Fréttablaðið - 09.06.2006, Side 60
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR44
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
��������������� �������� ����������������
���������������������������������
�������������� �����������������
���������������������������������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Húsavík
föstud. 9. júní.
Miðasala í síma 464-1220
Brúðubíllinn er byrjaður
að rúnta um borgina og
spenntir krakkar fylgjast
vel með dagskránni en um
þessar mundir sýnir leik-
húsið verkið Duddurnar
hans Lilla.
Helga Steffensen hefur haft
umsjón með Brúðubílnum í 26 ár
og segir það alger forréttindi að fá
að vinna með börnum. „Þetta er
svo gaman því krakkar á þessum
aldri, allt frá fæðingu bókstaflega,
því þau mæta líka í kerrum og
vögnum, og krakkar fram til sex
eða sjö ára, eru svo hrifin. Krakk-
ar á leikskólaaldri eru mjög
spenntir fyrir þessu leikhúsi.
Þriggja til fjögurra ára börn geta
orðið alveg „húkkt,“ og ég verð
eins og Pink Floyd eða Bubbi fyrir
þessi eldri,“ segir Helga kímin.
„Ég er líka búin að vera í þessu svo
lengi að nú koma gestir á sýning-
arnar sem eru börn þeirra barna
sem komu fyrst þegar ég var að
byrja. Það er dálítið sniðugt.“
Leikhúsið sýnir iðulega tvær
sýningar á dag og er vagninn
víðförull á hverju sumri. „Við
sýnum alltaf tvö leikrit. Ég taldi
þau um daginn og tók saman að
ég hef sýnt rúmlega fimmtíu
leikrit síðan ég byrjaði árið 1980.
Þetta eru hálftíma stykki sem
eru samsett úr sögum og söng.
Mér finnst gaman að vera með
gömul íslensk kvæði og sögur
sem við myndskreytum með
brúðum. Leikritin eru samsett
úr mörgum áttum en fyrst og
fremst á þetta að vera skemmti-
legt fyrir börnin en um leið svo-
lítil fræðsla,“ segir Helga og
áréttar að umfjöllunarefnið sé
sígilt, gæska og tillitssemi sé
boðskapur sem alltaf eigi við.
Brúðubíllinn ferðast ekki
aðeins um höfuðborgarsvæðið
heldur fer Helga með sýningarn-
ar út á land á hverju ári ásamt
Aldísi Davíðsdóttur brúðuleik-
ara og Lárusi Guðjónssyni, bíl-
stjóra og tæknimanni, sem starfa
með henni að sýningunum. Þrjár
af fyrrum brúðustýrum bílsins
hafa orðið leikkonur svo segja
má að hann sé einnig ákveðinn
stökkpallur fyrir leikhúsfólk.
„Í fyrra fórum við um Norður-
og Austurland, við höfum reynt
að taka þetta í pörtum. Mér finnst
alveg sjálfsagt að krakkar úti á
landi fái líka að sjá sýningarnar,“
útskýrir Helga. Brúðubíllinn er
líka mikið galdratæki. „Þegar
krakkarnir koma og sjá bílinn
breytist hann smám saman í leik-
hús. Þetta er líka menningarstarf
að því leyti að krakkarnir læra
dálítið að fara í leikhús. Þau raða
sér upp - þau minnstu fremst, og
svo sitja þau prúð. Þetta eru
fyrstu leikhúsferðir margra
barna.“
Nú í júnímánuði mun Brúðu-
bíllinn sýna víða um borgina en á
sjómannadaginn verða Helga og
félagar í Grindavík að skemmta
ungum áhorfendum og á hátíðar-
höldunum á 17. júní verða sýning-
ar á Álftanesi um morguninn og
síðan tvær sýningar í Hljómskála-
garðinum eftir hádegi. Nánari
upplýsingar um sýningar Brúðu-
bílsins má finna í Sumarbæklingi
ÍTR. - khh
Eins og Pink Floyd fyrir börnin
BRÚÐUBÍLINN KOMINN Á SUMARRÚNTINN Fyrsta leikhúsferð margra barna er á sýningu Brúðubílsins.
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2
Myndlistarmennirnir Hannes Lár-
usson og Helgi Þórsson eiga ekki
margt sameiginlegt en þeir deila
nú rými galleríisins Kling & bang
við Laugaveg. Hannes er með verk
á sýningu sem ber heitið „Ubu Roi
meets Humpty Dumpty (in Ice-
land)“ en þar eignast hugmynd
framhaldslíf sem Hannes vann
með á sýningu sinni í galleríi
FUGLi í fyrra.
Helgi Þórsson sýnir skúlptúra
og málverk á neðri hæðinni en
verk hans hafa nokkuð eþnískt
yfirbragð þó óskilgreint sé. Gallerí
Kling & bang er opið fimmtudaga
til sunnudags frá kl. 14-18. Sýning-
um lýkur á sunnudaginn. - khh
Hannes og Helgi
HELGI ÞÓRSSON Sýningum er að ljúka í Kling & bang.
Fyrsta Föstudagsflipp Hins húss-
ins fer fram í miðbæ Reykjavíkur
í dag en upp úr hádegi mega veg-
farendur eiga vona á óvæntum
listviðburðurim og sprelli af hálfu
hópa sem stunda Skapandi sum-
arstörf á vegum hússins.
Meðal þess sem heppnir geta
orðið vitni að er pokaútbýting
Reykjavíkurljóðanna og hönnun-
arsýning tvíeykisins Stígvél.
Kvintettinn Tepoki og dúettinn
Mimosa munu leika djass í mið-
bænum og tónlistarhópurinn
Cheddy Carter leikur sína músík
við Ingólfstorg. Leiklistarhópur-
inn Gámafélagið kynnir framboð-
ið X-hamingja á torginu við versl-
unina Deli á Laugavegi og
rannsóknarsvið íslenskrar þjóð-
menningar býður gestum og
gangandi upp á „raunveruleika“ á
Austurvelli en þar í nágrenninu
mun Fjöllistahópurinn Grísa-
lappalísur líka fremja gjörning
og auk þess verður Götuleikhús
Hins hússins á ferð og fart um
bæinn.
Þeir sem ekki sjá sér fært að
njóta flippsins í dag fá tvö önnur
tækifæri í sumar þar sem hópar á
vegum Skapandi sumarstarfa
Hins hússins munu troða upp á
ný. - khh
Tepoki og Grísalappalísur
HITT HÚSIÐ BLÆS Í FÖSTUDAGSFLIPP Það er aldrei að vita á hvað menn rekast í miðbæn-
um á föstudögum.