Fréttablaðið - 09.06.2006, Page 4
4 9. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Þú kaupir eitt glas af Vega Champignon og færð eitt glas af Vega
Slimaide í kaupauka. Champignon +FOS og Spirulina inniheldur mikið
af æskilegum vítamínum og næringarefnum, léttir undir með hreinsunar-
ferli líkamans, hefur jákvæð áhrif á þarmaflóruna og dregur úr líkamslykt.
Slimade Formula með krómi og HCA - góð hjálp í aðhaldinu.
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði -
Seyðisfirði - Neskaupsstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal -
Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
3
20
29
05
/2
00
6
SLIMAIDE OG DETOX TVENNUTILBOÐ
SVEITARSTJÓRNARMÁL Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, verðandi borgar-
stjóri í Reykjavík, er enn formað-
ur stjórnar Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga.
Nýr formaður
verður kjörinn
á landsþingi
Sambandsins
sem haldið verð-
ur í lok sept-
ember. Vil-
hjálmur tók við
formennsku í
sambandinu
eftir sveitarstjórnarkosningarnar
árið 2002.
Í stjórn sambandsins sitja
ellefu kjörnir fulltrúar og jafn-
margir varamenn. Frá stofnun
sambandsins hafa allir formenn
þess komið úr Reykjavík utan
Sigurgeirs Sigurðssonar sem var
bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. - hs
Samband íslenskra sveitarfélaga:
Vilhjálmur mun
sitja til hausts
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
LYFJAVERÐ Sveinn Magnússon,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar,
segir að umræður meðal hags-
munaaðila
öryrkja og eldri
borgara um slíkt
innkaupasam-
band hafi staðið
yfir í nokkra
mánuði en beðið
hafi verið eftir
áliti heilbrigðis-
ráðuneytisins á
hugmyndinni.
Nýlega kom
úrskurður ráðu-
neytisins um að það gerði ekki
athugasemdir við þessa hugmynd.
Fram kom að ráðuneytið teldi að
slíkt innkaupasamband myndi
ekki stangast á við ákvæði lyfja-
laga eða laga um heilbrigðisþjón-
ustu enda byggi það í grunninn á
samkomulagi tiltekins hóps við til-
tekinn eða tiltekna lyfsöluleyfis-
hafa.
„Innkaupasamband felst í því
að öryrkjar og eldri borgarar, sem
eru í flestum tilfellum lyfja-
notendur til lengri tíma, komi sér
saman og knýi á um lægra lyfja-
verð í krafti fjöldans. Það er ekki
um það að ræða að opna apótek eða
sjá um hrein og klár innkaup, held-
ur nýta kerfið eins og það er hér í
dag,“ segir Sveinn. Hann áréttar
jafnframt að um frjálsa aðild yrði
að ræða og því ætti þetta ekki að
koma til kasta Persónuverndar á
þeim grundvelli að slíkt innkaupa-
samband gæti misnotað upplýs-
ingar um lyfjanotkun aðila.
Á íslenskum lyfjamarkaði eru
tveir aðilar ráðandi í smásölu, Lyf
og heilsa annars vegar og Lyfja
hins vegar. Sveinn segir að hugs-
anlegt sé að leitað yrði út fyrir
landsteinana ef þessir aðilar verði
ekki tilbúnir að veita innkaupa-
sambandinu afslátt af lyfjum.
„Einn möguleikinn er að við snúum
okkur til söluaðila í Danmörku eða
á Englandi til dæmis. Hér er mark-
aður með nokkur þúsund kaupend-
um og möguleiki að opna verslun
með viðskipti tryggð við þennan
hóp sem tilheyrir þessu innkaupa-
sambandi.“
Að sögn Sveins verður núna
farið að skoða möguleika á að
koma þessu innkaupasambandi á
fót þar sem úrskurður heilbrigðis-
ráðuneytisins hefur borist.
sdg@frettabladid.is
Lækkun lyfjaverðs
í krafti fjöldans
Uppi eru áform um að stofna innkaupasamband eldri borgara og öryrkja um
lyfjakaup vegna hás lyfjaverðs og aukinnar kostnaðarhlutdeildar sjúkra og
fatlaðra. Heilbrigðisráðuneytið gerir ekki athugasemdir við hugmyndina.
SVEINN
MAGNÚSSON
NOREGUR Hugsanlegt er að breskur
fjárfestir kaupi Orkla Medier,
norska fjölmiðlafyrirtækið sem
Dagsbrún hefur verið orðuð við.
Nokkur félög hafa gert tilboð í
fyrirtækið; Dagbladet og A-pressen
í Noregi, Dagsbrún, Mecom og
fjárfestingarsjóðirnir Apax Partn-
ers og Providence Equity Partners.
Á vefútgáfu Dagbladet kemur
fram að eigandinn, Jens P. Heyer-
dahl, hafi áhuga á að tryggja norskt
eignarhald þannig að stofnað verði
nýtt félag í helmingseigu Orkla og
Dagbladet. Einnig komi til greina
að fá þriðja fjárfestinn, A-pressen,
inn en til þess þarf lagabreytingu í
Noregi.
