Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 2
2 24. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN
Guðrún Ásmundsdóttir,
leikkona, leikstjóri og
leikritahöfundur
3 sæti
SPURNING DAGSINS
Einar, má fara með
skutluna heim?
Það má ekki fara með hana inn en
það má taka hana aftur og aftur.
Einar Ágústsson er einn af eigendum Skutlu
ehf. en fyrirtækið býður upp á svokallaðar
skutluferðir sem fólk getur nýtt sér á heim-
leið af djammi um helgar.
MENNTUN Kröftug tengsl eru á milli
góðs lesskilnings og stærðfræði-
kunnáttu hjá íslenskum grunn-
skólastelpum. Íslensku stelpurnar
hafa þá einstæðu stöðu í heiminum
að vera mun betri en strákarnir í
stærðfræði og það er að öllum lík-
indum vegna þess að þær hafa svo
mun betri lesskilning en þeir.
Góður lesskilningur gerir það að
verkum að þær koma mun betur út
úr lesnum dæmum í prófum.
Í Pisa-rannsókninni 2003-2004
kom fram að Ísland væri eina land-
ið þar sem stelpurnar eru verulega
betri í stærðfræði en strákarnir.
Þetta er einstakt í heiminum og því
hafa vísindamenn á vegum Náms-
matsstofnunar reynt að finna út
ástæðurnar. Þeir hafa nú lokið
rannsókn sinni og birt á bók. Júlíus
Björnsson, forstöðumaður Náms-
matsstofnunar, segir að kynjamun-
urinn í stærðfræði sé að
öllum líkindum vegna þess
að hvergi sé jafn mikill
munur milli kynjanna í
lestri stelpunum í hag.
„Strákarnir okkar eru
slakir í lestri en stelpurnar
eru góðar í lesskilningi. Ef
strákarnir væru jafn góðir
og stelpurnar í lestri værum
við í fjórða til fimmta sæti í
stærðfræði í heiminum. Það
er því ljóst hvað við þurfum að
gera. Við þurfum að hífa pjakkana
upp,“ segir hann.
Þó að íslenskar stelpur séu betri
en strákarnir í stærðfræði skilar
það sér ekki í raungreinanámi í
framhaldsskólum og háskólum.
„Það er mjög merkilegt þegar við
skoðum viðhorfin. Strákarnir
ganga um og halda að þeir séu betri
en stelpurnar í stærðfræði. Og það
sem meira er, stelpurnar
ganga líka um og halda að
þeir séu betri en þær. Það
er misskilningur. Stelpurn-
ar eru betri en strákarnir í
stærðfræði,“ segir Júlíus.
Stelpurnar lesa meira
og hafa meiri hæfileika til
að vinna úr textanum, end-
urheimta upplýsingar og
draga ályktanir af honum.
Þetta kemur sér vel fyrir
þær í lesnum stærðfræðidæmum
en Pisa könnunin byggir einmitt á
slíkum dæmum.
Júlíus segir að efla þurfi les-
skilning strákanna en þetta sé ekki
alveg klippt og skorið, kynjamun-
urinn tengist líka námsaðferðum
og áhuga. Ef strákarnir fái texta
eða dæmi á tölvuskjá þá fái þeir
áhuga og standi sig betur.
ghs@frettabladid.is
Betri í stærðfræði
því þær lesa betur
Íslenskar stelpur eru miklu betri en strákarnir í stærðfræði vegna þess að þær
eru miklu betri í lestri en þeir. Strákana þarf að hífa upp í lestri svo að þeir
standi jafnfætis stelpunum í stærðfræði. Þetta sýnir ný rannsókn.
JÚLÍUS BJÖRNSSON
SAMRÆMD PRÓF „Ef strákarnir væru jafn góðir og stelpurnar í lestri værum við í fjórða til fimmta sæti í stærðfræði í heiminum. Það er því
ljóst hvað við þurfum að gera. Við þurfum að hífa pjakkana upp,“ segir Júlíus Björnsson, forstöðumaður Námsmatsstofnunar.
DÓMSMÁL Enskir dómstólar hafa
hafnað endurupptökubeiðni Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar í
meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar á
hendur honum.
