Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 28
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR28
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.668 -1,06% Fjöldi viðskipta: 192
Velta: 3.926 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 64,60 -0,92% ... Alfesca
3,89 -1,52%... Atorka 5,80 -0,86% ... Bakkavör 48,40 -0,41% ...
Dagsbrún 5,98 -1,16% ... FL Group 19,10 -2,05% ... Flaga 4,06
-0,98% ... Glitnir 17,90 -1,65% ... Kaupþing banki 769,00 -0,9%
... Landsbankinn 21,30 -3,18% ... Marel 69,90 +0,00% ... Mosaic
Fashions 15,90 -0,63% ... Straumur-Burðarás 18,10 +1,12% ...
Össur 111,50 -1,33%
Tölurnar miða við stöðuna klukkan 12:45 í gærdag.
MESTA HÆKKUN
Straumur-Burðarás 1,12%
MESTA LÆKKUN
Landsbankinn -3,18%
FL Group -2,05%
Glitnir -1,65%
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur
sent til ESA drög að ákvörðun þess
efnis að fjarskiptafyrirtækin Síminn og
Dagsbrún (Og Vodafone)
séu með umtalsverðan
markaðsstyrk og beri
þeim að lækka gjöld fyrir
lúkningu símtala, þ.e. það
gjald sem farsímanotendur
greiða fyrir tengingu úr einu
farsímakerfi í annað.
PFS setur farsímafyrirtækj-
unum m.a. þær kvaðir að
þau birti verð fyrir lúkningu
símtala í farsímanetum
sínum ásamt upplýsingum
um þær tæknilegu kröfur
sem gerðar eru til samtengingar. Er það
mat stofnunarinnar að kvaðirnar séu
til þess fallnar að koma í veg fyrir að
félögin geti mismunað og haldið uppi
of háum lúkningarverðum.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS,
segir að meðal annars Neytendasam-
tökin hafi lengi bent á að
gagnsæi hafi ekki verið
á lúkningargjöldum fyrir-
tækjanna og því erfitt fyrir
neytendur að sjá kostnað
fyrir tengingu á milli kerfa.
Samkvæmt ákvörðun PFS á
lúkningargjald farsímafyrir-
tækjanna að lækka í fjórum
skrefum á næstu tveimur
árum auk þess sem tengi-
gjöld fyrirtækjanna eigi að
falla niður á sama tímabili.
Lúkningarverð fyrirtækj-
anna er mishátt en verðið hjá Síman-
um er 8,92 krónur en 12,10 krónur hjá
Og Vodafone.
- jab
HRAFNKELL V.
GÍSLASON
Kvöðum komið á
Hagvöxtur í heiminum hefur auk-
ist undanfarin ár og er spáð að
hann verði nálægt fimm prósent-
um á þessu ári og því næsta. Þetta
kemur fram í nýjasta vefriti fjár-
málaráðuneytisins þar sem segir
að hnattvæðingin hafi einkennst
af vaxandi þátttöku fjölmennra
þróunarríkja í Asíu, Suður-Amer-
íku og Afríku þar sem hagvöxtur
hafi verið allt að tíu prósent á ári.
Spáð er minni hagvexti í OECD-
löndunum eða þremur prósentum
að meðaltali á þessu ári og því
næsta. Aðstæður landa innan
OECD eru hins vegar ólíkar en
hagvöxtur hefur verið lítill á evru-
svæðinu undanfarin ár, meðal ann-
ars í Þýskalandi, Frakklandi og á
Ítalíu. Er búist við tveggja pró-
senta hagvexti á evrusvæðinu á
þessu ári og því næsta.
Þá segir ennfremur að hagvöxt-
ur hafi verið 3,5 prósent undanfar-
in ár í Bandaríkjunum en vegna
lágra stýrivaxta, hallareksturs og
ójafnvægis í þjóðarbúskapnum er
von á hækkun stýrivaxta þar í
landi og er spáð þriggja prósenta
hagvexti vestra á næsta ári. Sama
hagvexti er spáð í Bretlandi og á
Norðurlöndunum á næstu tveimur
árum. Hagvöxtur hefur sömuleið-
is verið nálægt þremur prósentum
í Japan en búist er við að hann
muni aukast á næsta ári. - jab
FRÁ MARKAÐI Í MALASÍU Hnattvæðingin
hefur einkennst af vaxandi þátttöku þjóða
þar sem hagvöxtur hefur verið mikill.
Spá fimm prósenta hagvexti
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group og annar stærsti hluthafinn í
félaginu, útilokar ekki að FL Group
auki við hlut sinn í Glitni banka. FL
Group er nú stærsti hluthafi bankans
með 23 prósenta hlut eftir að hafa
keypt rúm þrjú prósent í bankanum
í vikunni.
„Við höfum sagt að við viljum vera
kjölfestufjárfestar í bankanum og ef
tækifæri bjóðast til frekari kaupa þá
munum við skoða þau vandlega.“
Frá áramótum hefur félagið aukið
hlut sinn í bankanum um þrettán
prósent og er þetta langverð-
mætasta fjárfesting FL Group, um 60
milljarða virði. Hannes lýsti því yfir
á afkomufundi FL Group þann 19.
maí síðastliðinn að félagið ætlaði sér
stærri hluti í Glitni. -eþa
STJÓRNARMENN Í FL GROUP Forstjóri útilokar ekki áframhaldandi kaup í Glitni.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Útiloka ekki meiri
kaup í Glitni banka
Umræða tekur sig upp
Í kjölfar þess að Standard & Poor’s breyttu lánshæf-
ishorfum ríkisins í neikvæðar og afsagnar Halldórs
Ásgrímssonar forsætisráðherra hefur á ný færst vöxtur
í neikvæða umræðu um íslenskt efnahagslíf í erlend-
um miðlum og hjá greiningardeildum banka. Ef til vill
þarf ekki að koma á óvart að Danske Bank
stökkvi til, en greiningardeild bankans birti
einhverja mestu svartnættisskýrslu um hag-
kerfið sem sést hefur. Einn höfunda þeirrar
skýrslu, Lars Christensen sem einnig
sótti landið heim fyrir nokkru, segir
afsögn Halldórs koma á bagalegum
tíma og telur álit S&P nú vega þyngra
en Fitch í febrúar, þrátt fyrir að fátt
nýtt komi fram. Glitnir hafði boðað
til fundar um íslensk efnahagsmál í
Stokkhólmi í gær, væntanlega til að
rétta hlut landans en honum varð að
fresta. Ekki var það þó vegna efna-
hagshræringa heldur lá niðri flugumferð á Arlanda
eftir bilun í flugstjórnarkerfi.
Illum sér af farsælum framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjóri dönsku verslunarinnar Illum,
Patricia Burnett, lætur nú af störfum og snýr aftur til
Bretlands eftir þrjú ár í starfi. Í frétt Berlingske Tidende
í gær er hún sögð skilja við fyrirtækið í mikilli upp-
sveiflu. Í fyrra skilaði Illum enda hagnaði í fyrsta sinn í
mörg ár. Patricia segir horfur góðar fyrir Illum og spáir
góðum hagnaði áfram. Síðustu áratugi hefur Illum
margoft skipt um eigendur og ótal misheppnaðar
tilraunir til að snúa við rekstrinum að baki. Í ágúst
í fyrra keypti Baugur Illum af Merrill Lynch og átti
fyrir Magasin. Leif Beck Fallesen, ritstjóri Børsen,
tók þessar fjárfestingar sem dæmi um góðan
árangur íslendinga í að snúa
við rekstri sem Dönum hefði
mistekist að bæta, þegar hann
sat fund útflutningsráðs í maíbyrjun.
Peningaskápurinn... MARKAÐSPUNKTAR...Útlán bankanna í maí námu tæpum 7,5
milljörðum króna og eru það lægstu útlán
í einum mánuði frá því að bankarnir komu
inn á íbúðalánamarkað í ágúst 2004. Glitnir
banki segir samdrátt hafa verið í útlánum
bankanna og bendi flest til að íbúðamark-
aðurinn muni kólna verulega á næstu
misserum.
Microsoft býður netverjum að hlaða niður
ókeypis prufuútgáfu af nýjasta stýrikerfi
fyrirtækisins, Windows Vista, af vefsíðu
fyrirtækisins. Hægt verður að nota útgáfuna
fram á sumar 2007. Fyrirtækið stefnir að því
að gefa fyrirtækjaútgáfu stýrikerfisins út í
nóvember en einstaklingsútgáfu í janúar á
næsta ári.
Glitnir banki segir líkur á að Seðlabankinn
hækki stýrivexti sína enn frekar á næstu
mánuðum. Þó virðast væntingar vera um að
bankinn taki að lækka vexti sína á fyrri hluta
næsta árs.
Yfirtökunefnd er ósammála túlk-
un Fjármálaeftirlitsins um að hafi
yfirtökuskylda myndast sé ekki
heimilt að selja aftur þann hluta
sem er umfram leyfileg mörk
nema með samþykki Fjármálaeft-
irlitsins. „Við teljum að sá sem
verði yfirtökuskyldur hafi heimild
til að selja sig niður hafi hann ekki
áhuga á að vera fyrir ofan þau
yfirtökumörk sem lögin kveða á
um, sem er 40 prósent atkvæða-
réttar eða meira,“ segir Viðar Már
Matthíasson, formaður Yfirtöku-
nefndar. „Það er ekkert í lögum
sem bannar mönnum að selja sig
niður. Þvert á móti eru þau þannig
upp byggð að það er hægt að
þvinga þá til að selja sig niður.
