Fréttablaðið - 09.06.2006, Page 22
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR22
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
������ �����
������������������
����������� ������
Ungur óperusöngvari, Giss-
ur Páll Gissurarson, vann
í síðustu viku þriðju verð-
laun á alþjóðlegu söngv-
arakeppninni í Piacenza á
Ítalíu. Lærimeistari hans,
Kristján Jóhannsson óperu-
söngvari, er sannfærður
um að þar fari ein af óperu-
stjörnum framtíðarinnar.
Keppnin er ein sú stærsta á Ítalíu
en 123 söngvarar þreyttu prufu
um að fá að spreyta sig í henni.
Margir af þeim eru atvinnusöngv-
arar en aðrir eru nemendur, eins
og Gissur Páll, sem reyna að hasla
sér völl á óperusviðinu.
Keppnin var haldin í leikhúsinu
í borginni Piacenza og hlýddu um
1.200 gestir á en 70 manna hljóm-
sveit lék undir hjá keppendum.
„Þetta var mjög ánægjulegt og
ég átti alls ekki von á þessu,“ segir
Gissur Páll, sem sló öllum
karlsöngvurum ref fyrir rass því
sópransöngkonur skipuðu sér í tvö
efstu sætin. „Fyrir fram var ég
ekkert sérstaklega öruggur þar
sem ég er lýrískur léttur tenór en
fyrir mig var lagt á þessu úrslita-
kvöldi að syngja dramatískar
aríur. Svo fór það ekki framhjá
mér að öllum keppinautum mínum
gekk sérlega vel og ég held að það
hafi ekki heyrst ein feilnóta þetta
kvöld þannig að ég var mjög hissa
þegar úrslit voru kynnt eftir dúk
og disk, en dómnefndin var lengi
að gera upp á milli okkar.“
„Hann stóð sig eins og hetja og
var Íslandi til sóma,“ segir læri-
meistarinn Kristján, yfir sig
ánægður með nemanda sinn. „Allt
það sem við höfum verið að vinna
að í eitt og hálft ár kom fram í gær,
alveg óaðfinnanlega. Forseti dóm-
nefndarinnar var argentínski
óperusöngvarinn José Cura, sem
er heimsþekktur tenór, og hann
spurði mig bara hvaðan þessi Paolo
væri eiginlega, en svo er hann
Gissur Páll kallaður hér á Ítalíu.“
Kristján átti fleiri nemendur í
keppninni, þar á meðal sópran-
söngkonu sem náði í tólf manna
úrslit. Leiðir Kristjáns og Gissur-
ar Páls lágu saman þegar sá síðar-
nefndi fylgdi félaga sínum í
kennslustund hjá Kristjáni. „Svo
vildi hann endilega heyra í mér
þegar hann komst að því að ég
væri að læra óperusöng,“ rifjar
Gissur Páll upp. „Eftir það bauðst
hann til að taka mig í kennslu og
það var upphafið á okkar sam-
starfi. Hann er hreint ótrúlega
góður kennari og í raun er hann
meira en það. Hann er svona læri-
meistari af gamla skólanum. Hann
virkilega þjarmar að manni en svo
föllumst við í faðma þegar átökun-
um er lokið.“
Þeir eru þó fleiri en Kristján
sem eru harðir í horn að taka því
dómnefndarmenn sem verða á
vegi óperusöngvara taka ekki á
þeim með neinum silkihönskum
þyki þeim einhver ljóður á því
sem á borð þeirra er borið. Eins
kunna dómnefndarmenn því víð-
ast hvar illa ef menn fara ekki
eftir hefðarinnar reglum. „Menn
tala um það hvað Bubbi geti verið
óvæginn við Idol-keppendur en
það viðmót hans gæti bara þótt
huggulegt miðað við þau tök sem
dómnefndarmenn sýna söngvur-
um hér,“ segir Gissur Páll. Það var
honum því óvænt ánægja þegar
dómnefndarmenn klöppuðu fyrir
Gissuri þegar hann lauk áheyrnar-
prufum fyrir skemmstu. Dóm-
nefndin var skipuð Ricardo Muti,
fyrrverandi óperustjóra La Scala,
og fulltrúum frá Berlínarfílharm-
oníunni og Salzburgar-hátíðinni
svo hver veit nema eitthvað sé í
vændum úr þeim ranni.
jse@frettabladid.is
TENÓRINN JOSÉ CURA OG GISSUR PÁLL
GISSURARSON Argentínski tenórinn var
forseti dómnefndar og heillaðist hann af
framgöngu Gissurar Páls á úrslitakvöldinu
í söngvarakeppninni í Piacenza. Gissur Páll
lenti í þriðja sæti en tvær sópransöngkonur
skipuðu þau tvö efstu.
Ekki feitir og heimskir
„Það er varla hægt að
fara á kaffihús á Íslandi
án þess að heyra
fordóma um Bandaríkja-
menn; að þeir séu feitir
og heimskir og þeim sé
alveg sama um restina
af heiminum.“
KARL HREINSSON SEM NÚ FLAKKAR
ÁSAMT TVEIMUR FÉLÖGUM MILLI
RÍKJA BANDARÍKJANNA Á HÚSBÍL
OG TEKUR VIÐTAL VIÐ HEIMAMENN
OG ÍSLENDINGA SEM ÞAR BÚA.
FRÉTTABLAÐIÐ 8. JÚNÍ.
Að kunna að þegja
„Ég ætla ekkert að tjá
mig um það sem Guðni
Ágústsson hefur sagt. Ég
held að það hafi verið
sagt heldur of mikið og ég
ætla mér ekki að vera að
segja meira fyrr en það er
búið að koma saman
nýrri skipan í ríkisstjórn.“
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON,
FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKS-
INS, UM FRAMGÖNGU GUÐNA
ÁGÚSTSSONAR VARAFORMANNS.
