Fréttablaðið - 24.05.2006, Page 27

Fréttablaðið - 24.05.2006, Page 27
[ ] Innritun fyrir haustönn 2006 Innritun fyrir haustönn 2006 stendur nú yfir. Umsóknarfrestur er til 12. júní. Rafræn innritun fer í gegnum www.menntagatt.is. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans sem er opin 8.00-15.00 eða á heimasíðu skólans, www.fa.is. Eftirtaldar námsbrautir eru í boði: Bóknámsbrautir til stúdentsprófs: félagsfræðibraut, málabraut, náttúrufræðibraut og viðskipta- og hagfræðibraut. Starfsnámsbraut; upplýsinga- og fjölmiðlabraut – veftæknanám, -viðbótarnám til stúdentsprófs Heilbrigðisskólinn: Heilsunuddarabraut, hjúkrunar- og móttökuritarabraut, brúarnám á hjúkrunar- og móttökuritarabraut, lyfjatæknabraut, læknaritarabraut, sjúkraliðabraut, brúarnám á sjúkraliðabraut og tanntæknabraut. -viðbótarnám til stúdentsprófs Almenn námsbraut. Nánari upplýsingar um allar þessar brautir eru á heimasíðu skólans, www.fa.is. Þar er einnig kynning á skólastarfinu, myndir úr félagslífi o.fl. Skólinn býður upp á fjarnám allt árið. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans. Skólameistari Síðustu sumur hefur Fjöl- skyldu- og húsdýragarðurinn boðið börnum að kynnast dýr- um í garðinum nánar á svoköll- uðu dýra- og umhverfisnám- skeiði. Í ár ætlar garðurinn að bæta um betur og bjóða tvenns konar námskeið. Áfram verður haldið með nám- skeiðið sem vinsælt hefur verið síðustu ár. Það kallast nú dýra- og umhverfisnámskeið I en á því kynnast börnin spendýrunum í garðinum auk þess em þeim er kennt hvernig hægt er að fara betur með umhverfið. Í ár bætist við dýra- og umhverfisnámskeið II en öfugt við það sem halda mætti er það ekki framhaldsnám- skeið. „Það er önnur nálgun á þessu námskeiði,“ segir Unnur Sigurþórsdóttir fræðslufulltrúi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. „Áherslan er lögð á fiskana okkar og vísindi og notumst við þá við vísindasafnið okkar. Við reynum að fara í fjöruferð og einnig báts- ferð ef veður leyfir, auk þess sem umhverfið fær sinn sess.“ Námskeiðin eru fyrir öll börn á aldrinum 10 til 12 ára og geta allir sótt um hjá afgreiðslu húsdýra- garðsins. Námskeiðin hefjast 12. júní og hvert þeirra stendur í viku. „Við erum með 9 námskeið, 5 dýra- námskeið I og 4 dýranámskeið II. Það komast 10 börn að á námskeið I en 12 á námskeið II en ef þau væru fleiri væri of lítið að gera fyrir hvert þeirra. Börnin taka nefnilega þátt í daglegri umhirðu í garðinum og aðstoða við flest þau verk sem dýrahirðarnir leysa af hendi dag hvern,“ segir Unnur. „Þannig fá þau nasasjón af því sem hér þarf að gera.“ Námskeiðin kosta 17.500 kr hvert en fari barn á bæði nám- skeið kosta þau 28.000 krónur saman. „Það eru einhver börn sem ætla á bæði námskeiðin og það er gaman að þau sem komu hérna fyrir tveimur árum, þá 10 ára gömul, komu aftur 11 ára og nú enn og aftur 12 ára,“ segir Unnur. „Við höfum verið svo heppin að flestir krakkanna hafa haft gríðar- legan áhuga á dýrum. Nú ef áhug- ann vantar þá höfum við verið fljót að koma honum upp.“ Í námskeiðagjaldinu er innifal- inn heitur matur í hádeginu, eftir- miðdagshressing og grill og dag- passi í tækin síðasta daginn. „Svo verðlaunum við líka öskurapa námskeiðsins. Við erum með tæki á vísindasafninu sem mælir öskur í desibilum og sá sem öskrar hæst fær 10 íspinna í verðlaun,“ segir Unnur. „Þar sem þetta er allt mjög ólympískt má sigurvegarinn ekki taka íspinnana heim þannig að hann deilir þeim með hinum krökkunum.“ Börnin taka þátt í umhirðu dýra Börnin upplifa mikla nánd við dýrin á námskeiðunum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Hér eru nokkur börn sem nutu nærveru hins goðsagnakennda nauts Guttorms. Við lærum ekki af skólanum heldur lífinu sjálfu. -Rómverji sem féll í menntaskóla. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.