Þykir því líklegast að breska
fjölmiðlafyrirtækið Mecom hreppi
hnossið. - ghs
Orkla Medier í Noregi:
Eignarhaldið
haldist norskt
LANDBÚNAÐARSTOFNUN Nú hefur í
fyrsta sinn greinst flensa í einu
sýni úr fugladriti sem tekið var úr
rauðhöfðaönd hér á landi. Um er
að ræða flensuafbrigði, en hvorki
stofnana H5 né H7, sem eru skað-
legir mönnum.
„Það liggur fyrir að þessi
flensa er ein þeirra tegunda sem
menn hafa engar áhyggjur af,“
segir Halldór Runólfsson yfir-
dýralæknir. „Þetta er nokkuð
svipað því sem við fundum í Hús-
dýragarðinum á sínum tíma. Það
er ekki alveg búið að greina niður
hvaða tegund þetta er og verður
kannski ekki gert úr því að fyrir
liggur að þetta eru ekki þessir
hættulegu stofnar.“ Halldór segir
menn reikna með því að við sýna-
tökur sem þessar geti fundist
fuglaflensugerðir af skaðlausum
toga. Lítið sem ekkert hafi þó
verið um þær hér og sömu sögu sé
að segja um Bretland. Nokkurt
hlé verði nú á sýnatökunum hér,
en haldið verði áfram síðar á
árinu. Segja megi að um vöktun sé
að ræða sem sé framkvæmd eftir
ríkjandi áhættumati.
„Við teljum hættu á fuglaflensu
hér nú verulega minni en áður en
eigum von á því að þetta geti
komið upp aftur næsta vor,“ bætir
yfirdýralæknir við. „Þetta fer allt
eftir þróun mála í Evrópu.“ - jss
Fyrsta sýnið úr fuglum eða fugladriti sem greinist jákvætt:
Rauðhöfðaönd með flensu
STOKKENDUR Fuglaflensa fannst í saursýni
úr rauðhöfðaönd. Ekki reyndist um H5 eða
H7 að ræða, heldur hættulaust afbrigði.
VIÐSKIPTI Kauphöll Íslands kynnir
eftir lokun markaða í dag þau
fimmtán félög sem mynda
Úrvalsvísitöluna á seinni hluta
ársins. Kögun er horfin úr vísi-
tölunni eftir að Dagsbrún tók
félagið yfir. Enn fremur bendir
margt til þess að Flaga Group
missi sæti sitt.
Greiningardeildir bankanna
eru allar sammála um að Avion
Group taki annað lausa sætið en
eru ósammála um hvaða félag
hreppi það fimmtánda.
KB banki spáir því að Atlantic
Petroleum taki það en Lands-
bankinn og Glitnir reikna með
HB Granda. - eþa
Ný samsetning Úrvalsvísitölu:
Ósammála um
síðasta félagið
RÚSSLAND, AP Samkvæmt óháðri
skoðanakönnun vilja 59 prósent
Rússa að stjórnarskrá landsins
verði breytt til að leyfa Vladimír
Pútín að sitja áfram á valdastóli
þriðja kjörtímabilið í röð. Talið er
að kjósendur vilji halda sem lengst
í Pútín vegna skorts á öðrum fram-
bjóðendum með viðlíka kjörhylli.
Samkvæmt núgildandi lögum
þarf Pútín að draga sig í hlé í næstu
kosningum, sem verða árið 2008,
en mætti þó bjóða sig aftur fram í
kosningunum þar á eftir. - kóþ
Skoðanakönnun í Rússlandi:
Rússar vilja
Pútín áfram
VLADIMÍR PÚTÍN Rússlandsforseti nýtur
greinilega mikilla vinsælda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÁN Uppboði lögreglu á Hofsósi
var frestað vegna þess að bíræf-
inn þjófur hafði í skjóli nætur
stolið vél úr báti sem átti að bjóða
upp. Sá taldi sig samkvæmt heim-
ildum blaðamanns eiga tilkall til
vélarinnar og sótti því það sem
honum bar.
Málið er í rannsókn og vill lög-
regla ekkert gefa upp um kæru eða
nokkuð annað að svo stöddu. - sgj
Dularfullt mál á Hofsósi:
Vél úr báti
hvarf um nótt
Stúlka fundin Stúlka, sem ekkert
hafði spurst til síðan á sunnudag, fannst
í gær í heimahúsi í Kópavogi.
LÖGREGLUFRÉTT
ELDRI KONA FÆR SÉR LYF Lyfjanotkun hefur aukist undanfarin ár á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 8.6.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 73,21 73,55
Sterlingspund 135,29 135,95
Evra 93,35 93,87
Dönsk króna 12,514 12,588
Norsk króna 11,916 11,986
Sænsk króna 10,131 10,191
Japanskt jen 0,6423 0,6461
SDR 108,54 109,18
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
129,1178