Fréttablaðið - 09.06.2006, Qupperneq 78
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
������ �����
������������������
����������� ������
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �
HRÓSIÐ
... fær Bubbi Morthens fyrir
frábæra tónleika í Laugardals-
höll.
BUBBI MORTHENS
LÁRÉTT: 2 afturendi 6 slá 8 stefna 9
geislahjúpur 11 klafi 12 vondur 14
unna 16 í röð 17 niður 18 drulla 20
guð 21 urmull.
LÓÐRÉTT: 1 er hrár 3 skyldir 4 fugl 5
stykki 7 á hverju ári 10 einkar 13 suss
15 hástétt 16 starfsgrein 19 óreiða.
LAUSN:
LÁRÉTT: 2 rass, 6 rá, 8 átt, 9 ára, 11 ok,
12 illur, 14 elska, 16 fg, 17 suð, 18 aur,
20 ra, 21 grúi. LÓÐRÉTT: 1 hrái, 3 aá, 4
storkur, 5 stk, 7 árlegur, 10 all, 13 uss,
15 aðal, 16 fag, 19 rú.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tónlistarmaðurinn og bloggarinn Gunnar Lárus Hjálmarsson hefur
ákveðið að hreinsa til heima hjá sér og
selja megnið af geisladiskunum sínum.
Dr. Gunni segist núorðið hlusta nær
alfarið á tónlist á vínyl og á mp3-formi
og telur tíma til kominn
að losa sig við veg-
legt geisladiskasafnið.
Hann greinir frá þessum
áformum á heimasíðu sinni,
this.is/drgunni, og hvetur
áhugasama til að senda sér
línu. Hann muni svo senda lista
yfir geisladiskana um hæl og fólk
getur gert tilboð. Verð diskanna er á
bilinu 100-1000 krónur. Gunni tekur
þó skýrt fram að hann hyggist ekki selja
þá geisladiska sem hann hefur sjálfur
spilað inn á.
Tökur standa nú yfir á annarri þáttaröðinni af Latabæ Magnúsar
Scheving eins og Fréttablaðið hefur
greint frá. Andrúmsloftið á tökustaðnum
í Garðabæ hefur verið gott en þó hafa
komið upp smávandamál eins og við
er að búast þegar ráðist er í svo stórt
verkefni. Eitt vandamálanna snertir leik-
konuna Juliönnu R. Mauriello, sem fer
með hlutverk Sollu stirðu, og
móður hennar sem er með
henni hérlendis. Mæðg-
unum þótti einn aðstoðar-
leikstjóranna ekki sýna sér
tilhlýðilega virðingu og því
var afráðið að hann hætti
störfum. Í kjölfarið var
ráðinn kvenkyns aðstoð-
arleikstjóri og allt mun
nú vera fallið í ljúfa
löð á ný.
Þjónustufyrirtækið Mamma var nýverið sett á laggirnar til að annast
flestallt sem snýr að viðskiptavinum
fyrirtækjanna 365, Og Vodafone og
Securitas. Þegar hringt er í Mömmu
tekur á móti viðskiptavinunum hlýleg
og karlmannleg rödd fjölmiðlamannsins
Sigtryggs Magnasonar sem leiðbeinir
fólki með erindi þess. Sigtryggur hefur
starfað á auglýsingastofu síðan hann
hætti störfum sem ritstjóri tímaritsins
Sirkus auk þess að
stunda ritstörf. Nú
virðist Sigtryggur hafa
fundið sig á nýjum
vettvangi og má allt
eins búast við því að
rödd hans eigi eftir
að heyrast víðar á
næstunni. - hdm
Eins og ég sagði ykkur í síðustu viku var ég á Spáni
með vinkonunum á stefnumóti við sólina og litlu vini
hennar kokkteilana. Það er nú sennilegast ekki í frásögur
færandi þar sem annar hver Íslendingur á stefnumót við
hana á sumrin, nema hvað að ég var enn og aftur minnt
á það hversu ólíkir karlmennirnir eru þar og hér. Sem
betur fer!
Fyrsta daginn vorum við á rambi meðfram strönd-
inni, svona rétt til að kynna okkur staðarhætti. Þá kom
einn galvaskur hoppandi yfir litla vegginn sem skilur að
strönd og göngustíg, henti sér á stéttina þvert fyrir okkur,
spennti greipar yfir brjóstinu á sér, lokaði augunum og
bað til guðs.
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvað manninum
gekk til en mig grunar að hann hafi verið að vonast eftir
athygli okkar og að hún myndi leiða til einhvers góðs.