Yfirtökunefnd hefur dregið af því
þá ályktun að mönnum sé heimilt
að gera sjálfir það sem hægt er að
þvinga þá til með opinberum
úrræðum.“
Viðar segir lög um verðbréfa-
viðskipti hér á landi að mörgu leyti
óljós miðað við það sem þekkist
annars staðar. Til að mynda sé
beint ákvæði í norskum lögum um
verðbréfaviðskipti þar sem segir
að þeim sem verður yfirtökuskyld-
ur sé heimilt að selja sig niður
innan fjögurra vikna.
Í tveimur nýlegum málum þar
sem Yfirtökunefnd taldi yfirtöku-
skyldu hafa myndast brugðust við-
komandi aðilar við með því að selja
sig niður fyrir yfirtökumörk. Fjár-
málaeftirlitið telur að leita hefði
þurft samþykkis þess fyrir sölu
hlutanna. Annars vegar varð Baug-
ur yfirtökuskyldur í FL Group og
seldi sig niður og hins vegar varð
Fiskveiðihlutafélagið Venus yfir-
tökuskylt í Hampiðjunni og seldi
fáein prósent. Á nýja túlkun Fjár-
málaeftirlitsins gæti reynt í máli
Atorku gegn Venusi þar sem
Atorka reynir að knýja í gegn yfir-
tökuskyldu. Málið er rekið fyrir
Héraðsdómi Reykjaness og verður
að öllum líkindum tekið upp í
haust. Félagið seldi sig niður fyrir
mörkin en Atorka, einn hluthaf-
anna, vill ekki una við það og gerir
þær kröfur að Venus kaupi hlutafé
Atorku. holmfridur@markadurinn.is
JÓNAS FR. JÓNSSON, FORSTJÓRI FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS Fjármálaeftirlitið og Yfirtökunefnd
eru ósammála um hvort heimilt sé að selja sig niður hafi yfirtökuskylda myndast.
Yfirtökunefnd ósammála FME
Í nýrri túlkun Fjármálaeftirlitsins segir að hafi hluthafi farið yfir yfirtökumörk,
sem eru 40 prósent atkvæðaréttar, sé honum óheimilt að selja aftur þann hluta
sem er umfram leyfileg mörk. Yfirtökunefnd er á öndverðum meiði.
Miklar lækkanir höfðu orðið á evr-
ópskum og asískum hlutabréfa-
mörkuðum um hádegisbil í gær að
íslenskum tíma en heldur dró úr
lækkunum þegar leið á daginn.
Norrænu kauphallirnar fóru ekki
varhluta af lækkunum. Norska
aðalvísitalan hafði fallið um fimm
prósent en vísitölurnar í Dan-
mörku, Finnlandi og Svíþjóð um
þrú prósent. Einnig féllu hlutabréf
töluvert í verði í Japan, Indlandi og
Rússlandi.
Ótti alþjóðlegra fjárfesta við
aukna verðbólgu og vaxtahækkan-
ir hafa valdið allnokkrum usla á
mörkuðum að undanförnu, enda
mun það líklega draga úr hagvexti
og þar með hagnaði fyrirtækja.
Evrópski seðlabankinn tilkynnti í
gær að stýrivextir bankans hefðu
verið hækkaðir um 0,25 prósentu-
stig og standa þeir nú í 2,75 pró-
sentum.
Á mörgum þeirra svæða þar
sem hagvöxtur hefur verið hvað
mestur eru hlutabréfamarkaðir
háðir þróun á hrávöruverði sem
hefur hækkað mikið á þessu ári en
hefur nú tekið að lækka. - eþa
Fall um öll byggð ból
Imperial 42 cl rauðvínsglös
1.924 kr.
12 stk.
Smart og létt á fæti
– heilsteypt glös á tilboðsverði
Maldive 36 cl bjórglös
854 kr.
6 stk.
Þórunn Kristjánsdóttir
Sölumaður hjá RV
R
V
62
07
B
Rauð
vínsg
lös, h
vítvín
sglös
og b
jórgl
ös á
tilbo
ðsve
rði
í jún
í 200
6
Fjárfestingarfélagið Sjöfn hf., sem
er í eigu Baldurs Guðnasonar,
forstjóra Eimskips, og Steingríms
Péturssonar, fjármálastjóra Avion
Group, keypti sig inn í fjárfestingar-
félagið Frontline Holding S.A., sem
er í eigu Magnúsar Thorsteinssonar,
stjórnarformanns Avion Group, í
gær.
Fjárfestingarfélag þeirra Baldurs og
Steingríms seldi rúma 50,7 milljón
hluti í Avion Group í framvirkum
samningum í gær á genginu 42
eða fyrir rúman 2,1 milljarð króna,
til Frontline Holding S.A., sem á
673,5 milljón hluti í Avion Group
og er stærsti einstaki hluthafinn í
félaginu.
Eftir viðskiptin á Magnús 91,3 pró-
senta hlut í Frontline Holding S.A.
og Fjárfestingarfélagið Sjöfn hf. 8,7
prósent. - jab
Sjöfn í Front-
line Holding