Fréttablaðið - 09.06.2006, Side 24
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR24
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
Aldrei hafa fleiri samruna-
mál legið á borði Sam-
keppniseftirlitsins og nú
eftir áramót; yfir tuttugu.
Páll Gunnar Pálsson, for-
stjóri eftirlitisins, segir að
skerpa verði lagaumhverfi
vegna samruna fyrirtækja.
Einnig eigi að leyfa leit
eftirlitsins á heimilum
stjórnenda í samráðsmálum
til þess að koma í veg fyrir
samkeppnisbrot. Gunn-
hildur Arna Gunnarsdóttir
ræddi við Pál Gunnar.
„Við finnum fyrir samþjöppun
fyrirtækja á markaðinum,“ svar-
ar Páll Gunnar spurður hvort
fyrirtækjum á Íslandi fækki.
„Niðurstaða okkar og tilfinning
er að samþjöppunin sé að ágerast.
Við sjáum að fákeppni er víða
talsverð í atvinnulífinu á málun-
um sem við fáumst við.“ Fleiri
kvartanir berist en áður og búist
sé við að þær aukist enn. „Menn
standa sífellt frammi fyrir nýjum
dæmum um hugsanlega misnotk-
un á markaðsráðandi stöðu, þar
sem samþjöppunin er að aukast.“
Sextíu stjórnsýslumál hafa
verið tekin upp hjá Samkeppnis-
eftirlitinu á árinu. Stór hluti snýr
að sameiningu fyrirtækja. „Yfir
tuttugu samrunamál eru í gangi.
Frá því að samrunaákvæðin voru
sett í samkeppnislögin hafa menn
ekki staðið í jafnmiklum mála-
fjölda á einu tímabili.“
Lagabreytingar nauðsynlegar
Páll Gunnar segir að sífellt þurfi
að huga að lagabreytingum til að
bregðast við óæskilegri fákeppni.
Lögum um samruna fyrirtækja sé
til að mynda ábótavant. „Nú er
það þannig að við höfum ekki kost
á því að sekta fyrirtæki fyrir að
sinna ekki tilkynningaskyldu um
samruna.“ Það skapi vandkvæði í
starfinu því allt of mörg fyrir-
tæki vanræki upplýsingaskyld-
una. Skapa þurfi agaðari vinnu-
brögð gagnvart eftirlitinu og því
ætti það að hafa heimild til að
fara í húsleit vegna samruna.
Heimild af því tagi þekkist víða,
til dæmis hjá framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins. Liggi grun-
ur á samráði milli fyrirtækja
nægi eftirlitinu ekki aðeins að
gera húsleit í fyrirtækjunum
sjálfum, heldur eigi í þeim tilfell-
um að leyfa húsleit inni á heimil-
um stjórnenda. Slíkt tíðkist meðal
annars innan Evrópska efnahag-
svæðisins og vandséð af hverju
sama ætti ekki einnig að gilda um
Samkeppniseftirlitið.
Páll Gunnar segir að eðlilegt
sé að huga að því að eftirlitinu
verði gert kleyft að skipta upp
fyrirtækjum, jafnvel þó þau hafi
ekki orðið uppvís að eiginlegri
misnotkun á markaðsráðandi
stöðu sinni. „Við höfum möguleik-
ann á að gera þetta ef menn hafa
verið brotlegir, en með breyting-
unum hefðum við
tækifæri til þess
að gera starf
Samkeppniseftirlit-
isins meira fyrirbyggjandi
og gætum brugðist við óæski-
legri stöðu á markaðnum.“
Hann segir að talsverð þróun
sé í samkeppnislöggjöfinni í Evr-
ópu, sem þurfi að fylgja vel eftir
hér á landi. Samkeppniseftirlitið
hafi fengið aukna fjárveitingu
miðað við fyrirrennarann Sam-
keppnisstofnun, en þó þurfi að
gera betur. „Við teljum að það
þurfi að stækka eftirlitið. Ég er
ekki að tala um byltingar heldur
stöðuga þróun sem fylgi þróun
atvinnulífsins.“ Hann vill ekki
nefna tölur.
