Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 8
8 9. júní 2006 FÖSTUDAGUR
�������� ����������������������������������
����
����
�
������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������������
VEISTU SVARIÐ
1 Hvaða Íslendingur er markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinn-
ar í knattspyrnu?
2 Hvaða frægi píanóleikari lést í vikunni?
3 Hvaða ráð heldur leiðtogafund á Íslandi í þessari viku?
SVÖR Á BLS. 62
UTANRÍKISMÁL Aðildarríki Eystra-
saltsráðsins mynda efnahagslega
framsæknasta svæði Evrópu og
ættu að setja sér það markmið að
verða framsæknasta samstarfs-
svæði heims. Þetta sagði Göran
Persson, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, á blaðamannafundi við lok
leiðtogafundar Eystrasaltsráðsins
á Hótel Nordica í gær. Hann talaði
þar sem fulltrúi næsta for-
mennskuríkis, sem tekur við því
hlutverki af Íslandi um næstu
mánaðamót.
Fundurinn, sem forsætisráð-
herrar níu ríkja og utanríkisráð-
herrar tveggja sátu, markar lokin
á formennskuári Íslands í ráðinu.
Eystrasaltsráðið var stofnað
árið 1992, í kjölfar hruns komm-
únismans í Austur-Evrópu, sem
samstarfsvettvangur ríkjanna
beggja vegna Eystrasaltsins, sem
á dögum kalda stríðsins voru sín
hvoru megin járntjaldsins. Stofn-
ríkin voru tíu: Danmörk, Noregur,
Svíþjóð, Finnland, Eistland, Lett-
land, Litháen, Rússland, Pólland
og Þýskaland. Ísland bættist í hóp-
inn árið 1995, þá með þeim rökum
að ráðið væri samstarfsvettvang-
ur sem varðaði hagsmuni Íslands
sem Norður-Evrópuríkis.
Meginhlutverk ráðsins er að
stuðla að pólitískum og efnahags-
legum stöðugleika í norðaustur-
hluta Evrópu, meðal annars með
aðstoð við þróun og uppbyggingu
lýðræðis, verndun mannréttinda
og bættu viðskiptaumhverfi til
eflingar frjálsum viðskiptum.
Leiðtogafundir ráðsins eru haldn-
ir á tveggja ára fresti og fer sá
næsti fram í Lettlandi árið 2008.
Í formennskutíð Íslands hefur
áhersla verið lögð á samvinnu á
sviði orku- og umhverfismála,
sem og nánari samvinnu við önnur
svæðisbundin samtök. Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra
sagði í ávarpi sínu við lok fundar-
ins í gær að leiðtogarnir hefðu
verið sammála um að samstarf af
því tagi sem fram færi innan ráðs-
ins væri gagnlegt og full ástæða
væri til að halda því áfram. Í ljósi
þess að aðildarríkin starfa einnig
saman innan ýmissa annarra
stofnana - átta af ellefu aðildar-
ríkjum eru í Evrópusambandinu -
hafa komið upp raddir sem halda
því fram að Eystrasaltsráðið hafi
þjónað sínu hlutverki. Aðrir segja
að stofnun sem þessi, sem samein-
ar öll Norðurlönd, Eystrasalts-
löndin, Rússland, Pólland og
Þýskaland undir einum hatti á
jafnræðisgrundvelli um sameigin-
leg stefnumið, sé mikilvægur liður
í því kerfi samráðs og stöðugleika
sem byggt hefur verið upp í Evr-
ópu eftir fall járntjaldsins og eng-
inn skortur sé á verðugum verk-
efnum. Af lokaályktun fundarins
að dæma - hún er í 26 liðum og
nær yfir mjög vítt málefnasvið -
virðast verkefnin ærin.
audunn@frettabladid.is
Framsæknasta sam-
starfssvæði Evrópu
Leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins lauk í Reykjavík í gær en hann markaði
hápunkt formennskuárs Íslands í ráðinu. Leiðtogarnir voru sammála um að
aðildarríkin ellefu væru eitt framsæknasta samstarfs- og efnahagssvæði heims.
HALLDÓR Í FORMANNSSTÓL Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar (annar f.v.), ávarpar
fjölmiðla við lok leiðtogafundarins á Hótel Nordica í gær. Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra situr í formannsstól, en Svíar taka nú við formennskunni í Eystrasaltsráðinu af
Íslendingum. Forsætisráðherra Póllands situr Persson á hægri hönd. Einnig sjást ráðherrar
Rússlands, Danmerkur, Finnlands og Þýskalands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVISS, AP Svissneska leyniþjónust-
an hefur komið upp um áætlun
hryðjuverkamanna um að
sprengja El Al-flugvél frá Ísrael í
loft upp í Sviss, að sögn talsmanns
ríkissaksóknara Sviss í gær.
Sjö menn af nolrður-afrískum
uppruna hafa verið handteknir í
tengslum við málið, en yfirvöld
vörðust frekari frétta af málinu.
Að sögn talsmanns ríkissak-
sóknara aðstoðuðu lögregla og
yfirvöld í öðrum evrópskum lönd-
um við rannsóknina.
