Fréttablaðið - 09.06.2006, Page 58
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR42
menning@frettabladid.is
!
>Ekki missa af...
leikferð Eddu Björgvinsdótt-
ur sem sýnir harmskopleikinn
Alveg brilljant skilnað víðs
vegar um landið. Í kvöld er stefn-
an sett á Húsavík.
myndlistarsýningu Hugins Þórs
Arasonar og Unnars Arnar
Jónassonar í Listasafni ASÍ.
Sýningin ASÍ fraktal grill flettir
ofan af illsýnilegum, óskráðum
en kannski augljósum hliðum
umhverfisins og samfélagsins
sem listamennirnir búa við.
sýningu þýska myndlistarmanns-
ins Rudolf Reiter sem verður
opnuð í Galleríi Sævars Karls í
Bankastrætinu á morgun.
Kl. 20.30
Tónleikar í hraunhvelfingu Laxár-
stöðvar í Aðaldal á vegum Kóra-
stefnunnar við Mývatn. Kór Akur-
eyrarkirkju, Kór Dalvíkurkirkju,
finnski kórinn Kampraatti Kuoro og
Hamrahlíðarkórinn koma fram.
Dagskrá árlegra Sumartónleika í Skálholti er
með veglegasta móti að þessu sinni en hátíðin
er nú haldin í þrítugasta og annað sinn og hefst
dagskráin 1. júlí næstkomandi. Yfir fjögur þúsund
manns sóttu tónleika hátíðarinnar síðasta sumar
en hátíðin er öllum opin og ókeypis.
Sem fyrr verður bæði leikin gömul og ný tónlist en
um tuttugu tónleikar eru fyrirhugaðir í sumar auk
fjölmargra fyrirlestra.
Endurreisnarmúsík og barrokk mun hljóma, þar á
meðal verk Mozarts og Vivaldis en einnig tónlist
staðartónskáldanna tveggja, Diona Rotaru og
Úlfars Inga Haraldssonar.
Í sumar heyrist í fyrsta sinn á opinberum
tónleikum hérlendis, í barítóngömbu sem var
býsna þekkt hljóðfæri á 17. og 18. öld, en síðustu
tónleikahelgi sumarsins mun ungverski virtúósinn
Balazs Kakuk kynna þann hljóðheim fyrir íslensk-
um hlustendum og leika verk eftir Haydn sem
samið var fyrir hljóðfærið.
Líkt og í fyrra verður boðið upp á tónleika í
miðri viku, alls fjóra talsins, og mun Bach-sveitin
meðal annars leika Árstíðir Vivaldis. Einnig verður
boðið upp á tónlistarsmiðju fyrir ungt fólk og
stjórna Hildur Guðný Þórhallsdóttir og Þórdís
Heiða Kristjánsdóttir því starfi.
Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður
Halldórsson. Allar nánari upplýsingar um dag-
skrána má finna á heimasíðu hátíðarinnar, www.
sumartonleikar.is.
Sumartíð og tónar í Skálholti
BACH-SVEITIN LEIKUR Á SUMARTÓNLEIKUM Í SKÁL-
HOLTI Tónleikar, fyrirlestrar og tónlistarsmiðja fyrir
ungt fólk í Skálholti í sumar.
Listakonan Hlaðgerður Íris
Björnsdóttir opnar sýningu á verk-
um sínum í Galleríi Turpentine í
Ingólfsstræti í dag kl. 17. Á sýn-
ingunni eru olíuverk sem Hlað-
gerður hefur unnið á síðastliðnu
ári. „Þetta eru myndir af íslensk-
um krökkum sem sýna aðstæður
þeirra og þroskaferil,“ segir Hlað-
gerður, sem hefur fengist talsvert
við það að mála myndir af börnum.
Myndirnar eru óvanalega stórar
og segir listakonan að áhorfendur
hrökkvi stundum í kút yfir stærð-
inni.