Annað svona hressilegt atvik var þegar einn drengurinn
hafði setið á borði nálægt okkur og gjóað augunum að
okkur í nokkurn tíma. Þá gekk framhjá honum rósasölu-
kona sem hann stoppaði og keypti af þrjár rósir. Því næst
tróð hann rósunum upp í sig eins og tangódansari og
gekk yfir til okkar. Þar sem hann gat ekki komið frá sér
orði með munninn fullan af rósum tók hann þær slef-
blautar út úr sér, rétti okkur öllum, sagði að við værum
einstaklega fagrar konur og spurði hvort við vildum ekki
koma með sér á diskótek. Við vorum svo sem ekkert
svakalega hissa þar sem ekki er við öðru að búast af
latínógaurunum þarna suður frá, réttum honum rósirnar
tilbaka, afþökkuðum pent og bentum honum á að spara
rósirnar og reyna þetta á einhverjar aðrar píur.
Hvernig datt manninum í hug að reyna þetta á
ískaldar valkyrjur sem fá gubb í hálsinn af of mikilli
rómantík og ljóðalestri? Ég held ég geti fullyrt að
íslenskar konur eru flestar minna fyrir svona smjaður
en kynsystur okkar sunnar í álfunni. Svona hafði ég
ekki beinlínis ímyndað mér að ég ætti eftir að kynnast
kærasta mínum eða maka. Hann hefur örugglega gert
ráð fyrir að við myndum bráðna á staðnum, heillast af
frumleika hans og rómantík og slá til.
Ég er ansi hrædd um að eldurinn í hjörtum okkar
kvenna hérna á klakanum hafi kulnað í aldanna rás og
við séum komnar með svo harðan skráp að okkur finnist
svona háttsemi hreinlega fyndin og kjánaleg. Ég held
hins vegar að í brjósti okkar brenni annars konar eldur,
sem glæðist við eitthvað merkilegra en rósir og
slef. Það sem kveikir í mér er menn sem
eru kurteisir, heiðvirðir og trúir sínum
konum og ástríðum. En þeir verða þó að
hafa ástríður, það hefur ekki breyst.
Það verður þó að segjast að sitt
sýnist hverjum, sem betur fer því annars
myndum við sennilegast deyja út.
En það er líka nauðsynlegt að fá
stundum áminningu um hvað
það er sem okkur líkar best svo
við lærum að meta það sem við
eigum!
REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR VAR ENN OG AFTUR MINNT Á ÁGÆTI ÍSLENSKRA KARLMANNA
Rósir og slef
1 Veigar Páll Gunnarsson.
2 Billy Preston.
3 Eystrasaltsráðið.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
ReykjavíkMag er nýjasta viðbótin
í blaðaflórunni á Íslandi, en blað-
inu er ætlað að vera upplýsinga-
veita á ensku um það sem er að
gerast í borginni á hverjum tíma.
Blaðið kemur út hálfsmánaðarlega
og mun skarta ítarlegum lista yfir
menningarviðburði borgarinnar
ásamt umfjöllun um veitingastaði,
næturlíf, tísku, verslanir og lista-
líf.
Anna Margrét Björnsson, rit-
stjóri blaðsins, er alvön stórborg-
arlífi en hún ritstýrði áður ferða-
blöðunum Iceland Review og
Atlantica. „Þetta er hugmynd sem
ég er búin að ganga með í langan
tíma. Ég vann hjá Time-Out tíma-
ritinu í París og hef alltaf verið
mjög hrifin af þessum borgarblöð-
um. Reykjavík er orðin það stór að
það er brýn þörf á svona blaði
fyrir Íslendinga og útlendinga,“
segir Anna Margrét. Hún bendir á
að það hafi færst í aukana að
Reykjavík sé markaðssett sem
flott stórborg, þó lítil sé, þar sem
af nógu er að taka. „Fólk er farið
að koma hingað til að versla fara
út að borða, sjá viðburði og
skemmta sér,
það kemur ekki
lengur bara til
að sjá náttúr-
una.“
Í tengslum við
tímaritið hefur
verið settur upp
nýr vefur, Reykja-
vík.com, sem
verður uppfærður
daglega. „Þar birt-
ast reglulega frétt-
ir frá Íslandi á
ensku frá frétta-
stofum NFS og
Fréttablaðsins, auk
þess sem við skipt-
um oft út greinum og
pistlum þannig að
vefurinn verður allt-
af lifandi,“ segir
Anna Margrét. Fljótlega verður
virkt spjallborð á vefnum þar sem
ferðamenn og aðrir geta skipst á
skoðunum. „Við verðum líka með
eitt öflug- asta viðburðakerfi á
landinu, það er að
segja fólk getur
farið inn á vefinn og
séð allt sem er að
gerast í Reykjavík.