Fjölmiðlar í Ísrael sögðu nýver-
ið frá hópi hryðjuverkamanna
sem ætlaði að sprengja El Al-flug-
vél í Sviss í desember síðastliðn-
um. - smk
Svissneska leyniþjónustan:
Hryðjuverkum
afstýrt í Sviss
EL AL FLUGVÉL Sjö menn, sem sagðir eru
hafa ætlað að sprengja ísraelska flugvél,
hafa verið handteknir. NORDICPHOTOS/AFP
FINNLAND Finnar ætla að halda
skrá yfir erlenda starfsmenn sem
koma frá öðrum löndum Evrópu-
sambandsins þannig að verkalýðs-
hreyfingin geti fylgst með því
hversu margir erlendir starfs-
menn vinna í landinu og á hvaða
kjörum. Þetta kemur fram á vef-
útgáfu Helsingin Sanomat.
Finnskir vinnuveitendur verða
að skrá ráðningu starfsmanna frá
öðrum löndum ESB frá og með
þessari viku. Þetta gildir einnig
um þá sem ráðnir eru á vegum
starfsmannaleiga eða starfa sem
undirverktakar. Eina skilyrðið er
að þeir vinni lengur en í tvær
vikur í landinu. - ghs
Vinnumarkaður í Finnlandi:
Skrá yfir starfs-
menn frá ESB
INDÓNESÍA, AP Suharto, fyrrverandi
forseti Indónesíu, minntist 85 ára
afmælis síns í gær en hann bar við
hrumleika og bágu heilsufari í síð-
asta mánuði þegar til stóð að
ákæra hann fyrir spillingu og fjár-
drátt í embætti. Fallið var frá
ákærunni og vakti það mikla
óánægju víðsvegar um landið.
Afmælisveislan var haldin
fyrir 400 gesti á glæsilegu heimili
Suhartos og nýtti hann tækifærið
til að gefa fórnarlömbum jarð-
skjálftans á Jövu og fátæku fólki í
Djakarta um 85.000 litla pakka í
afmælisgjöf. Gjafirnar voru metn-
ar á 543.000 bandaríska dollara,
eða rúmar fjörutíu milljónir
króna, en afmælisbarnið er grun-
að um að hafa komið undan allt að
44,5 milljörðum króna í 32 ára
stjórnartíð sinni. - kóþ
Suharto í fullu fjöri:
Hélt upp á
afmælið sitt
SUHARTO Hélt veglega veislu í tilefni af 85
ára afmæli sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest nálgunarbann Héraðsdóms
Reykjaness yfir ofbeldismanni
sem felur í sér að hann má ekki
koma í námunda við heimili manns
sem hann hefur ofsótt, elta hann
né hringja í hann.
Atburðarásin hófst á því að
ofbeldismaðurinn ók bifreið sinni
á bjarg með þeim afleiðingum að
tvær kyrrstæðar bifreiðar
skemmdust mikið. Ofbeldismað-
urinn hljópst á brott en hringdi
síðan í mann og hafði í hótunum
við hann tæki hann ekki á sig sök-
ina af ákeyrslunni, sem hinn síðar-
nefndi gerði. Við skýrslutöku kom
þó hið rétta í ljós.
Eftir þetta hóf ofbeldisamaður-
inn ítrekaða leit að fórnarlambinu
með hótunum símleiðis um lík-
amsmeiðingar. Hann tók meðal
annars, ásamt tveimur öðrum,
hús á vini mannsins, þar sem fórn-
arlambið leyndist. Mennirnir tóku
vininn, þar sem hann vildi ekki
veita þeim neinar upplýsingar,
settu hann í farangursgeymslu
bifreiðar sem þeir voru á, og
gengu síðan í skrokk á honum
þannig að hann hlaut lífshættu-
lega áverka. Að því búnu skildu
þeir hann eftir við Guðmundar-
lund í Kópavogi.
Úrskurðað nálgunarbann á
ofbeldismanninn gildir í þrjá mán-
uði. - jss
Hæstiréttur staðfestir úrskurð Héraðsdóms Reykjaness:
Dæmdur í nálgunar-
bann í þrjá mánuði
HÆSTIRÉTTUR Úrskurður hans um nálgun-
arbannið var staðfest í Hæstarétti.
ÁLYKTUN Undirbúningsfundur um
stofnun nýs félags, 2 foreldrar,
hefur sent frá sér ályktun um nýja
auglýsingaherferð Tryggingamið-
stöðvarinnar. Í ályktuninni kemur
fram að undirbúningsnefndin
harmi herferðina en í henni lýsa
konur slæmu sambandi sínu við
fyrrverandi maka.
Ályktunin segir þetta bera vitni
um karlfjandsamleg viðhorf og
hvetur karlmenn til þess að taka
viðskipti sín við Tryggingamið-
stöðina til endurskoðunar. - gþg
Ályktun undirbúningsnefndar:
Harma auglýs-
ingaherferð
Sendiráð rýmt vegna pakka
Bandaríska sendiráðið í Ósló var rýmt í
gærmorgun eftir að grunsamlegur pakki
barst í sendiráðið. Um 100 manns voru
í sendiráðinu og voru allir fluttir burt
meðan pakkinn var rannsakaður. Þetta
er í samræmi við öryggisreglur sendi-
ráðsins. Pakkinn reyndist meinlaus.
NOREGUR