Fréttablaðið - 24.05.2006, Qupperneq 24
[ ]
Öflugir hamrar
www.velaver.is
á allar gerðir vinnuvéla
Krókháls 16 Reykjavík Sími 588-2600
Fyrir vélar
1,5.tonn til 4,5.tonn.
Hammermaster
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
10. Austin Mini er vinsælasti breski
bíllinn og mun eflaust alltaf verða
það. Á árunum 1959 til 2000 seldust
5.387.862 slíkir bílar.
Tíu mest seldu og framleiddu
bílar veraldar eru ekki endi-
lega þeir flottustu.
Á heimasíðu Top Gear (www.top-
gear.com) má finna lista yfir tíu
mest framleiddu bíla veraldar.
Þar er að finna bíla af ýmsum
gerðum þó flestir eigi það sameig-
inlegt að vera ætlaðir hinum
óbreytta almúga. Stendur þar efst
hin þýska Volkswagen-bjalla,
fyrsti bíll fólksins. Margir þess-
ara bíla eru horfnir af sjónarsvið-
inu enda ekki nógu gamlir til að
vera fornbílar og ekki nógu nýir
til að vera hentugir.
3. Lada Riva. Íslendingum er að góðu kunn
Lada Riva bifreiðin. Ófáar slíkar voru á
götum landsins fyrir allnokkrum árum. Þær
sem ekki enduðu ævina í bílakirkjugörðum
fengu endurnýjun lífdaga þegar þær voru
seldar rússneskum sjóliðum sem áttu leið
um landið. Þrátt fyrir að Íslendingar hafi
misst áhugann á Lödunni seljast enn um
200 þúsund stykki árlega af þessum rúss-
neska bíl. Ladan kom á markað 1970 og
hefur selst í um 12.350.000 eintökum.
2. Ford T módelið var eitt sinn mest seldi
bíll veraldar. Á árunum 1908 til 1927 voru
seldir 15.007.033 bílar af þessari gerð. Í
fyrstu voru öll eintök T-módelsins svört en
einhverjir litir bættust við síðar.
1. VW bjalla. Var, er og mun ávallt verða mest seldi bíll veraldar. Þessi sæti þýski bíll fólksins með vélina í skottinu seldist í 21.529.464
eintökum á árunum 1939 til 2003.
Mest seldu bílar veraldar
6. VW Golf Mk1. Þessi bíll var kynntur til
leiks árið 1974 og hannaður af Giugiaro.
Hann er enn framleiddur í Suður-Afríku þar
sem hann gengur undir nafninu City Golf.
Síðustu sölutölur sýndu að bíllinn hafði
verið seldur í 6.850.000 eintökum.
5. Renault 4 seldist í 8.135.422 eintökum
á árunum 1961-1993. Það er mun meira
en seldist af Citroen 2CV sem Renault 4 er
byggður á.
4. Fiat Uno var fyrst kynntur árið 1983 og
varð af einhverjum orsökum mjög vinsæll.
Hann hefur selst í 8.500.000 eintökum og
er enn til sölu, en samt sem áður einungis
í Brasilíu.
9. Peugeot 206. Nýlegar tölur frá bílafram-
leiðanda Peugeot sýna að 206 módelið
rann nýlega yfir 5.400.000 markið. Þrátt
fyrir að 207 módelið komi brátt í fram-
leiðslu mun 206 gerðin halda áfram að
fljóta út úr verksmiðjum Peugeot.
8. Renault 5 Mk1. Þrátt fyrir að 5.471.701
bíll af þessari gerð hafi verið framleiddir á
árunum 1972 til 1983 sjást bílarnir varla
nokkurs staðar. Ástæðan er líklega sú að
þeir hafa ryðgað í sundur á mettíma.
7. VW Golf MK2. Þessi bíll var framleiddur á
árunum 1983 til 1991 og virðist endast að
eilífu. 6.300.987 bílar komust í umferð.
Fyrir norðan bölva menn nú því allir eru komnir á sumar-
dekk. Stundum virðast lögin og landið ekki á sömu blaðsíðu.
Full búð af aukahlutum
á bílinn þinn
lexusljós, angeleyes,
neonljós, græjur,
spoilerar, lækkunargormar,
kraftsíur, racekútar, o.fl.
AG Mótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is