„Með því að veita meira fjár-
magn til eftirlitisins væri því
gefið meira svigrúm til kynning-
arstarfs og til þess að halda úti
umræðu og upplýsa markaðinn
um það sem má og má ekki. Svig-
rúmið yrði einnig meira til þess
að koma áliti til stjórnvalda og
ábendingum til atvinnulífisins
um það sem betur má fara.“
Níutíu mál frá byrjun
Samkeppniseftirlitinu hafa borist
um níutíu erindi þar sem farið er
fram á einhvers konar aðgerðir
af hálfu þess frá því það var
stofnað 1. júlí í fyrra. Um fjörutíu
bárust í vetur og er ríflega þrjá-
tíu þeirra lokið. Páll Gunnar segir
að það sem af sé árinu hafi eftir-
litinu borist um fimmtíu erindi
um aðgerðir og lokið tíu.
Þegar ný samkeppnislög tóku
gildi og Samkeppnisstofnun var
lögð niður, tók eftirlitið við tæp-
lega áttatíu óafgreiddum málum.
Tæplega helmingur þeirra hefur
verið til lykta leiddur og segir
Páll Gunnar að hin séu í vinnslu:
„Við reynum að vinna á þessum
málahala sem við fengum strax í
vöggugjöf og gengur þokkalega.“
Málin fyrnist ekki þó þau bíði.
„Að sjálfsögðu kappkostar Sam-
keppniseftirlitið að klára málin á
eðlilegum tíma, en oft þarf að
taka nýrri mál fram fyrir þau
sem heyra fortíðinni til.“
Þrír markaðir í smásjá
Olíumálið er eitt umfangsmesta
mál eftirlitsins frá fyrri tíma.
Fyrirtækin sem reka Essó, Olís
og Skeljung voru sektuð um
hundruð milljóna og reyna nú að
fá ákvörðunina ógilda. Páll Gunn-
ar segir að niðurstaðan skipti
veigamiklu máli fyrir samkeppn-
isumhverfið í framtíðinni.
Spurður hvort hann viti um
svipað munstur og milli olíufélag-
anna í samfélaginu svarar Páll:
„Það er alltaf hætta á ólögmætu
samráði. Hættan er ekki síst á
fákeppnismörkuðum. Því færri
keppinautar á viðkomandi mörk-
uðum, því auðveldara er fyrir þá
að setjast niður og hafa með
einum eða öðrum hætti samráð.
Þess vegna skiptir miklu máli að
hafa vakandi auga með helstu
fákeppnismörkuðum. Það gerum
við.“
Um helstu áherslur eftirlitisns
sagði Páll að fylgst væri sérstak-
lega vel með fjarskiptum og fjöl-
miðlum, matvörumarkaði og fjár-
málamarkaðnum. Það væri ekki
af hræðslu við ólögmætt verð-
samráð heldur vegna mikilvægis
markaðanna og fjölda mála á
þessum sviðum.
Hvort hann hræðist gagnrýni
forystumanna á þessum mörkuð-
um um að vera talinn verkafæri
stjórnvalda í baráttu gegn þeim
svarar Páll: „Nei, ég hræðist það
ekki, vegna þess að Samkeppnis-
eftirlitið er sjálfstæð stofnun með
sjálfstæða stjórn. Það er búið
þannig að henni að menn þurfa
ekki að óttast pólitísk afskipti.“
Fyrirtækjunum fækkar
PÁLL GUNNAR PÁLSSON Forstjóri Sam-
keppniseftirlitisins segir þrjá markaði undir
smásjá eftirlitisins um þessar mundir:
Fjarskipta- og fjölmiðlamarkað, matvöru-
markað og fjármálamarkað.
Verðbólga hefur mikið verið í umræðunni að
undanförnu en hún er núna 7,6 prósent, vel
yfir 2,5 prósenta markmiði Seðlabanka Íslands.
Há verðbólga er eitt af aðaláhyggjuefnum
matsfyrirtækisins Standard & Poor´s, sem á
dögunum lýsti því yfir að auknar líkur væru á
harðri lendingu íslenska hagkerfisins.
Hvað er verðbólga?
Verðbólga er skilgreind sem viðvarandi hækk-
un verðlags. Með því er átt við röð hækkana
yfir tímabil en ekki hækkanir á einstökum
vörum. Verðbólga rýrir verðgildi peninga og
færri vörur fást fyrir sama pening og áður.
Vísitölur mæla breytingu verðlags og sú
algengasta er vísitala neysluverðs sem Hagstof-
an mælir með því að gera neyslukannanir á
heimilum landsins.
Af hverju er verðbólga
slæm?
Verðbólga væri ekki mikið
vandamál ef laun og
verðlag myndu hækka
jafn mikið. Laun eru hins
vegar venjulega ákvörðuð
á nokkurra ára fresti og
því skaðar mikil verðbólga
hinn vinnandi mann þar
sem tekjur hans rýrna.
