAVÍK-HAUKAR 72-115
KR-GRINDAVÍK 58-89
DHL-deild karla:
KA-STJARNAN 25-26
Mörk KA: Jónatan Magnússon 8, Ragnar Snær
Njálsson 7. Hörður Fannar Sigþórsson 7, Goran
Gusic 2, Elfar Halldórsson 2, Nikola Jankovic 1.
Varin skot: Hreiðar Levý Guðmundsson 8, Stefán
Guðnason 3.
Mörk Stjörnunnar: Tite Kalandadze 7, Þórólfur
Nielsen 6, Ðatrekur Jóhannesson 4, Davíð Kekelia
3, Kristján Kristjánsson 2, Gunnar Jóhannsson 2,
Arnar Theodórsson 1, Björn Ó Guðmundsson 1.
Varin skot: Roland Valur Eradze 24.
STAÐA EFSTU LIÐA
FRAM 19 14 2 3 540-496 30
HAUKAR 19 14 1 4 578-521 29
VALUR 19 13 1 5 580-527 27
STJARNAN 19 11 4 4 557-520 26
FYLKIR 19 10 2 7 526-488 22
KA 19 8 3 8 529-527 19
ÍR 19 8 3 8 612-588 19
HK 19 8 2 9 548-541 18
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Það voru niðurlútnir Evr-
ópumeistarar sem gengu af velli á
Anfield í gær eftir að hafa lotið í
gras fyrir frísku liði Benfica.
Leikmenn Liverpool fengu urmul
af færum til að skora í fyrri hálf-
leik gegn Benfica en kunnuglegt
vandamál leit dagsins ljós, þeir
komu boltanum hreinlega ekki
yfir línuna.
Peter Crouch setti boltann í
tvígang í stöng Benfica en fram-
herjinn stóri var einkar óheppinn
að skora ekki. Hann hefði getað
gert mun betur í leiknum, sérstak-
lega þegar hann komst einn gegn
markmanni Benfica, en kvöldið
var einfaldlega ekki hans. Geov-
anni skaut í slá fyrir Benfica og
hringdi aðvörunarbjöllunum hjá
Liverpool sem glumdu síðan um
alla Liverpool-borg þegar Simao
kom gestunum yfir með stór-
glæsilegu marki með skoti af
löngu færi.
Þetta þýddi að Liverpool þurfti
að skora þrjú mörk til að komast
áfram og líklega gerast þau
kraftaverk aðeins einu sinni á
hverju tímabili í Meistaradeild-
inni. Allir muna eftir afrekinu í
Istanbúl en það sama var hrein-
lega ekki uppi á teningnum í gær.
Leikmenn Liverpool reyndu
hvað þeir gátu í síðari hálfleik,
þeir sköpuðu sér nokkur mark-
tækifæri en fundu engan til að
klára þau. Liverpool notaði fjóra
framherja í leiknum auk sóknar-
sinnaðra miðjumanna en allt kom
fyrir ekki.
Gestirnir voru einnig skæðir í
síðari hálfleik en þeir spiluðu
sterka vörn og beittu skyndisókn-
um sem gengu fullkomlega upp
og úr einni slíkri innsigluðu þeir
sigurinn þegar Fabrizio Miccoli
skoraði skemmtilegt mark á loka-
mínútu leiksins. Afrekið hjá Ben-
fica er frábært og liðið getur vel
komist langt í keppninni.
Arsenal og Real Madrid náðu
ekki að skora á Highbury, sem
þýðir að mark Thierry Henry í
fyrri leiknum var nóg til að fleyta
Skyttunum áfram. Heimamenn
spiluðu góðan fótbolta í leiknum
og voru óheppnir að skora ekki
með Henry sem sinn skæðasta
mann að venju. Real Madrid fékk
einnig sín færi, Raúl skaut meðal
annars í stöngina og tók svo frá-
kastið sjálfur en Jens Lehmann
varði meistaralega. Arsenal hafði
leikinn í hendi sér og fór fyllilega
verðskuldað áfram.