FRÉTTABLAÐIÐ 8. JÚNÍ.
Úrslit í keppni Junior Chamber á
Íslandi um bestu viðskiptaáætluna
2006 voru tilkynnt á þriðjudaginn.
Keppnin bar yfirskriftina „frum-
kvöðlar í verki“ og voru þrjár áætl-
anir verðlaunaðar.
Sigurvegarar keppninnar voru
þau Theodóra Elísabet Smáradótt-
ir, Sigurður Jónsson og Þóra Björk
Ottessen en verkefnið þeirra var
framleiðsla á fatnaði fyrir hunda.
Sigurlaunin voru lófatölva frá
Opnum kerfum og hundrað þúsund
króna peningaverðlaun frá KB
banka. Þeir sem lentu í öðru og
þriðja sæti fengu einnig peninga-
verðlaun. Tilgangur keppninnar
var að hvetja ungt fólk til að búa til
viðskiptahugmyndir og fram-
kvæma þær. Verkefnin sem lentu í
þrem efstu sætunum fara í alþjóð-
lega keppni Junior Chamber og
þar eiga keppendur möguleika á
að kynna hugmyndir sínar fyrir
erlendum fjárfestum. „Dómarar
voru sammála um að það væri
kraftur í ungum frumkvöðlum á
Íslandi og að þátttaka allra sem
sendu inn áætlanir væri dæmi um
þennan mikla kraft,“ sagði Jenný
Jóakimsdóttir, formaður dóm-
nefndar og viðtakandi landsforseti
JCI Íslands. - gþg
Frumkvöðlar verðlaunaðir
FRUMKVÖÐLAR Í VERKI Sigurvegarar keppninnar ásamt fulltrúum KB banka og Opinna
kerfa við verðlaunaafhendinguna.
„Starfið í Vinnuskólanum er hafið, leiðbein-
endurnir eru núna í undirbúningi og síðan
byrja krakkarnir eftir helgi,“ segir Þórólfur
Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar
og yfirmaður Vinnuskólans í Reykjavík.
„Það eru um 2.700 krakkar sem hafa skráð
sig, það er um 5-600 færri en í fyrra.“
Spurður hvort það hafi áhrif á umhirðu
garðanna í sumar svarar Þórólfur því til að
hætta sé á því að ekki verði eins miklu
komið í verk en Vinnuskólinn ræður líka
eldri starfsmenn til þess að fegra borgina
og þær ráðningar hafa gengið vel.
„17. júní er náttúrlega alltaf svona
ákveðið markmið að koma bænum í gott
horf, en flestir unglingar kannast eflaust við
vinnuálagið sem þeim degi fylgir.“
„Svo seinkaði náttúrlega þetta kulda-
tímabil í byrjun maí öllu og það er ekki
alveg útséð með það hvort það urðu
einhverjar skemmdir.“ Hann á þó ekki von
á að þær verði miklar.
Hvað ætla ég að gera í sumarfrínu?
Það er ekki alveg á hreinu,“ segir Þórólfur
og hlær en hann býst við því að ferðast
eitthvað innanlands. „Ég ætla að fara í
Aðaldal en svo er annað ekki ákveðið. En
svo reyndar ætla ég að fara að ganga í
Pýreneafjöllunum í lok júní og dvelja þar í
viku,“ segir Þórólfur og upplýsir blaðamann
um að þau séu á landamærum Spánar og
Frakklands. Þangað til verður hann þó upp-
tekinn við undirbúning þjóðhátíðardagsins.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÞÓRÓLFUR JÓNSSON GARÐYRKJUSTJÓRI
Setur bæinn í sparifötin
Íslensk stjarna
á ítölskum himni
KRISTJÁN JÓHANNSSON Lærimeistarinn
Kristján er afar kátur með lærling sinn.
„Ég er mikil áhugamanneskja um
heimsmeistarakeppnina svo ég bíð
spennt því að hún hefjist endar er
þetta í mínum huga hrein veisla,“ segir
Katrín Júlíusdóttir þingkona. „Ég er
búin að tryggja mér sjónvarpsaðgang
að þessu og er í startholunum. Ég á
mér tvær uppáhalds þjóðir en þær
eru Þjóðverjar og Argentínumenn.
Ég byrjaði að fylgjast með keppninni
árið 1990 en henni lauk einmitt með
úrslitaleik þessara tveggja þjóða en
þegar svo ber undir hafa Þjóðverjarnir
yfirhöndina í huga mér og hjarta. Ein-
faldlega vegna þess að ég er alin upp
við þýska boltann en faðir minn, Júlíus
Stefánsson, er mikill áhugamaður um
þýska knattspyrnu enda menntaði
hann sig þar í landi.
Það sem heillar mig við þýska liðið
er það að það notar svona kafbáta-
tækni sem er þannig að það virðist
ekkert vera að gerast en svo skora þeir
sísona en þeir skora helst ekki nema
brýn þörf sé á því. Ég er almennt mjög
hrifin af þýskri þjóð og menningu. En
svo er ég einnig hrifin af því þegar
meira er að gerast á yfirborðinu og þar
koma Argentínumenn til skjalanna.“
Ekki kemst hún hjá því að spá í
spilin fyrir keppnina. „Ég held að mínir
menn, Þjóðverjar og Argentínumenn,
eigi eftir að komast mjög langt en
annars er mjög erfitt að segja til um
þetta að þessu sinni. Það kæmi mér
samt ekki á óvart þó Fílabeinsströndin
verði spútnikliðið í ár.“
SJÓNARHÓLL
HM Í FÓTBOLTA
Heldur með
Þjóðverjum
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR
Þingkona