„Það hefur sterk áhrif að hafa
myndirnar stórar - það verður ekki
jafn fínleg upplifun eins og ef þær
væru minni. Mér finnst þær virka
betur, það er meiri kraftur í þeim.
Myndirnar eru undir töluverð-
um rómantískum áhrifum og ein-
kennast jafnvel af ákveðinni
sveitarómantík. „Alveg frá því að
ég byrjaði að læra myndlist þegar
ég var sextán ára hef ég heillast
mikið af endurreisninni og tíma-
bilinu fram til 1800-1850. Það er
kannski einhver söknuður eftir
því tímabili í íslenskri myndlist,“
segir Hlaðgerður. „Ég var líka í
sveit öll sumur þegar ég var yngri
og kannski er þetta það sem stend-
ur hjarta mínu næst. Maður getur
ekki annað en fylgt hjartanu.“
Sýningin stendur til 26. júní en
galleríið er opið þriðjudaga til
föstudaga frá kl. 12-18 og laugar-
daga frá kl. 11-16.
- khh
Börnin stór og smá
GLEYM-MÉR-EI Myndlist Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur er til sýnis í Galleríi Turpentine.
Myndlistarmaðurinn
Steingrímur Eyfjörð verður
fulltrúi Íslendinga á Fen-
eyjatvíæringnum 2007 en
sýning sú er ein virtasta og
yfirgripsmesta myndlist-
arsýning sem haldin er á
nútímalist í heiminum.
Skammt er stórra högga í milli hjá
Steingrími, yfirlitssýning á verk-
um hans stendur yfir í Listasafni
Íslands og hann á einnig verk á
sýningu Carnegie Art Award sem
nýlega opnaði í Hafnarhúsinu en
þar gefur að líta úrval verka nor-
rænna listamanna. Einnig er
skemmst að minnast sýningar
hans í 101 gallery fyrr í vor, „Bein
í skriðu“, sem vakti töluverða
athygli.
Steingrímur segir að útnefn-
ingin hafi margþætta þýðingu
fyrir sig. „Þetta er mikil ögrun
vegna þess að samhengið er svo
stórt - þetta eru ekki bara Vestur-
lönd. Sjálfsagt hefur þetta þau
áhrif að það sem ég hef þegar gert
verður sýnilegra. Svo hefur þetta
líka þýðingu fyrir land og þjóð þó
að Íslendingar hafi ekki áttað sig
til fulls á vægi þessa atburðar.“
Steingrímur tekur dæmi af fram-
lagi Bandaríkjamanna til Tvíær-
ingsins en risavaxnar flugvélar
bandaríska hersins hafa verið not-
aðar til þess að flytja listmuni
milli álfanna. „Það sýnir til dæmis
vægið sem þetta hefur gagnvart
ólíkum þjóðum, Pentagon myndi
aldrei lána vélar nema vegna þess
að þetta skiptir miklu máli.“
Ríflega 920 þúsund manns heim-
sóttu Feneyjartvíæringinn í fyrra
en þá var myndlistarkonan Gabrí-
ela Friðriksdóttir fulltrúi Íslands.
Steingrímur vill lítið láta uppi með
áherslur sínar eða þær vonir sem
hann bindur við þátttökuna og
áréttar að vinna sín sé yfirleitt
ófyrirséð. „Það er langskemmti-
legast og mest spennandi að vita
ekki nákvæmlega hvað kemur út
úr vinnunni,“ segir hann og bendir
á að ferlið sem búi að baki hverju
verkefni sé áhugaverðara.
Steingrímur tekur undir að
þessi viðburður eigi mögulega
eftir að koma einhverju ferli af
stað en útkoman fari líka eftir því
hversu mikið sé lagt í fram-
kvæmdina, stuðningur og fjár-
magn skipti máli og það sjáist vel
á þátttökulöndunum hvort verk-
efninu sé vel sinnt eður ei. „Það er
ekki bara viðfangsefnið eða fagur-
fræðin sem er sýnileg.“
Fagnefnd Kynningarmiðstöðv-
ar íslenskrar myndlistar var ein-
róma í áliti sínu og vali Steingríms
en hana skipuðu að þessu sinni
myndlistarmaðurinn Helgi Þorgils
Friðjónsson, Ólafur Kvaran, for-
stöðumaður Listasafns Íslands, og
Christian Schoen, forstöðumaður
miðstöðvarinnar. Gestir nefndar-
innar voru Eva Heisler, sýningar-
stjóri og gagnrýnandi, og Halldór
Björn Runólfsson listfræðingur.