Verðbólgu fylgir einnig
óvissa um framtíðina
og gerir hún því allar
fjárfestingarákvarðanir
bæði fyrirtækja og ein-
staklinga erfiðari.
Hvernig er hægt að berjast gegn
verðbólgu?
Markmið Seðlabankans er að
stuðla að stöðugu verðlagi en
til þess hefur hann nokkur tæki.
Mest notaða vopnið er vextir en
þeir eru í raun verð peninga. Þegar
Seðlabankinn hækkar vexti hækkar
verð peninga og færri taka lán til
fjárfestinga og neyslu og því hægir
á hagkerfinu, verðbólga lækkar
að öllu jöfnu og sparnaður verður
fýsilegri. Til þess að vel takist til
þurfa stjórnvöld einnig að koma
að málinu og minnka útgjöld sín til
þess að draga úr þenslunni og þar
af leiðandi verðbólgunni.
FBL GREINING:VERÐBÓLGA
Áhyggjuefni á Íslandi
FRÉTTAVIÐTAL
GUNNHILDUR A. GUNNARSD.
gag@frettabladid.is
11
,5
17
,9
kí
ló 6,
6
1996 2000 2004
> Fjöldi gesta í fiska- og dýrasöfnum landsins
Heimild: Hagstofa Íslands
> Alifuglaneysla Íslendinga í kílóum
Nígeríumanni var nýlega neitað
landvistarleyfi sem flóttamanni.
Sigríður Rut Júlíusdóttir var verjandi
hans í málinu og þekkir vel til þessa
málaflokks.
Hvað þarf til að útlendingur fái
landvistarleyfi á Íslandi sem flótta-
maður? Útlendingur telst vera flótta-
maður ef hann er utan heimalands
síns af ástæðuríkum ótta við að verða
ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða,
þjóðernis, aðildar í félagsmálaflokk-
um eða stjórnmálaskoðana og getur
ekki eða vill ekki vegna slíks ótta
færa sér í nyt vernd heimalands síns.
Einnig getur þetta átt við þá sem eru
ríkisfangslausir og staddir utan síns
heimalands.
Hver er munurinn á flóttamanni
og pólitískum flóttamanni? Það er
bara orðanotkun. Enginn lögfræðilegur
munur er á þessum hugtökum, þetta
er bara notað svona til aðgreiningar í
daglegu tali.
Er það sjaldgæft að flóttamönnum
sé veitt hæli á Íslandi? Flóttamönn-
um er ekki veitt hæli á Íslandi. Það
hefur gerst einu sinni á síðustu árum.
Engin opinber skýring hefur verið gefin
á því af hverju þetta er, en ég tel að
það sé verið að fylgja ákveðinni pól-
itískri stefnu sem hefur verið mörkuð
í þessum málum, að hér eigi ekki að
veita neinum pólitískum flóttamönn-
um hæli.
SPURT & SVARAÐ
FLÓTTAMENN
SIGRÍÐUR RUT JÚLÍUSDÓTTIR
héraðsdómslögmaður
Einum veitt
hæli á Íslandi
Markaðir
Verkefni
Stjórn
Forstjóri
Aðstoðarforstjóri
Aðallögfræðingur
Rekstur
Rekstur
Fjármálaþjónusta
Sérfræði- og
önnur þjónusta
Markaðsgreining
Mennta- og
menningarmál
Neyslu- og
rekstrarvörur
Heilbrigðis-
og félagsmál
Orkumál
Umhverfismál
Fjarskipti,
upplýsingatækni
og fjölmiðlun
Samgöngur
og ferðamál
Upplýsingamiðlun
Samrunamál
Alþjóðlegt samstarf
Samkeppnis-
hamlandi samstarf
Eigna- og
stjórnunar-
tengsl
STARFSEMI SAMKEPPNISEFTIRLITSINS KRINGUM TÍU KJARNAMARKAÐINA
Samkeppniseftirlitið skiptir fyrirtækjum landsins upp í tíu kjarnamarkaði
samkvæmt skipuriti sínu og skoðar þau á þennan máta. MYND/SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ
SANDKASTALI Hann verður tignarlegur,
þessi sandkastali, þegar lokið verður við
gerð hans á strönd í Suður-Karólínu í
Bandaríkjunum. Listamennirnir eru að
reyna að hanna hæsta sandkastala heims.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP