Fréttablaðið - 09.06.2006, Page 48
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR16
... að gömul lög í Nevada banna fólki
að ríða úlfalda á þjóðveginum?
... að í borginni Houston í Texas er
það bannað með lögum að hafa
hátt meðan maður færir til kassa?
... að einu sinni þurftu menn í
Minnesota að taka ofan ef þeir
mættu kú? Annars áttu þeir á hættu
að vera teknir fastir.
... að í New York er bannað að opna
regnhlíf fyrir framan hest?
... að í Alaska er það bannað með
lögum að horfa á elg úr fljúgandi
farartæki? Ekki fylgir sögunni hvaða
refsing bíður þeirra sem slysast til að
líta út um flugvélaglugga og eru svo
óheppnir að sjá elg á jörðu niðri.
... að í Grikklandi til forna var ólög-
legt að almenningur ætti ólívutré?
... að fyrr á öldum lá dauðarefsing
við því að sjást drukkinn á almanna-
færi í Kína?
... að gömul lög í Bretlandi kváðu á
um það að bannað væri að aka bíl
sitjandi í aftursætinu?
... að gömul lög í Kansas bönnuðu
mönnum að borða skröltormakjöt á
sunnudögum?
... að í Chicago er bannað að fara að
veiða í náttfötum?
... að árið 1993 var bannað með
lögum að hlaupa eftir götum bæj-
arins Cebreros á Spáni? Lögin giltu
bæði fyrir menn og hunda.
... að í Coral Gables í Flórída er bann-
að með lögum að synda í einka-
sundlaug á sunnudagsmorgnum ef
það er kirkja í nágrenninu?
... að á 14. öld máttu enskir karl-
menn sem þénuðu minna en sem
samsvarar 1.500 krónur á ári ekki
sofa með nátthúfur úr silki?
... að krikkett var bannað með lögum
í Boston, Massachusetts, upp úr
1890.
... að enskir, skoskir og franskir karlar
sem neituðu konu um að giftast á
hlaupári máttu eiga von á refsingu.
Þetta var á 15. öld.
... að eitt sinn var konum bannað
að ganga með farða í Morrisville í
Pennsilvaníu, nema að veittu leyfi frá
yfirvöldum.
... að bannað er með lögum að
borða í veitingahúsi í Chicago sem
stendur í ljósum logum.
... að bresk lög frá 1551 gera mönn-
um ókleift að aka til kirkju.
... að í San Fransiskó er bannað að
ganga niður aðalgötuna með fíl,
nema hann sé í ól.
... að gömul lög í Maine banna lög-
reglunni að handtaka dauða menn.
... að eitt sinn var bannað með
lögum í Norður-Karólínu að syngja
falskt.
... að í Carmel, New York, er bannað
með lögum að karlmenn gangi í
jökkum sem passa ekki við buxurnar.
... að laukur var bannaður í Indlandi
til forna. Þeir sem vildu borða lauk
urðu að gera það fyrir utan borgar-
múrana.
... að eitt sinn voru lög sem bönnuðu
konum í Mobile í Alabama að ganga
á háum hælum.
... að árið 1785 gaf Lúðvík XVI kon-
ungur Frakka út lög sem kváðu á um
að lengd vasaklúta skyldi vera jöfn
breidd þeirra.
... að lög í Gurnee, Illinois, gerðu
konum sem voru yfir 100 kíló ókleift
að fara á hestbak í stuttbuxum.
... að gömul lög í Ohio banna
hvalaveiðar á sunnudögum í öllum
vötnum ríkisins.
... að árið 1756 gaf Friðrik I Svía-
konungur út lög sem bönnuðu
kaffidrykkju.
VISSIR ÞÚ...
Leikarinn Will Ferrell hefur verið einn farsælasti gam-
anleikari seinustu ára og hafa margar myndir hans
kitlað hláturtaugarnar hressilega. Í sumum myndum
sínum hefur hann aðeins leikið aukahlutverk en
tekist algjörlega að stela senunni.
1. Anchorman: The Legend of Ron Burgundy.
Í kvikmyndinni heimsækja nokkrar persónur
mexíkóskan veitingastað sem ber nafnið Escpimos
en su Alimentu, en á spænsku þýðir það að eigendur
veitingahússins hræki í matinn sem borinn er fram.
Jack Black bregður aðeins fyrir í myndinni þegar hann
stöðvar mótorhjól sitt og sparkar hundi Ferrells fram
af stórri brú.
2. Zoolander Það fór ekki vel í ráðamenn í Malasíu
og Singapúr að malasískum forsætisráðherra skyldi
vera sýnt banatilræði í myndinni og því var hún
bönnuð í löndunum. Áður en myndin var send í
kvikmyndahús á haustdögum 2001 voru myndbrot af
tvíburaturnunum í New York klippt út.
3. Old School Útvarpsþátturinn Frank á X-inu 977
dregur nafn sitt af hinum drykkfellda Frank The Tank
sem Ferrell lék svo snilldarlega. Atriðið þegar að
Frank skýtur sjálfan sig með deyfibyssu í afmælis-
veislu og dettur ofan í sundlaug er stæling á atriði úr
kvikmyndinni Graduate frá 1967. Í atriðinu er mynda-
takan eins og tónlistin sú sama og í eldri myndinni.
4. Starsky & Hutch Það tók Ferrell ekki nema einn
dag að taka upp allar senur sínar í myndinni. Í mynd-
inni kemur fyrir hljómsveit sem syngur dónalega
texta í fermingarveislu. Sama hljómsveit lék dónaleg
lög í brúðkaupinu í upphafi myndarinnar Old School.
5. A Night at the Roxburry Jim Carrey kom að
handritaskrifunum en rataði samt sem áður ekki inn
á kreditlista myndarinnar. Hug-
myndin að kvikmyndinni
kom í kringum atriði úr
Saturday Night Live-þátt-
unum þar sem Ferrell var
ein aðalsprautan. Tónlist-
armaðurinn Haddaway
hefur ekki mikið látið að
sér kveða í tónlistarbrans-
anum síðan þeir bræður
Doug & Steve gerðu
lagið What is
Love að einu
mesta partílagi
síns tíma með
hausadansin-
um fræga.
TOPP 5: WILL FERRELL
Líf, fréttir og viðburðir á ensku
Vefurinn Reykjavik.com og blaðið
Reykjavikmag eru nýjar upplýsinga-
veitur á ensku.
Þær bjóða upp á ferska umfjöllun
og nýjustu upplýsingar um allt sem
heimsborgin Reykjavík státar af á
hverjum tíma; menningarviðburði,
skemmtistaði, veitingastaði, söfn,
gallerí, tísku, verslanir og næturlíf.
Nýjustu fréttir frá Íslandi
Reykjavíkmag blaðið kemur út
hálfsmánaðarlega og verður dreift
um alla borg. Vefurinn Reykjavík.com
flytur alltaf nýjustu fréttir frá Íslandi
og er stöðugt uppfærður í samstarfi
við Fréttablaðið og NFS.
Í Reykjavík er alltaf
eitthvað sem er nýjasta nýtt
Be prepared,