Christian Schoen segir að dóm-
nefndin hafi valið að senda reynd-
an fulltrúa á Tvíæring næsta árs og
bendir á að nú sé rétti tíminn fyrir
Steingrím, sem hefur starfað ötul-
lega að list sinni undanfarin þrjátíu
ár. „Steingrímur hefur mjög sterkt
og sérstakt myndmál en verk hans
eru mjög marglaga, eins og sést vel
á yfirlitssýningunni í Listasafni
Íslands. Það er ekki hægt að spá
fyrir um hvað hann gerir fyrir Fen-
eyjatvíæringinn, það verður ögrun
fyrir okkur öll.“
Yfirlitssýning á verkum Stein-
gríms stendur til 25. júní og er
áhugasömum bent á að safnið
býður upp á leiðsögn um sýningu
hans og yfirlitssýningu Birgis
Andréssonar í hádeginu á þriðju-
dögum og föstudögum.
kristrun@frettabladid.is
STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ Altered State /
Breytt ástand. Annað verka Steingríms á
sýningu Carnegie Art Award í Hafnarhúsi.
Ögrun þess ófyrirsjáanlega
SKÁLAÐ FYRIR FENEYJUM 2007 Ingibjörg Pálmadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Steingímur Eyfjörð og Christian
Schoen fögnuðu tilnefningu Steingríms. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fyrsta alþjóðlega listasýningin í Fen-
eyjum var haldin árið 1895. Í fyrra
tóku 70 þjóðir þátt í sýningunni og
heimsóttu 920 þúsund gestir hana,
þar af 4.700 blaðamenn sem gerðu
sýningunni góð skil víðs vegar um
heiminn.
Meðal íslenskra þátttakenda á
Feneyjatvíæringnum
• 1976 Sigurður Guðmundsson
• 1978 Sigurður Guðmundsson
• 1980 Magnús Pálsson
• 1986 Erró
• 1990 Helgi Þorgils Friðjónsson
• 1996 Steina Vasulka
• 2001 Finnbogi Pétursson
• 2003 Rúrí
• 2005 Gabríela Friðriksdóttir
• 2007 Steingrímur Eyfjörð
Sýning á verkum Steinunnar Sig-
urðardóttur fatahönnuðar verður
opnuð á Norðurbryggju í Kaup-
mannahöfn á morgun. Sýningin
spannar tuttugu ára feril Stein-
unnar sem fatahönnuður og var
sýningin áður í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi.
Að loknu námi í Parsons School
of Design í New York vann Stein-
unn með fremstu fatahönnuðum
heims, til dæmis Gucci, Ralph
Lauren, Calvin Klein og La Perla.
Hennar helsti styrkleiki er prjóna-
flíkur og kaðlar og þótti færni
hennar á því sviði framúrskar-
andi. Hún vann oftast efnin frá
grunni og bjó til ný efni sem aldrei
höfðu sést áður. Steinunn vann
sem yfirhönnuður hjá La Perla og
eftir tveggja ára starf hjá fyrir-
tækinu ákvað hún að hanna undir
eigin nafni. Steinunn er með
vinnustofu á Laugavegi 59 og selur
flíkurnar til Evrópu, Japans og
Bandaríkjanna. Nánari upplýsing-
ar um vinnu hennar má finna á
heimasíðunni www.steinunn.com.
Sýningin stendur til 9. júlí.
- khh
Hönnun Steinunnar
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR Yfirlitssýning og sýnishorn af nýjustu tísku-
línunni í Kaupmannahöfn.