Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 12
12 23. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Auglýsing um breytta umferð vegna lokunar
vestari akbrautar Hafnarfjarðarvegar í Engidal
Frá kl. 20:00 föstudaginn 23. júní til kl. 12:00 þriðjudaginn 27. júní verður vestari akbraut Hafnar-
fjarðarvegar við Fjarðarhraun / Álftanesveg lokuð. Öll vinstri beygjuumferð frá Hafnarfjarðarvegi yfir
á Fjarðarhraun verður um hjáleið um Reykjavíkurveg og Stakkahraun eða Hjallahraun. Einnig verður
lokað fyrir beina umferð yfir Hafnarfjarðarveg frá Álftanesvegi og Fjarðarhrauni. Hjáleið verður um
Sjávarbraut, Skjólvang og Hjallabraut.
Garðabær
Ingileifur Jónsson ehf
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
BANDARÍKIN, AP Bandarísku öld-
ungadeildarþingmennirnir John
Kerry og Russ Feingold segjast
vilja kalla bandaríska herinn
heim frá Írak um mitt næsta ár.
Þeir eru báðir þungavigtarmenn
í Demókrataflokknum og líkleg-
ir til að blanda sér í slaginn þegar
flokkurinn velur sér forseta-
frambjóðanda næst.
„Til þess að ná árangri í Írak er
nauðsynlegt að setja hernum
tímamörk um brotthvarf frá
Írak,“ sagði Kerry á miðvikudag.
Félagar þeirra í Demókrata-
flokknum eru þó langt í frá allir
sammála þessu. Harry Reid, leið-
togi demókrata í öldungadeildinni,
vill láta nægja að fara fram á að
brotthvarf hersins frá Írak hefjist
á þessu ári, en ekki setja ákveðin
tímamörk um það hvenær þeim
brottflutningi skuli lokið.
Þó hafa í það minnsta sex demó-
kratar á þingi lýst yfir stuðningi
sínum við málflutning þeirra
Kerrys og Feingolds. Líklegt er að
þetta útspil þeirra verði töluvert
til umræðu í aðdraganda þing-
kosninganna í nóvember næst-
komandi.
Repúblikanar á þinginu gera
óspart grín að þessum hugmynd-
um demókrata, sem tæpast hljóta
nægilegan stuðning í öldunga-
deildinni til þess að verða sam-
þykkt. - gb
JOHN KERRY Í ÍRAK Öldungadeildarþing-
maðurinn átti gott spjall við bandaríska
hermenn í Írak þegar hann var þar staddur
fyrr á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Demókratar á Bandaríkjaþingi með nýtt útspil:
Vilja herinn burt
DÓMSMÁL Sinfóníuhljómsveit
Íslands var í gær dæmd til að
greiða fyrrverandi sviðsstjóra
hljómsveitarinnar rúmar þrjár
milljónir króna með dráttarvöxt-
um frá 6. febrúar 2005 og 700 þús-
und krónur í málskostnað. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur kvað upp
dóminn.
Sviðsstjóranum var sagt upp
störfum í lok júní 2004. Á starfs-
tíma sínum sem varði frá 8. febrú-
ar 2002 var hann áminntur þrisvar
sinnum. Það var gert „vegna mik-
illar óánægju með störf hans og
árekstra við annað starfsfólk“ og
vegna færslu akstursdagbókar.
Þriðja áminningin var send bréf-
lega eftir Listahátíð, en þá „komu
fyrir atvik sem ollu hljómsveit-
inni verulegum álitshnekki, bæði
hjá þeim sem lentu í þessu, en
einnig hjá þeim sem voru áhorf-
endur að því sem gerðist. Hljóm-
sveitarstjórinn kvartaði undan því
að nótnabók sem vera átti á púlt-
inu eftir hlé hefði ekki verið þar
og hann hefði því þurft að stjórna
einu verki án nótna. Síðan sendir
þú blóm of snemma inn á sviðið
sem olli reiði og móðgun hjá söng-
konunni og hneykslan hjá hljóm-
sveit og hljómleikagestum. Hvort
tveggja eru verk sem þú átt að
vita til hlítar hvernig meðhöndla
ber“, sagði í bréfinu.
Dómurinn leit til þess að þess
hefði ekki verið gætt að gefa
sviðsstjóranum kost á að tala máli
sínu fyrir síðustu áminninguna.
Þá hefði Sinfóníuhljómsveitin ekki
reynt að sanna þær ávirðingar
sem bornar hefðu verið á hann.
Þær séu því ósannaðar gegn mót-
mælum sviðsstjórans. Uppsögn
hans hefði verið ólögmæt, sam-
kvæmt lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins. Sé
hæfilegt að miða bætur hans við
laun í 12 mánuði. -jss
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Sviðsstjórinn hafði verið áminntur fyrir að setja ekki nótur í
púlt hljómsveitarstjórans og fyrir að koma of snemma með blóm inn á sviðið. Dómur féll í
máli fyrrverandi sviðsstjóra gegn henni í gær.
Sviðsstjóri vinnur mál gegn Sinfóníuhljómsveitinni:
Rekinn fyrir að
gleyma nótum
VESTURLAND Tvær beltagröfur hafa
setið fastar í eðju, síðan á mánu-
daginn, við bæinn Skerðingsstaði II
við Hvammsfjörð.
Jón Egill Jóhannsson, bóndi á
Skerðingsstöðum II, segir fyrri
gröfuna hafa fest sig á mánudags-
morguninn, við framkvæmdir á
túni nálægt bænum. Þá hafi önnur
grafa verið kölluð til aðstoðar, en
ekki hafi liðið á löngu þar til hún
hafði fest sig líka.
Jón Egill kennir rigningatíðinni
undanfarið um hrakfarirnar. „Jarð-
vegurinn er svo blautur eftir
úrhellið að þetta er nánast eins og
mýri,“ segir Jón Egill.
Í samtali við blaðið kvaðst Jón
Egill vongóður um að gröfurnar
yrðu losaðar seinnipartinn í gær.
Öflug ýta var þá á leiðinni til að
taka þátt í björgunarstarfinu. - æþe
Votviðrið veldur erfiðleikum við bæinn Skerðingsstaði II:
Tvær gröfur sukku
GRAFA Á KAFI Eins og sjá má lét jarðvegur-
inn undan þunga vinnuvélarinnar
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN EGILL JÓHANNSSON