AC Milan sýndi mátt sinn og
megin og gekk frá Bayern
München á heimavelli sínum á
Ítalíu. Filippo Inzaghi kom heima-
mönnum á bragðið áður en Andriy
Shevchenko skoraði annað mark-
ið. Ismael minnkaði muninn en
Inzaghi og Kaká innsigluðu örugg-
an sigur AC Milan.
Ítalska liðið spilaði gríðarlega
vel í leiknum og er af mörgum
talið sigurstranglegasta liðið í
keppninni sem það tapaði svo
grátlega í úrslitaleiknum á síðasta
ári. Bæjarar áttu aldrei mögu-
leika í leiknum og sáu vart til
sólar gegn Mílanómönnum, sem
spiluðu við hvern sinn fingur og
komust örugglega áfram.
Lyon er til alls líklegt í Meist-
aradeildinni þetta árið en liðið
vann sannfærandi 3-0 sigur á PSV
í Frakklandi í gær. Tiago, sem
kom til liðsins frá Chelsea, skor-
aði tvö mörk og Sylvain Wiltord
eitt áður en Fred rak síðasta nagl-
ann í kistu PSV, sem fer heim til
Hollands með skottið á milli lapp-
anna. - hþh
Evrópumeistararnir úr leik
Benfica sló Evrópumeistara Liverpool úr leik í sextánliða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í gær. Arsenal sló Real Madrid út og er eina enska liðið í átta liða
úrslitunum. Þá komst AC Milan áfram eftir öruggan sigur á Bayern München.
VONBRIGÐI Miðjumenn Liverpool, fyrirliðinn Steven Gerrard og Xabi Alonso, áttu erfitt með
að leyna vonbrigðum sínum í leikslok í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HANDBOLTI KA og Stjarnan mættust
í DHL-deild karla í gærkvöldi og
var leikurinn bráðskemmtilegur á
að horfa. Stjörnumenn tóku leik-
inn strax í sínar hendur og héldu
þægilegu forskoti mestallan leik-
inn. KA-menn hrukku í gang síð-
ustu mínúturnar og þjörmuðu vel
að Stjörnumönnum, en sá kafli
kom full seint og Stjörnumenn
lönduðu góðum sigri, 26-25.
Stjörnumenn með Roland
Eradze í feiknaformi í markinu
skoruðu fyrstu þrjú mörkin í fyrri
hálfleik og því forskoti héldu þeir
út hálfleikinn, en staðan í leikhléi
var 12-15 Stjörnunni í vil.
Síðari hálfleikur byrjaði eins og
sá fyrri og stjórnuðu Stjörnumenn
leiknum, Roland varði eins og
berkserkur og KA-menn réðu lítið
við Tite Kalandadze sem spilaði
mjög vel í sókn sem vörn en hann
var markahæstur Stjörnumanna
með sjö mörk í leiknum.
Stjörnumenn náðu sex marka
forskoti í síðari hálfleik en gáfu
verulega eftir á lokakaflanum.
Þeir hleyptu KA-mönnum inn í
leikinn og í hönd fóru fram spenn-
andi lokamínútur þar sem KA-
menn komust nálægt því að jafna
en fór svo að Stjarnan vann sann-
gjarnan sigur á KA-mönnum, 26-
25.
„Við fórum allt of seint í gang,“
sagði varnarjaxlinn Rögnvaldur
Johnsen í liði KA-manna en hann
fékk það hlutverk að reyna að
stöðva Tite Kalandadze í leiknum.
„Stjörnumenn eru með gríðarlega
þétt og gott lið og áttu líklega sig-
urinn skilinn,“ bætti Rögnvaldur
við.
Patrekur Jóhannesson var að
spila gegn sínum gömlu félögum á
Akureyri í fyrsta sinn en hann átti
fremur rólegan dag í liði Stjörnu-
manna á sínum fyrrverandi vinnu-
stað. Patrekur stóð vaktina í vörn-
inni mjög vel og var duglegur að
spila félaga sína uppi í sókninni en
hann skoraði fjögur mörk í leikn-
um. - hb
Einn leikur fór fram í DHL-deild karla í handbolta í gær:
Stjarnan marði sigur
PATREKUR JÓHANNESSON Var sterkur gegn sínum gömlu félögum og skoraði fjögur mörk.
Þetta var hans fyrsti leikur gegn KA síðan hann kom aftur til Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK