Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 66
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR50
���
KAUPHLAUPS
TILBOÐ
gallabuxum
8.-11. júní
afsláttur af
SIGURVEGARI KVÖLDSINS Francisco Costa,
aðalhönnuður Calvins Klein, vann til
verðlauna sem besti fatahönnuður ársins
en dömulína hans fyrir Calvin Klein hefur
vakið mikla athygli. Hér er hann með leik-
konunni Scarlett Johansson sem klæðist
kjól úr safni hans.
BURÐARSTEINN TÍSKUNNAR
Fyrirsæturnar Gemma Ward og Erin
Wasson voru sætar að vanda.
Samband Bandarískra fatahönn-
uða (CDFA) hélt verðlaunahátíð
sína á dögunum. Hátíðin hefur
verið kölluð óskarshátíð tísku-
heimsins og láta fremstu hönnuðir
sig sjaldan vanta á þennan atburð.
Til dæmis eru veitt verðlaun fyrir
bestu herra- og dömuhönnunina
og bestu fylgihlutahönnunina.
Stjörnurnar eru tíðir gestir á
hátíð sem þessa og auðvitað skipt-
ir það miklu máli að vera í nýjustu
tísku. Aðalverðlaun hátíðarinnar
unnu Francisco Costa, aðalhönn-
uður Calvins Klein, sem besti
kvenfatahönnuðurinn og herra-
megin var það Thom Browne.
Meðal þeirra sem létu sjá sig
voru Anna Wintour en kvikmyndin
Djöfullinn er alltaf í Prada er sögð
vera byggð á ævi hennar. Leikkon-
an Lindsay Lohan lét einnig sjá sig
en sögusagnir um fatafíkn hennar
hafa verið háværar.
TÍSKUDROTTNINGIN Í ROCHAS Ritstjóri
tískuritsins Vogue, Anna Wintour, lætur sig
sjaldan vanta á tískuviðburði sem þessa.
Hér er hún ásamt Olivier Theyskens, sem
valinn var besti alþjóðlegi fatahönnuðurinn.
Uppskeruhátíð tískunnar
TÍSKULJÓNIN Lazaro Hernandez og Jack
McCollough, hönnuðir Proenza Schouler,
voru tilnefndir sem kvenfatahönnuðir
ársins. Hér eru þeir með leikkonunni og
tískudrottningunni Chloe Sevigny og er
hún í kjól frá þeim.
VÍGALEGUR AÐ VENJU Karl Lagerfeld sést hér ásamt leikkonunni ungu Lindsay Lohan. Hún
klæðist kjól úr hans hönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Hraðskreiðasti bíll í heimi, sænski
ofurbíllinn Koenigsegg CCX, er
kominn til landsins. Þessi mikli
sportbíll er skráður í heimsmeta-
bók Guinness sem hraðskreiðasti
verksmiðjuframleiddi bíllinn í
heiminum í dag, enda nær hann
hvorki meira né minna en 395 km
hraða að hámarki. Bíllinn hefur
806 hestöfl og er 3,2 sekúndur í
hundraðið.
Bíllinn kom hingað með flugi
og er á leiðinni á stórsýninguna
Bílar og sport sem verður haldin í
Laugardalshöll um helgina. Fyrst
verður þó farið með hann út á land
í auglýsingamyndatöku.
Eintakið sem er komið til lands-
ins var sýnt um helgina í Bretlandi
þar sem Koenigsegg sló annað
met. Þar náði bíllinn hraðasta
hring sem nokkru sinni hefur
náðst á prófunarbraut Top Gear-
sjónvarpsþáttarins.
Hönnuður og eigandi Koenigs-
egg-verksmiðjanna, Christian von
Koenigsegg, er einnig væntanleg-
ur til landins í fylgd konu sinnar
Halldóru, sem er íslensk. „Það var
draumur hans að smíða þessa bíla;
að smíða hraðskreiðasta og mest
sexí sportbíl sem hefur verið gerð-
ur og ég held að honum hafi tekist
það,“ segir Njáll Gunnlaugsson,
ritstjóri tímaritsins Bílar og
sport.
Eftir sýninguna verður bíllinn
fluttur til nýs eiganda síns sem
mun keyra hann í Le Mans-kapp-
akstrinum í Frakklandi. - fb
Sá hraðskreiðasti í heimi
SÁ HRAÐSKREIÐASTI Koenigsegg CCX er hraðskreiðasti verksmiðjuframleiddi bíllinn í
heiminum.
Eins og glöggir lesendur Frétta-
blaðsins hafa tekið eftir eru engl-
arnir tveir, Pú og Pa, horfnir af
síðum blaðsins. Aðdáendur þeirra
geta þó huggað sig við að þeir
félagar eru komnir á netið og geta
áhugasamir nálgast nýjar sögur á
slóðinni www.puandpa.com. Að
sögn höfundarins og teiknarans,
Sigurðar Arnar Brynjólfssonar,
er ætlunin að bæta við öðrum
teiknimyndaseríum síðar meir en
allur texti er á ensku enda til-
gangurinn að kynna þær fyrir
erlendum aðilum.
Pú og Pa á
netinu
ENGLARNIR TVEIR Slógu í gegn á síðum
Fréttablaðsins og hafa eignast sína eigin
heimasíðu.
Lárus & Lárus
Er þetta ekki
betra Lalli?
Nei, betra,
ég var að segja þaðJú, það var eins gott