Það er hálfgert
offramboð á við-
burðum svo við
ætlum að vera
með skoðanir á
hlutunum, velja
það besta úr og
leiðbeina lesend-
um dálítið. Ég á
mikið af vinum
sem koma hing-
að og fá fullt af
upplýsingum á
netinu en það
er erfitt að
finna hlutlausa umfjöllun um það
hvernig staðirnir eru í raun og
veru,“ segir Anna Margrét. Hún
vonast til þess að skrifin verði
skemmtileg og ítrekar að þau verði
ekki byggð á auglýsingum. „Von-
andi hefur vefurinn líka ákveðinn
persónuleika. Þó þetta sé á ensku
viljum við fyrst og fremst gera líf-
legan fjölmiðil fyrir alla,“ segir
Anna Margrét, en blaðinu verður
dreift frítt um allan bæ, á kaffi-
húsum, veitingastöðum og víðar.
Anna Margrét hefur Hönnu
Björk Valsdóttur ritstjórnarfull-
trúa sér til fulltingis, en hún sá um
Málið í Morgunblaðinu á sínum
tíma. „Hún hefur verið erlendis
eins og ég, bjó í New York í fimm
ár. Svo er ég með erlenda penna
sem sjá um hótelrýni og veitinga-
húsgagnrýni, og Silja Magg tók
fyrir okkur forsíðuna,“ segir Anna
Margrét, en fyrsta tölublað
ReykjavíkMag leit dagsins ljós í
gær. ReykjavíkMag og Reykjavík.
com er gefið út af 365.
rosag@frettabladid.is
ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON: RITSTÝRIR DAGBLAÐI Á ENSKU
Ætlum að hafa skoðanir
ANNA MARGRÉT Reykjavík er markaðssett sem flott stórborg og unga fólkið kemur ekki
hingað bara til að sjá náttúruna.
REYKJAVÍKMAG Fyrsta tölublaðið
kom út í dag og verður dreift hálfsmánað-
arlega.
„Þetta er þriðja ár mótsins og hefur
skráningin gengið vonum framar,“
segir Björgvin Freyr Vilhjálms-
son, sem ásamt félaga sínum Ágústi
Guðmundssyni efndi til Stjörnug-
olfs fyrir tveimur árum. Stjörnug-
olf er mót sem haldið er til styrktar
góðgerðamála og mun ágóðinn
þetta árið renna óskiptur til
Umhyggju, félags langveikra
barna. Björgvin fékk hugmyndina
þegar hann var andvaka eina nótt-
ina og segir nafnið Stjörnugolf
hafa strax komið upp.
Góðgerðamót eru haldin víðs-
vegar í Bandaríkjunum og fannst
þeim félögunum tilvalið að nýta
uppgang golfsins hér á landi enda
félagsmenn Golfsambands Íslands
komnir yfir 13.000 talsins.
Vel hefur gengið að safna
styrkjum og eru helstu styrktar-
aðilar keppninnar Icelandair,
Bónus, Actavis, KB banki og Sýn
en sjónvarpstöðin mun sýna frá
mótinu. Þegar eru þó nokkrir
frægir Íslendingar búnir að skrá
sig og má þar nefna Audda og
Sveppa úr Strákunum og gömlu
kempurnar Ladda og Sigga Sigur-
jóns. Einnig eru frægar innlendar
fótboltastjörnur og tónlistarmenn
tilbúnir til leiks. Mótið fer fram
næstkomandi þriðjudag, 13. júní,
á velli Golfklúbbs Reykjavíkur í
Grafarholti. Enn er hægt að skrá
sig á stjörnugolf@visir.is. Þát-
tökugjald er 50.000 krónur og
verða menn að vera í tveggja
manna liði. Verðlaunin eru ekki af
verra endanum, til dæmis ferða-
vinngar frá Icelandair. „Fyrsta
árið náðum við að safna 475.000
krónum sem fóru til Barnaspítala
Hringsins og í fyrra söfnuðust
rúmar 970.000 krónur og var það
MND-félagið sem tók við þeirri
upphæð. Auðvitað er planið að
fara yfir eina milljón núna en
ennþá vantar nokkur fyrirtæki
uppá,“ segir Björgvin, bjartsýnn
á komandi mót. - áp
Fékk hugmyndina eina andvökunótt
Í SVÍFANDI SVEIFLU Björgvin Freyr
Vilhjálmsson og Ágúst Guðmundsson,
skipuleggjendur mótsins, hafa í nógu að
snúast þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA