Fréttablaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 29
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Nicorette Freshmint-nikótín-
tyggjóið er á tilboðsverði til 30.
apríl. Veittur er tuttugu prósenta
afsláttur af pakkningunni. Kjörið
tækifæri til að spara peninga
meðan reykingaósiðurinn er
lagður á hilluna.
Treflarnir eiga erfitt uppdráttar
þessa dagana með hækkandi sól
og hita. Röndóttu treflarnir eru
einnig að syngja sitt síðasta og
hálskaldir hvattir til að verða sér
úti um einlita trefla, eða jafnvel
tvílita, bara ekki röndótta.
Grill verða til sýnis á sýningunni
Sumar 2006 í Laugardalshöllinni
um helgina. Ýmsir aðilar munu
sýna vörur sínar og nú er hægt
að kynna sér úrvalið áður en
grillmennskan hefst fyrir alvöru.
ALLT HITT
[ MATUR TILBOÐ TÍSKA ]
LÖGUNIN SKIPTIR
MÁLI
Bjórglösin koma í öllum stærð-
um og gerðum, allt frá stórum
könnum með haldi til fínlegra
glasa á fæti.
MATUR 2
SUÐRÆNT, NÁTTÚRU-
LEGT OG SÆTT
Skeljar, steinar og kókoshnetur eru
meðal efna í skartgripunum
sem fást í Coco Loco í
Hafnarfirði.
TÍSKA 6
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn 21.
apríl, 111. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.35 13.26 21.20
Akureyri 5.11 13.11 21.13
Heimild: Almanak Háskólans
Anna Kristín Magnúsdóttir verslunar-
kona er óhrædd við að munda pönnuna
og dunda sér við eldamennsku þó hún
búi með atvinnumatreiðslumanni.
Anna Kristín Magnúsdóttir verslunarkona
er mikil áhugamanneskja um framandi mat
og er óhrædd við að láta reyna á skynbragð
bragðlaukanna. Anna er ólétt og hefur þess
vegna þurft að setja hinar og þessar fæðu-
tegundir á bannlista meðan á meðgöngu
stendur. Verst þykir henni þó að geta ekki
borðað túnfisk.
„Túnfiskpiparsteik er minn uppáhalds-
matur en þar sem túnfiskur er borinn fram
að mestu hrár er ekki mælt með að borða
hann á meðgöngu. Ætli ég fái ekki næst tún-
fisk þegar ég hætti með barnið á brjósti,“
segir Anna hlæjandi og viðurkennir fús-
lega að hún verði fljót að skella sér á veit-
ingahús og panta sér túnfisk þegar að því
kemur.
Anna er í sambúð með Hermanni Marínós-
syni, kokki á Hótel Holti, og segist Anna
njóta góðs af hans hæfileikum. „Hann „á“
eldhúsið en ég reyni auðvitað að toppa hann
í eldamennskunni. Það gengur kannski ekk-
ert rosalega vel,“ segir Anna og hlær. „En
ég er þekkt fyrir að halda ágætis matar-
boð.“
Uppskriftin sem Anna gefur lesendum
heitir Kjúklingur Heminem. „Hemmi hjálp-
aði mér að búa til pestóið, sem fylgir upp-
skriftinni, eins og ég vil hafa það á bragðið,“
segir Anna. „Að launum nefndi ég kjúkl-
ingaréttinn eftir honum,“ segir Anna og
hlær. Uppskrift Önnu, sem er bæði holl og
einföld, má finna á síðu 3.
johannas@frettabladid.is
Telur í túnfiskinn
Anna Kristín Magnúsdóttir gufusýður kjúklingabringur í bambuskörfu og ber fram með eþíópísku pestói. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NÝ SYKURSKERT
ÚTGÁFA AF
OKKAR ÁSTSÆLU
KÓKÓMJÓLK
KOM NÝLEGA Á
MARKAÐ.
Fáir drykkir eru
jafn klassískir
og Kókómjólk
í nestispoka
ungra jafnt sem
aldinna. Nú
hefur MS hafið
framleiðslu
á sykurskertri
Kókómjólk sem
kemur varla á óvart í því
heilsumeðvitaða þjóðfélagi
sem orðið er á Íslandi.
Nýi drykkurinn
inniheldur
helmingi minni
viðbættan
sykur og fitu en
hin venjulega
Kókómjólk og eru
hitaeiningar um
fjórðungi færri. Í
drykknum er mun
minna af mjólkursykri
og því hentar hann
flestum þeim sem
hafa mjólkursykuróþol.
Skemmtilegust er þó
sú staðreynd að hin
sykurskerta útgáfa af
Kókómjólkinni bragðast
næstum alveg jafn vel og hin
upprunalega Kókómjólk.
Ný sykurskert Kókómjólk