Fréttablaðið - 21.04.2006, Side 66

Fréttablaðið - 21.04.2006, Side 66
 21. apríl 2006 FÖSTUDAGUR50 ������������������������ ������������������������������������������� ����������������������������������������������������� �������������������� �������������������������� ������������������ �������� ������������������ ����������������������������� �������������������� ����� ���������������� ��� �� �� �� ��� �� �� �� �� �� �� �� �� ����������������� ���������� ����� ��������������������������� ������������ �������������������������� ������ ��������� ������ ���� ���� ����� ������ ������� ������ ����� ��������� �� ����������� ���������� ���������� ����������� ����������� ��������� �� ���������� ��������������������������� �������������������������������������� ��������������������������������������� KÖRFUBOLTI Úrslitakeppni NBA- deildarinnar er framundan en deildarkeppninni lauk formlega í fyrrinótt þótt að nokkurn veginn hafi verið vitað fyrirfram hvernig liðin myndu raðast saman í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Nokkur athyglisverð einvígi eru á dagskrá og þá sér í lagi rimmur LA Lakers og Pheonix og Chicago og Miami, en þar spá ýmsir því að óvænt úrslit geti litið dagsins ljós. Meistarar San Antonio mæta Sacramento í fyrstu umferðinni og ættu ekki að eiga mikla erfiðleika með að komast framhjá þeirri hindrun en Detroit, sem náði best- um árangri alla liða í deildinni í vetur, mæta Milwaukee og ætti ef allt er eðlilegt að komast taplaust í gegnum það einvígi. Í raun eru flestir körfu- boltaspekingarnir ytra því að bar- áttan um titilinn muni standa á milli þessara liða og að þau ættu að komast klakklaust í úrslitin. Á góðum degi hafa þó lið á borð við Dallas, Pheonix og Miami öll burði til að velgja sigurstranglegu liðun- um undir uggum. Þó nokkur spenna ríkir um valið á mikilvægasta leikmanni tímabils- ins sem tilkynnt verður eftir nokkr- ar vikur. Öfugt við mörg síðustu ár er nánast ógjörningur að spá fyrir um hver hreppi nafnbótina í ár, en flestir telja að baráttan muni standa á milli Kobe Bryant hjá Lakers og LeBron James hjá Caviliers. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa borið lið sín á herðum sér í vetur og leitt þau inn í úrslitakeppnina. Sumir vilja þó meina að Chauncey Billups sé sá sem eigi nafnbótina mest skil- ið, enda búinn að vera jafnbesti leikmaðurinn í liðinu sem er með besta árangurinn. Kobe kveðst ánægður með eigin frammistöðu sína í vetur, en hann varð stigahæsti leikmaður vetrar- ins með næstum 36 stig að meðal- tali í leik. „Ánægðastur er ég samt með árangur liðsins. Við spiluðum betur en margir spáðu,“ segir Kobe en Lakers hefur unnið 11 af síðustu 14 leikjum sínum og telja margir að liðið geti komið á óvart í úrslita- keppninni. Leikmenn Detroit eru staðráðn- ir í að endurheimta titilinn sem þeir misstu í hendur San Antonio í fyrra en lykilmenn liðsins hafa verið hvíldir mikið í síðustu leikj- um. „Það eru allir heilir og tilbúnir fyrir partíið framundan,“ sagði Richard Hamilton hjá Detroit. - vig Hver verður valinn sá verðmætasti í vetur? Flestir spá því að Detroit og San Antonio eigi tiltölulega greiða leið inn úrslit NBA, en deildarkeppninni lauk í fyrrinótt. Sjaldan hefur verið jafn ómögulegt að spá fyrir um hver valinn verður verðmætasti leikmaður tímabilsins. HVER VERÐUR VALINN SÁ BESTI? Körfuboltasérfræðingar ytra spá því að valið á besta leikmanni deildarinnar komi til með að verða á milli þessara leikmanna: Kobe Bryant hjá LA Lakers, Dirk Nowitzki hjá Dallas, LeBron James hjá Pheonix eða Chauncey Billups hjá Detroit. Þó má heldur ekki gleyma Steve Nash hjá Pheonix sem á titil að verja frá því í fyrra. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES TÖLFRÆÐI VETRARINS Flest stig 1. Kobe Bryant, LA Lakers 35,4 2. Allen Iverson, Philadelphia 33,0 3. LeBron James, Cleveland 31,4 4. Gilbert Arenas, Washington 29,3 5. Dwayne Wade, Miami 27,2 Flest fráköst 1. Kevin Garnett, Minnesota 12,7 2. Dwight Howard, Orlando 12,5 3. Shawn Marion, Pheonix 11,8 4. Ben Wallace, Detroit 11,3 5. Tim Duncan, San Antonio 11,0 Flestar stoðsendingar 1. Steve Nash, Pheonix 10,5 2. Baron Davis, Golden State 8,9 3. Brevin Knight, Charlotte 8,8 4. Chauncey Billups, Detroit 8,6 5. Jason Kidd, New Jersey 8,4 Flest varin skot 1. Marcus Camby, Denver 3,29 2. Andrei Kirilenko, Utah 3,19 3. Alonzo Mourning, Miami 2,66 4. Josh Smith, Atlanta 2,60 5. Elton Brand, LA Clippers 2,54 Flestir stolnir boltar 1. Gerald Wallace, Charlotte 2,51 2. Brevin Knight, Charlotte 2,28 3. Chris Paul, New Orleans 2,24 4. Gilbert Arenas, Washington 2,01 5. Shawn Marion, Pheonix 1,98 Besta 2-stiga nýting 1. Shaquille O´Neal, Miami 60,0% 2. Eddy Curry, New York 56,3% 3. Tony Parker, San Antonio 54,8% 4. Gerald Wallace, Charlotte 53,8% 5. Andrew Bogut, Milwaukee 53,3% 1. UMFERÐ ÚRSLITAKEPPNINNAR Austurdeildin Milwaukee-Detroit Chicago-Miami Indiana-New Jersey Washington-Cleveland Vesturdeildin Denver-LA Clippers LA Lakers-Phoenix Memphis-Dallas Sacramento-San Antonio KÖRFUBOLTI Ray Allen, leikmaður Seattle, bætti í fyrrinótt metið í skoruðum 3-stiga körfum á einu tímabili í NBA-deildinni. Allen skoraði sex þriggja-stiga körfur gegn Denver í síðustu umferð riðlakeppninnar og alls 268 slíkar á tímabilinu. Allen sló þar með met Dennis Scott frá árinu 1996 en þá skoraði hann 267 3-stiga körfur. Þess má geta að Allen skoraði fimm 3-stiga körfur í fyrsta leik- hluta. Þegar Allen sló metið var hlé gert á leiknum til að heiðra skytt- una mögnuðu. Hann fékk að eiga keppnisboltann og var hylltur af áhorfendum í Seattle. - vig Ray Allen hjá Seattle: Skoraði flestar 3-stiga körfur FÓTBOLTI „Ég hef ekki áhyggjur af gengi okkar þrátt fyrir að vissu- lega geti ég ekki verið sáttur með árangur okkar til þessa. Óheppni spilar inn í þar sem við höfum verið að spila með en ekki fengið úrslitin með okkur,“ sagði Teitur Þórðarson, þjálfari KR við Frétta- blaðið í gær en liðið tapaði í loka- leik deildabikarsins í gær fyrir 1. deildarliði Fram, 3-2. KR hefur tapað öllum leikjum sínum í deildabikarnum fyrir liðum í Landsbankadeildinni. KR hefur aðeins unnið tvo leiki, gegn 1. deildarliðunum Þór og KA. „Við gáfum Fram tvö ömurleg mörk í leiknum og eina vítaspyrnu. Einstaklingsmistökin voru ekki að kosta okkur í fyrsta skipti og ég hef aldrei séð önnur eins mistök og í leiknum gegn Fram. Fram að síðustu tveimur leikjum vorum við að spila mjög vel, við þurfum að finna þann takt aftur. Þá hefur lykilmaður á borð við Grétar Hjartarson ekki verið með og það munar um minna,“ sagði Teitur sem segir að sjálfstraust skorti hjá einhverjum leikmanna liðsins. „Við þurfum á einum sigri að halda til að fá sjálfstraustið aftur upp hjá nokkrum mönnum. Það eru aðeins þrjár vikur í mót og við megum ekki við því að tapa fleiri leikjum. Það er ekki laust við að fiðringur sé kominn í okkur enda stutt í mót“ sagði Teitur. - hþh Teitur Þórðarson fer ekki vel af stað hjá nýja liðinu: Slæmt gengi hjá KR TAKTAR Viðar Guðjónsson sýnir hér skemmtilega takta í leik Fram og KR í gær. Fram vann leikinn 3-2 í fjörugum leik liðanna í Safamýri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.