Jón vann
meiðyrðamál á
hendur Hannesi
í Englandi og
voru dæmdar 12
milljónir króna í
bætur. Hannes
krafðist í kjöl-
farið endurupp-
töku málsins, en
henni hefur nú
verið hafnað.
Heimir Örn Herbertsson, lög-
maður Hannesar, segir að rök-
stuðningur fyrir niðurstöðunni
liggi ekki fyrir og ekki verði tekin
ákvörðun um hvort áfrýjað verður
fyrr en svo verður. Það verði lík-
lega innan fárra daga. - sh
Beiðni Hannesar hafnað:
Málið ekki tek-
ið upp að nýju
HANNES
HÓLMSTEINN
DÓMSMÁL Hæstiréttur stytti í gær
gæsluvarðhald yfir einum mann-
anna þriggja sem handteknir voru
vegna líkamsárásar á mann 13.
maí síðastliðinn. Þá var gengið í
skrokk á manni, ekið með hann í
skotti bifreiðar upp í Heiðmörk og
misþyrmingunum haldið áfram
þar.
Héraðsdómur hafði dæmt
manninn í gæsluvarðhald til 30.
maí en Hæstiréttur mildaði dóm-
inn í ljósi breytinga á framburði
hinna tveggja og mun maðurinn
því losna úr varðhaldinu í dag. - sh
Líkamsárásin í Heiðmörk:
Gæsluvarðhald
stytt um viku
Bílvelta á Húsavík Nóg var að gera
hjá lögreglunni á Húsavík í gær vegna
veðurs, og meðal annars valt einn bíll.
Ekki urðu þó slys á fólki. Aðstæður til
aksturs voru slæmar nyrðra í gær.
HÚSAVÍK
STJÓRNSÝSLA Ríkisstjórnin ætlar að
láta rannsaka símahleranir sem
viðgengust á tímum kalda stríðs-
ins. Málið var rætt á ríkisstjórnar-
fundi í gær.
„Ríkisstjórninni finnst sjálf-
sagt og nauðsynlegt að leitast verði
við að upplýsa þessi mál með sem
bestum hætti,“ sagði Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra eftir
fundinn í gær. „Ég er að kanna
með hvaða hætti það yrði best gert
og legg fyrir ríkisstjórnina tillögu
um það efni á þriðjudaginn.“ Hall-
dór segir að hann geri sér ekki
grein fyrir því hvort þeir sem urðu
fyrir símahlerununum eigi bóta-
rétt. „En eftir því sem ég best veit
þá var hlerunin gerð í samræmi
við íslensk lög á þeim tíma.“ - gag
Ríkisstjórnin boðar rannsókn:
Hlerunarmál
verði upplýst
Barn handtekið Lögreglan í Brooklyn
í Bandaríkjunum handtók átta ára gaml-
an dreng á mánudag og kærði hann
fyrir manndráp af gáleysi. Drengurinn
er grunaður um að hafa laumast inn í
skólabíl og tekið hann úr handbremsu
með þeim afleiðingum að bíllinn rann
af stað og varð skólasystur drengsins
að bana.
BANDARÍKIN
HEILBRIGÐISMÁL Stjórnendur Land-
spítala háskólasjúkrahúss segja að
formaður Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga hafi haft uppi vill-
andi og ósanngjarnan samanburð á
kjörum fastráðinna hjúkrunar-
fræðinga á spítalanum og 20
danska hjúkrunarfræðinga sem
koma til starfa á spítalanum í gegn-
um danska starfsmannaleigu.
Magnús Pétursson, forstjóri
LSH, segir ekki rétt að bera saman
kjör fastráðinna hjúkrunarfræð-
inga á LSH annars vegar og verk-
takagreiðslur til einhvers starfs-
manns, hvort sem hann er íslenskur
eða danskur. Landspítalinn sé ekki
vinnuveitandi dönsku hjúkrunar-
fræðinganna. Á blaðamannafundi
sem stjórnendur spítalans boðuðu
til í gær kom fram að tólf hundruð
hjúkrunarfræðingar eiga rétt til
sumarleyfa nú. Ljóst sé að mjög
sérhæfðum deildum, svo sem gjör-
gæsludeildum, lungnadeild, tauga-
lækningadeild og krabbameins-
deild, verði ekki lokað. Því hefði
verið gripið til þess ráðs að ráða
mjög sérhæfða erlenda hjúkrunar-
fræðinga yfir sumarleyfatímann.
