Fréttablaðið - 21.04.2006, Síða 63

Fréttablaðið - 21.04.2006, Síða 63
 *Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann. Sony Sjónvarp - og DVD spilari með Kaupauki! DVDspilari fyl gir þessum sjónvö rpum að andvirði 14. 950,- Fjarstýringin virkar á Sonysjónvörp! KLVS26A10 26" LCD SONY SJÓNVARP · HD Ready · 1366 x 768 pixla upplausn · Contrast 1000:1 · HDMI tengi og 2 x scart · PC tengi Verð 13.329 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 159.950 krónur staðgreitt KLVS40A10 40" LCD SONY SJÓNVARP · HD Ready · 1366 x 768 pixla upplausn · Contrast 1000:1 · Svartími 8ms (Grátt í Grátt) · HDMI tengi og 2 x scart · PC tengi Verð 28.329 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 339.950 krónur staðgreitt KLVS32A10 32 "LCD SONY SJÓNVARP · HD Ready · 1366 x 768 pixla upplausn · Contrast 1000:1 · Svartími 8ms (Grátt í Grátt) · HDMI tengi og 2 x scart · PC tengi Verð 16.663 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 199.950 krónur staðgreitt DVPNS52S Sony DVD spilari · Spilar R-1 / R-2 · Spilar VCD / SVCD / MP3 / DivX · Resume Play (man 6 diska) 40” 26”32” FÓTBOLTI Þýska sjónvarpsstöðin ZDF hélt því fram í gær að þýski landsliðsfyrirliðinn Michael Ball- ack væri búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Eng- landsmeistara Chelsea en samn- ingur hans við Bayern Munchen rennur út í sumar og mun hann því fara til Chelsea án greiðslu reyn- ist fregnirnar réttar. Þessar fréttir koma ekki beint á óvart enda hefur Ballack verið í viðræðum við Chelsea lengi og í raun hefur verið beðið eftir til- kynningu þess efnis að hann væri búinn að semja við ensku meistar- ana. Umboðsmaður Ballacks, Michael Becker, vildi ekki stað- festa þessar fréttir í gær en sagði að viðræðurnar gengju vel og að vonandi myndu samningar nást fyrir HM sem hefst 9. júní. Ballack hefur sjálfur lýst því yfir að hann vilji spila með Chelsea en hann neitaði að framlengja samning sinn við Bayern þar sem nú væri síðasta tækifæri hans að spila í öðru landi. Ballack er 29 ára og vill eyða sínum bestu árum í boltanum í annarri deild en hann hafnaði þessum fréttum ZDF seinni partinn í gær. - hbg Þýskir fjölmiðlar ríða á vaðið í Ballack-málinu: Michael Ballack búinn að semja við Chelsea? MICHAEL BALLACK Mun skrifa undir risasamning við Chelsea ef að líkum lætur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES HANDBOLTI Fyrri úrslitaleikur Ciudad Real, sem Ólafur Stefáns- son leikur með, og Portland San Antonio í úrslitum meistaradeild- arinnar fer fram í Pamplona á laugardag og síðari leikurinn í Ciudad helgina á eftir. Lykilmaður Portland og þeirra helsta stjarna, Króatinn Ivano Balic, verður með á laugardag en hann hefur ekki leikið síðustu tvo leiki með Portland vegna meiðsla á hné. Læknir Portland er ánægður með batann hjá Balic og segir hann verða kláran í leikinn þó hann verði ekki 100% heill. - hbg Meistaradeildarúrslit: Balic tæpur hjá Portland IVANO BALIC Tæpur fyrir úrslitaleikina í meistaradeildinni gegn Ólafi Stefánssyni og félögum í Ciudad Real. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Rafael Benitez, knatt- spyrnustjóri Liverpool, hefur full- vissað stuðningsmenn Liverpool um að Steven Gerrard sé ekki á förum frá félaginu. Hann sé ein- faldlega ekki til sölu. Ummæli Benitez koma í kjölfar frétta af því að Real Madrid hafi sett Gerrard efstan á óskalistann hjá sér ásamt Brasilíumanninum Adriano hjá Inter. „Það þarf ekkert að flækja málið. Hann er ekki til sölu,“ sagð Benitez við breska fjölmiðla í gær. - hbg Rafael Benitez: Gerrard fer ekki til Real STEVEN GERRARD Fær ekki að fara til Spán- ar biðji hann um það. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Argentínski miðvallar- leikmaðurinn Juan Roman Riquelme er ofarlega á óskalista Manchester United og samkvæmt fréttum frá Englandi mun félagið greiða Villarreal átta milljónir punda fyrir þjónustu hans í sumar. Auk þess er landi hans, Aldo Ducher, sterklega orðaður við United. „Ég fylgist vel með enskum fót- bolta í sjónvarpinu. Ég veit allt um úrvalsdeildina og styrk hennar. United er sterkt lið með menn á borð við Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo sem eiga bjarta framtíð fyrir sér,“ er haft eftir Riquelme. - hþh Juan Roman Riquelme: Fer hann til Man. Utd?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.