Fréttablaðið - 24.05.2006, Page 6
6 24. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
Félagar í Vildarþjónustu
fá 50% afslátt
hjá Flugfélagi Íslands
Skoðaðu sumartilboð Vildarþjónustu Sparisjóðsins á spar.isFí
t
o
n
/
S
Í
A
Græn
framtíð!
Við Vinstri-græn viljum að Reykjavík
verði til fyrirmyndar á sviði umhverfis-
mála. Við viljum flétta umhverfis-
sjónarmið inn í allar ákvarðanir. Stunda
nútímaleg vinnubrögð við sorpflokkun
og gera það eftirsóknarvert að ferðast
með strætó og nota hjólið.
Forgangsröðum í
þágu náttúru og
umhverfis
Kjósum
Vinstri-græn
Svandís Svavarsdóttir
1. sæti í Reykjavík
HORF‹U EINSOG fiÉR S†NIST!
Yfir 300 sjónvarpsflættir og kvikmyndir
í stafrænum gæ›um á vísir.is
fiÚ ERT SJÓNVARPSSTJÓRI Á
Kópavogur SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2006SKOÐANAKÖNNUN NFS
■ Kosningar 2002
B
11,7%
D
46,8%
S
34,7%
V
6,8%
Hvaða lista myndir þú kjósa ef boðað yrði til kosninga nú?
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands fyrir NFS 17.-20. maí 2006
LANDHELGISGÆSLAN Tillaga Björns
Bjarnasonar, dóms- og kirkjumála-
ráðherra, um að gengið verði til
samninga um leigu á tveimur
þyrlum, var samþykkt á ríkis-
stjórnarfundi í gær. Þyrlurnar
verða af sambærilegri gerð og nú
eru í rekstri hjá landhelgisgæsl-
unni og verða leigðar til viðbótar
við þyrlurnar sem þegar eru í
rekstri. Miðað er við að þyrlurnar
verði komnar til landsins eigi síðar
en í september næstkomandi.
Á undanförnum vikum hefur á
vegum dómsmálaráðuneytisins og
landhelgisgæslunnar, með aðild
utanríkisráðuneytisins og sendi-
ráða Íslands, verið kannað um
allan heim hvernig standa megi að
leigu nýrra björgunarvéla. Eink-
um hefur framboð á Super Puma
þyrlum verið kannað, þar sem
flugdrægi þeirra og björgunargeta
er mun meiri en Dauphin þyrla, en
landhelgisgæslan rekur nú þyrlur
af þessum gerðum.
Björn Bjarnason segist ekki
geta tjáð sig um hver kostnaðurinn
við leigu á Super Puma þyrlu er
því að um samningsatriði sé að
ræða. „Frá þessu verður gengið
með vísan til ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar.“ Björn segir að vel
gangi að ráða starfsfólk en stefnt
sé að því að unnt verði að halda úti
tveimur þyrluvöktum allan sólar-
hringinn allan ársins hring. - shá
Ríkisstjórnin samþykkir tillögur dómsmálaráðherra um leigu á þyrlum:
Leita að þyrlu eins og TF-LÍF
FARIÐ UM BORÐ Í TF-LÍF Ákvörðun um að leigja tvær þyrlur fyrir Landhelgisgæsluna var
tekin á ríkisstjórnarfundi í gær. Leit að þyrlum beinist aðallega að þyrlum af Super Puma
gerð eins og TF-LÍF.
KJÖRKASSINN
Ertu ánægð(ur) með úrslitin í
Eurovision?
Já 82,5
Nei 17,5
SPURNING DAGSINS Í DAG
Viltu opinbera rannsókn vegna
upplýsinga um símhleranir?
Segðu þína skoðun á visir.is
KOSNINGAR Framsóknarflokkur
tapar, einn flokka, fylgi í Kópavogi
samkvæmt nýrri könnun sem
Félagsvísindastofnun vann fyrir
NFS. Könnunin var gerð dagana 17.
til 20. maí og eru niðurstöðurnar
bornar saman við úrslit sveitar-
stjórnarkosninganna árið 2002.
Svarhlutfall var 60 prósent.