Á fundinum kom enn fremur
fram, að vart hafi orðið mikillar
reiði meðal hjúkrunarfræðinga á
spítalanum og jafnvel umræður
um uppsagnir.
Fréttablaðið hafði samband við
tvo sviðsstjóra þyngstu hjúkrun-
ardeilda LSH. Til þeirra höfðu
engar uppsagnir borist síðdegis í
gær. -jss
KJARASAMANBURÐI ANDMÆLT Magnús
Pétursson forstjóri segir spítalann ekki
vinnuveitanda dönsku hjúkrunarfræðing-
anna.
Stjórnendur Landspítala háskólasjúkrahúss um kjör danskra hjúkrunarfræðinga:
Samanburður talinn villandi
BAUGSMÁL Arngrímur Ísberg hér-
aðsdómari segir að vera kunni að
lýsing ákæruefnis í hluta endurút-
gefinna ákæra í Baugsmálinu sé
ekki svo glögg sem vera skyldi.
Hann vakti athygli Sigurðar
Tómasar Magnússonar setts sak-
sóknara og Gests Jónssonar
verjanda Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar á þessu við
fyrirtöku málsins í gær.
Dómarinn lét jafnframt
færa til bókar að ákær-
an kynni af þessum
sökum að vera í ósam-
ræmi við fyrirmæli laga um með-
ferð opinberra mála.
Þau lög kveða meðal annars á
um að greina skuli frá því hvert
brotið sé sem ákært er fyrir. Sam-
kvæmt sömu lögum getur dómari
vísað máli frá telji hann ann-
marka á því svo mikla að ekki
verði bætt úr við rekstur málsins.
Honum er þó skylt að gefa máls-
aðilum kost á að tjá sig um málið
áður.
Dómarinn vísar í bókun sinni
til þess kafla endurútgefinnar
ákæru sem snýr að meintum
auðgunarbrotum Jóns Ásgeirs í
1,5 milljarða króna viðskiptum
með hlutafé á Vöruveltunni fyrir
sjö til átta árum.
Verjendur krefjast frávísunar
málins, meðal annars á grund-
velli mannréttindasáttmála Evr-
ópu. Málið verður flutt þann 15.
júní næstkomandi. - jh
Dómari hefur efasemdir um lýsingu á meintum brotum Jóns Ásgeirs:
Óglögg lýsing á ákæruefni
VERJENDUR Á LEIÐ Í HÉRAÐSDÓM Verjendur krefjast frávísunar Baugsmálsins á
grundvelli mannréttindasáttmála.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Sjálf-
stæðisflokkurinn bætir enn við
fylgi sitt samkvæmt niðurstöðum
raðkönnunar Gallup fyrir frétta-
stofu RÚV. Hann fengi 47 prósent
og átta menn í borgarstjórn. Sam-
fylkingin hafði um 32 prósent í
könnun Gallup á sunnudag en
fengi nú 25 prósent og 4 menn
kjörna. Vinstri grænir fengju 16
próent og tvo menn kjörna.
Fylgi Frjályndra er um sjö pró-
sent og dalar nokkurð. Þeir fengju
einn mann kjörinn. Framsóknar-
flokkur nær engum manni í borg-
arstjórn en fylgi flokksins þokast
upp á við og er 4,7 prósent sam-
kvæmt könnun Gallup í gær. - jh
Könnun Gallup fyrir RÚV:
D-listinn eykur
fylgið enn
DÓMSMÁL Tveir menn um tvítugt
hafa verið ákærðir fyrir sölu og
vörslu fíkniefna á Akureyri.
Ákærurnar voru þingfestar í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra á
mánudag.
Mennirnir voru handteknir í
fyrra í íbúð sinni og fannst þar
nokkuð af amfetamíni, e-pillum og
hassi. Þeim er gefið að sök að hafa
ætlað að selja efnin á Akureyri.
Réttri viku síðar, 8. desember,
voru mennirnir teknir aftur með
131 e-pillu og um 100 grömm af
hassi sem sennilegt þykir að ætlað
hafi verið til sölu. - sh
Tvítugir piltar á Akureyri:
Ákærðir fyrir
fíkniefnasölu