Fréttablaðið - 09.06.2006, Síða 29
FÖSTUDAGUR 9. júní 2006 29
Samskip hafa opnað tvær sölu-
skrifstofur í Suður-Ameríku þar
sem megináherslan er lögð á
flutningsþjónustu við ávaxta- og
grænmetisframleiðendur. Beitt er
nýrri geymslutækni í gámaflutn-
ingum sem tryggja eiga bæði gæði
og ferskleika vörunnar.
Nýju skrifstofurnar eru báðar í
Brasilíu, í borgunum Salvador og
Petrolina og segir fyrirtækið
stefnt að opnun fleiri skrifstofa í
álfunni á næstunni.
Í Salvador á að sinna ávaxta- og
grænmetismarkaði og bjóða upp á
kæli- og frystiflutningaþjónustu
frá dyrum seljanda að dyrum
kaupanda. Skrifstofan í Petrolina
einbeitir sér svo að hitastýrðum
gámaflutningum milli heimsálfa.
Þá var einnig í tengslum við
Petrolina-skrifstofuna komið þar
á laggirnar kæligeymslu.
„Brasilía er með stærstu mörk-
uðum heimsins í hitastýrðum
flutningum og opnun skrifstof-
anna þar er enn eitt skrefið í þeirri
viðleitni Samskipa að bjóða upp á
fyrsta flokks kæli- og frystiflutn-
ingaþjónustu um allan heim,“
segir Einar Þór Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri frysti- og kæliflutn-
ingasviðs fyrirtækisins.
Til að byrja með starfa tíu
manns hjá Samskipum í Brasilíu,
en starfseminni stjórnar Brasilíu-
maðurinn Jeferson Boschetti, sér-
fræðingur í frystiflutningum.
Hann verður í Salvador.
Forráðamenn Samskipa segja
að með því að nota nýja kælitækni,
sem nefnd er DCA, eða Dynami-
cally Controlled Atmosphere, sé
tryggt að hægt sé bjóða upp á sjó-
flutninga á viðkvæmum matvæl-
um án þess að þau tapi ferskleika.
Þetta er gert með því að skipta út
súrefni fyrir köfnunarefni og
nákvæmri hitastýringu. Þannig er
öll gerjun matvælanna stöðvuð.
„Með tilkomu DCA-tækninnar eru
sjóflutningar á ferskum ávöxtum
og grænmeti vel samkeppnisfærir
við flugfrakt, auk þess sem sá
kostur fylgir gámaflutningunum
að ekkert þarf að hrófla við farm-
inum, allt frá því að gámur fer frá
seljandanum og þar til honum er
skilað að dyrum kaupandans.
Þannig rofnar kælikeðjan ekki og
líkurnar á skemmdum eru í lág-
marki,“ segir í frétt frá Sam-
skip. - óká
KYNNING Í ROTTERDAM Michael F. Hassing,
forstjóri Samskipa, kynnir flutningsnet
fyrirtækisins, en það er með starfsemi um
heim allan. MYND/HREINN MAGNÚSSON
Samskip opna skrifstofur í Brasilíu
Helstu vísitölur lækkuðu á hluta-
bréfamörkuðum í gær í kjölfar
ummæla Ben Bernanke, seðla-
bankastjóra Bandaríkjanna, um
að frekari stýrivaxtahækkanir
væru nauðsynlegar til að koma í
veg fyrir að verðbólga færi úr
böndunum.
Japanska Nikkei-vísitalan féll
um þrjú prósent og hin franska
CAC-40 og þýska DAX um rúm tvö
prósent. Hlutabréf á Wall Street í
Bandaríkjunum hafa fallið í verði
síðustu þrjá daga.
Fjárfestar óttast að stýrivaxta-
hækkanir hægi á bandaríska hag-
kerfinu og eftirspurn Bandaríkja-
manna eftir innfluttum varningi
minnki. Fastlega er búist við því
að Seðlabanki Evrópu fylgi í kjöl-
far þess bandaríska og hækki
stýrivexti. -jsk
Hlutabréf falla
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði
snarlega í kjölfar þess að Abu
Musab al-Zarqawi, leiðtogi al-
Qaeda í Írak var drepinn. Olíufat-
ið kostar nú tæpa sjötíu banda-
ríkjadali.
Verðlækkana á olíu hafði þegar
orðið vart vegna góðrar birgða-
stöðu Bandaríkjamanna og þíðu
sem virðist komin í samskipti
þeirra við Írana. Abu Musab
Zarqawi var sagður leiðtogi and-
spyrnu- og hryðjuverkahópa Sún-
níta í Írak.
„Við vonum að fráfall al-
Zarqawis þýði að meiri ró komist
á í Írak og jafnvel að aukning
verði á olíuframleiðslu í landinu,“
sagði Victor Shum, sérfræðingur
hjá Purvin og Gertz. -jsk
Olíufatið niður
fyrir 70 dali
MÁLAÐ YFIR AL-ZARQAWI Leiðtogi al-Kaída
hefur verið drepinn. Snarpar verðlækkanir
urðu á olíu í kjölfar fregnanna.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
13
0
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Isuzu hefur fyrir löngu sannað öryggi og endingu á íslenskum vegum. Nú kynnum við nýjan og
stórglæsilegan Isuzu D-MAX pallbíl. Hann er þjáll og lipur í akstri, en jafnframt rammbyggður
og traustur félagi og á alveg ótrúlega góðu verði.
Isuzu D-MAX hefur fengið alveg nýtt útlit og er staðalbúnaður eins og hann gerist bestur, þar
má nefna loftkælingu, ABS hemlakerfi, álfelgur, brettakanta o.fl. Isuzu er með 3.0 lítra dísilvél
með túrbínu og millikæli og skilar 130 hestöflum.
Isuzu D-MAX er farkostur fjölskyldunnar, vinsæll vinnufélagi og verðið ráða allir við!
PALLBÍLL Á
POTTÞÉTTU VERÐI!
Sjálfskiptur Beinskiptur
Verð á Isuzu D-MAX Crew Cab 2.590.000 kr. 2.490.000 kr.
Rekstrarleiga í 36 mánuði* 45.224 m/vsk 43.612 m/vsk
*Miðað við almenn kjör hjá Glitni, 20.000 km akstur á ári og þjónustu.
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
Fjárfestirinn Björgólfur Thor
Björgólfsson hefur sagt sig úr
stjórn búlgarska símafélagsins
BTC og munu tveir fulltrúar hans
úr Novator, sem hafa mikla
reynslu af rekstri símafyrirtækja,
fylla skarð hans í stjórn BTC.
Að sögn Ásgeirs Friðgeirsson-
ar, talsmanns Novators, er með
þessu verið að styrkja stöðu
Novators í búlgarska símafélag-
inu enda sé verið að nýta þá
reynslu sem til er í félaginu á sviði
símareksturs.
Ásgeir segir ennfremur að
Björgólfur einbeiti sér að umbreyt-
ingafjárfestingum. Hafi hann
knúið á um breytingar í BTC með
stjórnarsetu sinni og sé með
aðkomu fulltrúa Novators í stjórn
BTC verið að fylgja þeim eftir.
- jab
Björgólfur úr
stjórn BTC
BJÖRGÓLFUR THOR Björgólfur hefur sagt
sig úr stjórn BTC.