Framsóknarflokkurinn tapar
miklu fylgi eða rúmum 16 prósent-
um. Í kosningunum 2002 fékk Fram-
sóknarflokkurinn 27,9 prósenta
fylgi og þrjá bæjarfulltrúa en
mælist nú með 11,7 prósent og tapar
tveimur bæjarfulltrúum.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
með mest fylgi flokka nú eða 46,8
prósent sem myndi skila meirihluta
í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkur
bætir við sig einum bæjarfulltrúa
og myndi ná inn sex manns. „Þetta
er stuðningur við okkar verk á síð-
asta kjörtímabili. Ég vara þó við
bjartsýni því oft kemur minna úr
kjörkassa en í könnunum,“ sagði
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri og
oddviti sjálfstæðismanna. Samfylk-
ingin, sem hefur setið í minnihluta á
kjörtímabilinu á móti meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks, bætir við sig rúmum 6 pró-
sentum og þar með einum manni
við þrjá bæjarfulltrúa í dag.
Vinstri grænir bæta lítillega við
sig en ná ekki inn manni. - sdg
Allir flokkar nema B-listi bæta við fylgi sitt samkvæmt könnun NFS í Kópavogi:
Sjálfstæðisflokkur næði meirihluta
PALESTÍNA, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti leggur mikla
áherslu á að Ísraelar „ræði alvar-
lega“ við Mahmoud Abbas, forseta
Palestínumanna, í stað þess að
ræða við Palestínustjórn, sem nú
er í höndum Hamas-samtakanna.
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, hélt í gær til Bandaríkj-
anna þar sem hann hitti meðal
annars Bush forseta að máli.
Megintilgangur ferðar Olmerts
var að heyra frá fyrstu hendi álit
Bandaríkjaforseta á áformum
Ísraela um einhliða ákvörðun
landamæra Ísraels og væntanlegs
ríkis Palestínumanna, en þær hug-
myndir fela í sér að þó nokkur
hluti af byggðum ísraelskra land-
tökumanna á svæðum Palestínu-
manna verði undir stjórn Ísraels.
Ekki þótti líklegt að Olmert
fengi nein ákveðin svör frá Bush
um þetta, en fyrir tveimur árum
gaf Bush Ariel Sharon, þáverandi
forsætisráðherra Ísraels, grænt
ljós á að innlima nokkrar byggðir
landtökumanna nálægt Jerúsalem
færi svo að friðarsamkomulag
næðist. Bush tók þó fram að sam-
þykki Palestínumanna fyrir þeirri
innlimun væri nauðsynlegt.
Innbyrðis átök meðal Palest-
ínumanna hafa verið að aukast á
síðustu dögum. Vopnaðar sveitir á
vegum Hamas-samtakanna hafa
lent í mannskæðum átökum við
lögreglusveitir hliðhollar Fatah-
hreyfingunni.
Háttsettir fulltrúar beggja
fylkinga hittust í Gaza-borg í gær,
en sá fundur skilaði litlum árangri.
Ismail Haniyeh, forsætisráðherra
Palestínustjórnar, fullyrti hins
vegar að Hamas myndi aldrei láta
átökin þróast út í borgarastyrjöld.
Í gær var Palestínumaðurinn
Ibrahim Hamed, sem er háttsettur
í Hamas-samtökunum, handtekinn
í Ramallah á Vesturbakkanum.
Hann gaf sig fram eftir að ísra-
elskir hermenn höfðu umkringt
húsið sem hann leyndist í og hótað
að leggja það í rúst.
Hamed er grunaður um að hafa
staðið að baki nokkurra helstu
árása Hamas-samtakanna á Ísrael
síðustu árin. Ísraelar hafa reynt
að hafa hendur í hári hans allar
götur síðan 1998.
gudsteinn@frettabladid.is
OLMERT OG BUSH Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, vill vita hvort Bandaríkjamenn
krefjist þess að Ísraelar fái samþykki Palestínumanna fyrir endanlegum landamærum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Olmert vill stuðning
Bandaríkjaforseta
Ehud Olmert hélt til Bandaríkjanna í gær að hitta Bush forseta, sem ráðleggur
honum að tala ekki við Hamas heldur eingöngu við Abbas forseta. Á meðan var
háttsettur Hamas-liði handtekinn í Ísrael.