Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 16
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Keppir við HM
„Sem betur fer eru ekki
allir tónlistarmenn fót-
boltaaðdáendur.“
EINAR ÖRN BENEDIKTSSON,
FORSPRAKKI HLJÓMSVEIT-
ARINNAR GHOSTIGITAL, UM
FYRIRHUGAÐA TÓNLEIKA Í
HYDE PARK. MORGUNBLAÐIÐ,
22. JÚNÍ.
Mikil eftirspurn
„Við þurfum sjötíu blóð-
gjafa á hverjum einasta
degi.“
SIGRÍÐUR LÁRUSDÓTTIR, DEILD-
ARSTJÓRI BLÓÐBANKANS, UM
MIKLA EFTIRSPURN EFTIR BLÓÐI
LANDSMANNA. FRÉTTABLAÐIÐ,
22. JÚNÍ.
„Ég er nú að fara til Hróarskeldu á morgun, það er svona
það sem er á næstunni,“ svarar Jónas Örn Helgason þegar
hann er spurður hvað sé að gerast hjá honum. „Þetta byrj-
ar í næstu viku en ég fer allavega út á morgun,“ (föstudag)
en Jónas ætlar að eyða nokkrum dögum í það að skoða
Kaupmannahöfn. „Ég fer með fjórum félögum mínum og
ætla að vera í tíu daga.“ Pökkunin var ekki komin á fullt
skrið hjá Jónasi en hann sagðist þó aðeins vera byrjaður.
„Ég er að vinna hjá Orkuveitunni, að slá gras og fleira,“
segir Jónas og aðspurður um veðrið í sumar svarar hann
því til að það hafi verið „frekar ömurlegt“. Jónas var í veik-
indafríi þegar blaðamaður náði tali af honum, „ég er með
svolítið slæma kvefpest, ég fer í eftirmiðdaginn á morgun
og vona að þetta gangi yfir.“ Jónas hefur ekki ákveðið hvað
hann ætlar að gera í sumar en hann ætlar kannski með
Hamrahlíðarkórnum til Þýskalands. Hann segist einnig
fylgjast með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. „Mér
finnst nú Argentínumenn mjög skemmtilegir, ég horfði á
leikinn Argentína - Serbía og fannst það frábær leikur og
svo vona ég nú að Ganamenn komist áfram.“
Jónas segir lífið eftir Meistarann vera
nokkuð sérstakt. „Einstaka sinnum er maður
stoppaður úti á götu af fólki sem maður
þekkir ekki neitt sem ég hafði nú ekki kynnst
áður.“ Hann segist vona að hann hafi ekkert
breyst við það að vinna milljónirnar í Meistar-
anum. „Ég held ég sé nú ekkert farinn að eyða
neitt meira eða orðinn svona nýríkur eins
og ég ætti að vera,“ segir Jónas og hlær.
Í haust ætlar Jónas að halda áfram í
verkfræðinni en hann stundar nám í
vélaverkfræði við Háskóla Íslands.
„Vélaverkfræðin er ágæt, svolítið
erfið en það er ágætt að takast
á við þetta, þetta er nám sem
gagnast við margt“.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JÓNAS ÖRN HELGASON NEMANDI OG „MEISTARI“
Á leiðinni til Hróarskeldu
Í vor var talað um það á Alþingi hvort
taka ætti upp sérstakan sumartíma á
Íslandi. Fylgismenn þess bentu meðal
annars á að þannig ynnist einn „hlýr“
klukkutími á dag, sem mætti nýta í
sumarstarf ýmiss konar, til að mynda
grilla úti í garði eftir vinnu. Blaðamað-
ur hringdi í stórsöngvarann Ragga
Bjarna til að fá álit hans á þessu máli.
„Nei, ég sé enga sérstaka ástæðu
til þess að taka upp sumartíma á
Íslandi, mér finnst þetta bara ágætt
eins og það er. Mér finnst við ekkert
þurfa þess. Auðvitað væri gott að
geta pantað sólina bara og að hafa
einum sólartíma meira, en það verður
sennilega ekki gert með lagasetningu.
Annars hef ég nú lítið hugsað um
þetta. Þetta er ekki svona hlutur sem
hefur truflað mig mikið,“ segir Raggi
og hlær.
SJÓNARHÓLL
SUMARTÍMI Á ÍSLANDI
RAGNAR BJARNASON TÓNLISTARMAÐUR
Mörgum ferðaþyrstum Íslending-
um þykir fátt skemmtilegra en að
geysast á gríðarstórum jeppabif-
reiðum um fjöll og firnindi alltaf
þegar færi gefst. Nú þegar sumar-
ið er gengið í garð er tími til kom-
inn að huga að möguleikunum.
Vegagerðin gefur í dag út nýtt
hálendiskort með upplýsingum
um ferðaleiðir á hálendi landsins.
Nú hefur Dómadalsleið frá Búr-
felli yfir í Landmannalaugar verið
opnuð og vegurinn frá Land-
mannalaugum yfir í Eldgjá.
Einnig er búið að opna í Laka
og leiðin frá Skaftártungum yfir í
Eldgjá hefur verið opin í um tvær
vikur. Nú er orðið þokkalega fært
í Öskju fyrir góða bíla og frá
Herðubreiðarlindum yfir í Gríms-
vötn. Sprengisandur verður hins
vegar lokaður út mánuðinn hið
minnsta og Skagafjarðarleið og
Eyjafjarðarleið verða lokaðar enn
lengur. - sh
Áfram lokað á Sprengisandi
HÁLENDISKORTIÐ Hér sést hvaða leiðir er óheimilt að fara um vegna aurbleytu og hættu
á vegaskemmdum. Kortið segir þó ekki til um færðina utan skyggðu svæðanna, sem getur
verið misjöfn eftir aðstæðum.
Truflar mig
ekki mikið